Fréttablaðið - 16.12.2013, Side 10
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
STYRKJA STÖÐUNA Á NORÐURSKAUTINU
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt
bágstadda fjölskyldu um til dæmis geit, hænu, brunn,
matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar. Gefðu
skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis.
GEFÐU GJÖF SEM GEFUR
www.gjofsemgefur.is
PP
IP
A
R
\
P
IP
A
R
\
P
IP
A
R
\
P
IP
A
R
\
P
A
R
\
P
A
R
A
T
B
W
A
TT
B
W
A
TT
B
W
A
T
B
W
T
B
W
B
W
B
W
A
•• S
ÍA
S
ÍA
S
ÍA
S
ÍA
S
A
••
102985
102985
10298
1029
0029858588
Ólafur Jóhannsson
534 1020
TIL LEIGU
GLÆSILEGT HÚSNÆÐI
NORÐURSKAUTIÐ Sergei Sjoígó,
varnarmálaráðherra Rússlands,
skýrði í síðustu viku frá því að
rússneski herinn myndi auka styrk
sinn á Norður-Íshafi strax á næsta
ári til að verja hagsmuni Rúss-
lands á þessu svæði.
Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seti sagði sömuleiðis að Rússland
þyrftu nú að hafa alla anga úti við
að verja öryggi sitt og þjóðarhags-
muni á norðurskautssvæðinu.
Kanadamenn höfðu áður skýrt
frá því, að þeir hygðust gera kröfu
til norðurpólsins sjálfs. Þeir hafi
þegar beðið vísindamenn sína
um að athuga hvort ekki sé rétt
að leggja fram formlegt tilkall á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna til
landgrunnshryggs, sem teygir sig
frá Kanada út fyrir norðurpólinn
sjálfan.
„Við erum staðráðin í að tryggja
að allir Kanadabúar njóti góðs af
þeim gríðarlegu auðlindum sem
er að finna nyrst í Kanada,“ sagði
John Baird, utanríkisráðherra Kan-
ada, af því tilefni á mánudaginn í
síðustu viku. Hins vegar þurfi að
leggja mikla vinnu í að tryggja
Kanada rétt til norðurpólsins, því
fyrst þurfi vísindamenn að kort-
leggja landgrunnið á Lomonosov-
hryggnum, sem bæði Kanadamenn,
Rússar og Danir gera tilkall til.
Eitthvað hefur jólasveinninn
komið við sögu í tengslum við
þessar umræður í Kanada. Þann-
ig hafði breska dagblaðið The
Tele graph eftir Paul Calandra,
þingritara Stephens Harper, for-
sætisráðherra Kanada, að allt
yrði gert til að tryggja öryggi
bæði norðurpólsins og jólasveins-
ins. Með þessu var hann reyndar
að skjóta á stjórnarandstöðuna,
sem hann sagði „halda“ að hvorki
norðurpóllinn né jólasveinninn séu
í Kanada.
Stjórnarandstöðuleiðtoginn Just-
in Trudeau tók hins vegar undir
með Calandra: „Allir vita að jóla-
sveinninn er kanadískur,“ sagði
hann. gudsteinn@frettabladid.is
Kanada ætlar
að gera kröfu
í norðurpól
Kanadamenn ætla að gera kröfu til norðurpólsins.
Vilja tryggja rétt til auðlinda sem er að finna á svæð-
inu. Rússar bregðast við með því að efla herstyrk sinn
í Norður-Íshafi. Jólasveinninn blandast í deiluna.
UMHVERFISMÁL Um tvö þúsund
gamlir eða ónýtir farsímar söfn-
uðust á fyrstu fimm dögum lands-
söfnunarinnar Græn framtíð far-
síma.
„Það mun ekki liggja fyrir
hversu margir símar skila sér á
endanum fyrr en á morgun þegar
söfnuninni lýkur,“ segir Bjartmar
Alexandersson, framkvæmda-
stjóri Grænnar framtíðar, sem
stendur fyrir söfnuninni ásamt
Símanum og Póstinum.
Fyrirtækin sendu söfnunar-
poka inn á öll heimili landsins 6.
desember síðastliðinn. „Við hvött-
um fólk til að koma farsímunum til
Símans eða Póstsins og á pokun-
um má merkja við góðgerðafélag
sem fólk vill styrkja og allur ágóði
rennur óskiptur til þess félags sem
fólk kýs,“ segir Bjartmar og bætir
því við að símarnir séu endurnýtt-
ir með þrenns konar hætti.
„Ef það er hægt að gera við
tækin er það gert og þau seld,
meðal annars til Afríku. Tæki sem
eru illa skemmd fara til samstarfs-
aðila okkar í Evrópu sem rífa þau
niður í parta og að lokum fara sum
tæki í endurvinnslu. Það er hundr-
að prósent nýting á öllu og ekkert
fer í ruslið.“ - hg
Margir hafa tekið þátt í landssöfnun þar sem gömlum eða ónýtum farsímum er komið í endurvinnslu:
Söfnuðu tvö þúsund símum á sex dögum
POKINN Fyrirtækin sendu nú í fyrsta
skipti söfnunarpoka á öll heimili.
© GRAPHIC NEWSHeimildir: IBRU
Kanada býr sig undir að gera kröfu til norðurpólsins
Hyggst styrkja stöðu sína á norðurskautinu
Grænland
(Danmörk)
adKan a
Landhelgi
Íslands
Alaska
n)(Bandaríki
Norður-Íshafið
Norðurpóllinn
Kanada hyggst
leggja fram kröfu til
Sameinuðu þjóðanna
um að ytri mörk
landgrunnsins nái út
yfir norðurpólinn
Rússar efla
hernaðarmátt sinn
í kjölfar yfirlýsingar
Kanada
Lomonosov-hryggurinn
Kanada, Rússland og Danmörk
gera öll kröfu til þess að
1.800 km langur hryggurinn
tilheyri landgrunni þeirra
Skörun bandarísku
og kanadísku
landhelginnar
Rússland
600km
Svalbarði
(Noregur)
Noregur
Landhelgi Noregs
Samþykkt markalína Landgrunnskröfur út fyrir 200 sjómílna mörkin
Hugsanlegar landgrunnskröfur út fyrir 200 mílna mörkin
Rússland
Kanada
Noregur
Danmörk Bandaríkin
Miðlína
200 sjómílna landhelgi
Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna: Hvert land á óskoraðan
rétt til efnahagslögsögu út að 200 sjómílum frá strandlengju,
og landgrunnsréttindi að auki nái landgrunnið út fyrir 200 mílurnar.
MENNING Sú þögn sem nú mun
myndast í íslensku tónlistarlífi
verður vitnisburður um skiln-
ingsleysi stjórnvalda, segir í
ályktun Samtóns, samtaka tón-
listarfélaga og útgefenda.
Þar er mótmælt niðurskurði á
starfsemi Rásar 1 og þess krafist
að Rúv verði gert kleift að sinna
menningarlegri skyldu sinni
gagnvart almenningi. - eb
Mótmæla niðurskurði á Rás 1:
Sýnir skilnings-
leysi stjórnenda