Fréttablaðið - 16.12.2013, Qupperneq 8
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
Laugavegi 174
Sími 590 5040
Opið virka daga kl. 10-18,
laugardaga kl. 12-16
Einstakt tækifæri til að eignast Audi eðalvagn
Við fjármögnum
bílinn fyrir þig
lykill.is
Bluetooth
símabúnaður
Audi A4 2.0 TDI
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 57.000 km, beinsk.
Ásett verð
4.190.000,-
Audi A4 2.0 TDI
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 33.500 km, sjálfsk.
Ásett verð
5.850.000,-
Audi A4 Avant 2.0 TDI
Árgerð 2011, dísil
Ekinn 36.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
4.850.000,-
Audi A4 Avant 2.0 TDI AT
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 26.000 km, sjálfsk.
Ásett verð
5.850.000,-
Milano leður,
Bluetooth símabúnaður
TÓMSTUNDIR Mikill verðmunur er á æfinga-
gjöldum í handbolta annars vegar og fim-
leikum hins vegar. Mestur verðmunur er
148 prósent á fimleikanámskeiði fyrir 8 til
10 ára börn og 119 prósenta verðmunur á 6.
flokki í handbolta.
Verðlagseftirlit ASÍ tók saman hvað kostar
að æfa handbolta og fimleika hjá fjölmenn-
ustu íþróttafélögum landsins. Í fimleikum
var til að mynda gjaldskrá fyrir 6 til 8 ára
börn sem æfa tvær klukkustundir á viku
borin saman. Tekinn var saman æfinga-
kostnaður í fjóra mánuði eða á haustönn.
Dýrast er að æfa hjá Íþróttafélaginu Gerplu
eða 40.617 krónur. Ódýrast er að æfa hjá
Íþróttafélaginu Hamri í Hveragerði eða
17.000 krónur. Verðmunurinn er 139 prósent.
Þau fimm félög sem bjóða upp á ódýrustu
æfingagjöldin eru öll súti á landi en fim-
leikafélög á höfuðborgarsvæðinu raða sér í
efstu sætin.
Dýrast er að æfa handbolta hjá Gróttu og
Haukum eða 45 þúsund fyrir allan veturinn
fyrir börn í áttunda flokki. Ódýrustu æfinga-
gjöldin eru hjá Íþróttafélagi Reykjavíkur
(ÍR) eða 24 þúsund fyrir veturinn. Það er
21 þúsund krónu verðmunur eða 88 prósent.
Fyrir utan ÍR eru æfingagjöld hjá félögum
úti á landi yfirleitt ódýrari en á höfuðborgar-
svæðinu. Þór og KA eru næstódýrust með 27
þúsund króna æfingagjöld. erlabjorg@frettabladid.is
Munar allt að 148 prósentum
á æfingagjöldum fyrir börn
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á æfingagjöldum í handbolta og fimleikum. Mikill verðmunur er á milli fé-
laga og yfirleitt dýrara á höfuðborgarsvæðinu. Félögin segja styrki misháa, aðbúnað ólíkan og áherslur ólíkar.
Auður Inga
Þorsteinsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Gerplu,
segir það ekki
koma sér á óvart
að félagið sé með
hæstu æfinga-
gjöldin. „Þjónusta okkar er ekki
samanburðarhæf við mörg önnur
fimleikafélög. Við erum með
lengra æfingatímabil, minni hópa,
menntunarstig þjálfara er hærra
og við erum með mjög dýran
tækjakost.
Verðskrá Gerplu hækkaði um
30 til 40 prósent fyrir einu og
hálfu ári. „En við erum ekki að
bera okkur saman við aðra. Við
reynum alltaf að hagræða og gera
betur en verðskráin miðar bara við
reksturinn okkar.“
➜ Berum okkur ekki
saman við aðra
Æfingagjöldin
hækkuðu um
4.500 krónur á
síðasta ári en
hækkunin tengist
launum,“ segir
Kristín Finnboga-
dóttir, framkvæmdastjóri Gróttu.
Grótta er með dýrustu gjöldin í
handbolta í 8. flokki ásamt Haukum
en á Seltjarnarnesi er frístunda-
styrkurinn 30 þúsund á ári.
„Æfingagjöldin fara fyrst og
fremst í launakostnað og dekkar
hann oft á tíðum ekki. Við erum
með tvo þjálfara í 8. flokki, einn
aðalþjálfara og einn aðstoðar-
þjálfara. Svo fylgja líka stuttbuxur
og bolur með æfingagjöldunum.
Annars hækkuðu gjöldin um 4.500
krónur á síðasta ári og hækkunin
tengist launakostnaði.“
➜ Dugar ekki fyrir
launakostnaði
„Félagið er vel rekið,
yfirstjórnin lítil og
enginn starfsmaður
á launum. Enda eru
sjálfboðaliðar duglegir
að sinna störfunum og
allir hjálpast að,“ segir
Hjalti Helgason, for-
maður Íþróttafélagsins
Hamar í Hveragerði sem býður
upp á lægsta æfingagjaldið í fim-
leikum fyrir 6 til 8 ára.
„Við höfum fundið fyrir að fólk
er mjög viðkvæmt fyrir hækkun-
um þannig að við reynum eins og
við getum að halda verðinu niðri.
Einnig fáum við árlegan styrk frá
Hveragerðisbæ sem fer beint í
rekstur deildanna. Það eru ekki
mjög stór fyrirtæki sem styrkja
okkur, við fáum frekar minni
styrki sem safnast saman.“
➜ Sjálfboðaliðar spara
við rekstur
Íþróttafélagið Þór
er með ódýrasta
æfingagjaldið í
handbolta fyrir 8.
flokk ásamt KA.
„Við viljum gera
öllum kleift að
æfa og höfum ekki
hækkað gjaldið eftir efnahags-
hrun til að halda í iðkendur.
Enda hefur iðkendum fjölgað í
handboltanum,“ segir Linda Guð-
mundsdóttir, gjaldkeri handknatt-
leiksdeildarinnar.
„Hér á Akureyri er frístunda-
styrkurinn aðeins tíu þúsund
krónur og okkar iðkendur þurfa
líka að ferðast mikið. Ferða-
kostnaðurinn fer þó ekki allur á
heimilin því styrkur frá Samherja
hjálpar okkur að mæta þeim
kostnaði.“
➜ Lágt gjald til að
halda í iðkendur
FIMLEIKAR Dýrast er fyrir 6-8 ára að æfa fimleika hjá Gerplu en ódýrast hjá Hamri í Hveragerði. Myndin er úr
safni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEILBRIGÐISMÁL Sjúkratrygging-
ar Íslands og Rauði kross Íslands
hafa gert með sér samning sem
tryggir til loka næsta árs áfram-
haldandi rekstur flestra þeirra
sjúkrabíla á landsbyggðinni sem
átti að taka úr rekstri í janúar.
Frestun á fækkun sjúkrabíla
tekur til þeirra bíla sem stað-
settir eru í Ólafsvík, Búðardal, á
Hvammstanga, Ólafsfirði, Rauf-
arhöfn og Skagaströnd.
Á næsta ári ætlar heilbrigðis-
ráðherra að láta gera heildarend-
urskoðun á fyrirkomulagi sjúkra-
flutninga á landsbyggðinni. - jme
Samið um sjúkraflutninga:
Endurskoðað á
næsta ári
UMHVERFISMÁL Hlutfall papp-
írs í gráu tunnunum í Reykjavík
hefur minnkað úr 21 prósenti í 8
prósent, frá því í nóvember 2012
og þangað til í nóvember á þessu
ári. Þetta má rekja til þess að
nú á fólk að flokka sorp og setja
pappír í bláar tunnur.
Fyrir ári fóru 106 tonn af
pappír í bláu tunnurnar en 280
tonn í síðasta mánuði. - jme
Vel gengur að flokka sorp:
Bláa tunnan
slær í gegn