Fréttablaðið - 16.12.2013, Síða 14
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 14
Íslendingar starfrækja víðfeðm-
ara flutninganet á norðurslóðum
en nokkur önnur þjóð. Starfsemi
íslenskra fyrirtækja á Grænlandi
spannar mjög vítt svið og vísbend-
ingar eru um að íslensk útflutn-
ingsfyrirtæki stefni á aukin Græn-
landsviðskipti.
Dekkum norðurslóðir allar
Þetta er meðal niðurstaðna grein-
ingar Íslenska sjávarklasans (ÍS) á
íslenskum umsvifum í Grænlandi
og framtíðarmöguleikum.
Haukur Már Gestsson, hagfræð-
ingur hjá ÍS, segir að ekki aðeins
sé flutninganet Íslands á norður-
slóðum lengra komið en annarra
þjóða. „Raunar er Ísland eina
landið í heiminum sem býður upp
á reglubundna flutninga til allra
landa sem teljast til norðurslóða.
Svo umfangsmikið flutninganet er
langt frá því sjálfgefið í litlu landi
eins og okkar. Það má fullyrða að
hægt sé að byggja á því, og þarf að
hafa hugfast þegar rætt er um að
nýta ný tækifæri á norðurslóðum.“
Hér vísar Haukur til þess að
Icelandair starfrækir reglubundið
flug til Anchorage í Alaska, Kan-
ada, Rússlands, Noregs, Finnlands
og Svíþjóðar og Flugfélag Íslands
og Norlandair starfrækja flug
til ýmissa staða á Grænlandi. Þá
siglir Eimskip til Norður-Noregs,
Svíþjóðar, Múrmansk í Rússlandi,
Nuuk í Grænlandi og Kanada, og
Samskip til Svíþjóðar.
Haukur Már segir að þrátt fyrir
að nokkuð sé þangað til tækifæri
tengd skipaflutningum á norður-
slóðum opnist fyrir alvöru verði
að hafa hugfast að umsvif á Græn-
landi muni aukast mikið á allra
næstu árum. Yfir 30 umfangs-
mikil verkefni eru í deiglunni í
olíuvinnslu, námugreftri og bygg-
ingu ál- og raforkuvera. Heildar-
verðmæti fjárfestinga eru nú um
900 milljarðar íslenskra króna
[40 milljarðar danskra króna].
Á sama tíma skorti innviði til að
sinna uppbyggingunni – innviði
sem Ísland þegar hefur að stærst-
um hluta. „Hér eru íslausar hafnir
allt árið, góðir flugvellir og öflug
flutningafyrirtæki svo dæmi séu
tekin,“ segir Haukur Már.
Mikil umsvif
Kortlagning Sjávarklasans á
atvinnuumsvifum Íslendinga
á Grænlandi sýnir að fjölmörg
íslensk fyrirtæki eru umfangs-
mikil á Grænlandi. Lengi hefur
verið samstarf milli þjóðanna
um uppbyggingu landbúnaðar á
Grænlandi. Íslendingar áttu stór-
an þátt í uppbyggingu flugvalla
á 20. öld og uppbyggingu fisk-
vinnslu þar í landi á 9. áratugn-
um. Íslensk fyrirtæki sinna flugi
og siglingum til og frá Grænlandi
og margar íslenskar útgerðir eiga
hlut í grænlenskum útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækjum. Þá sinna
mörg íslensk fyrirtæki græn-
lenskri smábátaútgerð. Íslensk
verkfræði- og iðnaðarfyrirtæki
sinna stórum verkefnum og á
Landspítalanum og Sjúkrahúsinu
á Akureyri eru starfrækt sérstök
teymi sem sinna heilbrigðisþjón-
ustu við Grænlendinga.
Í skýrslu Sjávarklasans kemur
einnig fram að síðastliðinn áratug
hafa vöruflutningar milli Íslands
og Grænlands aukist umtalsvert.
Verðmæti vöruútflutnings var í
kringum 400 milljónir króna upp
úr aldamótum en var komið í 2,6
milljarða árið 2012. Mestan hluta
aukningarinnar má rekja til auk-
inna viðskipta með iðnaðarvörur
eins og olíu, málma og iðnaðarsalt.
Útflutningur á sjávarafurðum og
búnaði fyrir sjávarútveg hefur
hins vegar að mestu staðið í stað.
Augu manna á Grænlandi
Innan Sjávarklasans starfar flutn-
inga- og hafnahópur átján fyrir-
tækja á sviði flutninga, samgangna,
hafnastarfsemi. Stefna hópsins
skilgreinir aukið samstarf fyrir-
tækjanna við Grænlendinga meðal
forgangsverkefna. Hópurinn hefur
í því augnamiði hafið samstarf
við danska olíu- og gasklasann
Offshoreenergy um að auka tengsl
danskra, grænlenskra og íslenskra
fyrirtækja varðandi leit og vinnslu
á olíu og gasi á Grænlandi.
Haukur Már telur að framtíðar-
tækifæri íslensks atvinnulífs séu
mikil á Grænlandi. Kannski sé
jafnvel um einn stærsta vaxtar-
broddinn af þeim öllum að ræða.
„Allar vísbendingar eru um að
innan stórs hluta útflutningsfyr-
irtækja landsins er stefnan sett á
aukin Grænlandsviðskipti. Í ljósi
þess hlýtur gerð fríverslunar-
samnings að vera forgangsverk-
efni,“ segir Haukur Már.
Raunar
er Ísland eina
landið í heim-
inum sem
býður upp á
reglubundna
flutninga til
allra landa sem teljast til
norðurslóða.
Haukur Már Gestsson
hagfræðingur hjá ÍS
Fríverslunarsamningur er nauðsyn
Ísland hefur forskot á aðrar þjóðir norðurslóða þar sem frá Íslandi eru boðnir reglulegir flutningar til allra þeirra landa sem tilheyra þeim
hópi. Útflutningur héðan til Grænlands hefur fimmfaldast á tíu árum. Stór hluti íslenskra útflutningsfyrirtækja horfir til Grænlands.
Í HÖFN Danska fyrirtækið Royal Arctic Line annast nær alla flutninga til Grænlands. Myndin er tekin við höfnina í Tasiilaq við
austurströnd Grænlands. Skipið Irena Arctica affermir vörur, þar á meðal jólatré. MYND/CARL SKOU– KUUMMIUT.COM
Í skýrslu Sjávarklasans er það metið sem forgangsatriði að fríverslunarsamningur verði gerður við Grænlendinga
og stjórnvöld hvött til þess að beita sér fyrir slíkri samningsgerð. Nokkrir samningar eru í gildi á milli landanna
sem ætlað er að draga úr viðskiptahömlum. Grænlendingar hafa hins vegar takmörkuð tækifæri til að gera þjóð-
réttarsamninga og heilt yfir er aðkoma danskra stjórnvalda að slíkri samningsgerð skilyrði. Litið er til Hoyvíkur-
samningsins milli Íslands, Danmerkur og Færeyja sem er víðtækasti fríverslunarsamningur sem Ísland hefur gert.
Grænlendingar hafa fylgst með framkvæmd hans frá fyrsta degi og það metið svo af Sjávarklasanum að upplagt sé
að ganga til samninga við Grænlendinga á þeim grunni.
➜ Fríverslunarsamningur forgangsverkefni
Þó að viðskipti Íslands og Grænlands spanni nú breitt svið eru þau miklu umfangsminni en þau væru ef hag-
kvæmni réði ferð. Vegna mikilla ítaka Dana á Grænlandi er það því miður sjaldnast raunin. Til marks um það nægir
að nefna að skipafélagið Royal Arctic Line hefur einkaleyfi á skipaferðum til, frá og innan Grænlands til ársins
2022. Í Álaborg í Danmörku er starfrækt vöruflutningamiðstöð fyrir Grænland og þangað fara næstum allar vörur
áður en þær eru sendar til Grænlands. Yfir 85% af öllum innfluttum vörum til Grænlands koma frá Danmörku.
➜ Einokun Dana skekkir samkeppnisstöðu
FLUTNINGSLEIÐIR ÍSLENSKRA FYRIRTÆKJA Á NORÐURSLÓÐUM
Alaska
Kan
ada
(To
ront
o, H
alifa
x)
Rússland (St. Pétursborg)Noregur (3 borgir)
Finnland (Helsinki)
Svíþjóð
Græ
nlan
d
(Nuu
k)
No
reg
ur
(þ.m
.t n
orð
ur)
Rússland
(Murmansk)
Noregur (Fredrikstad)
Svíþjóð (Helsingborg)
Áætlunarfl ug Áætlunarsiglingar
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is