Fréttablaðið - 16.12.2013, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 16. desember 2013 | SKOÐUN | 17
... opnar í Borgartúni
og býður lausasölulyf
á góðum kjörum!
Borgar Apótek | Borgartúni 28, 105 Reykjavík | sími 553-8331
399 kr.
Að tengjast Evrópu með
1.200 km rafstreng, sem yrði
vafalaust lengsti rafstrengur
í heiminum, er svolítið sér-
íslenskt. Íslendingum leiðist
ekki að framkvæma eitthvað
á heimsmælikvarða, og við
eigum auðvelt með að sann-
færa hvert annað um að við
séum fremst og best í heim-
inum.
Bitur reynsla okkar síð-
astliðin ár hefur kennt okkur að stíga
varlega til jarðar þegar sérfræðing-
ar koma fram á sjónarsviðið með
Excel-skjölin og reyna að sannfæra
okkur um auðfenginn gróða. Áætl-
aður stofnkostnaður við lagningu
sæstrengs er þrjú til fimm hundr-
uð milljarðar. Raforkusala upp á
eitt þúsund MW hljómar ekki flókið
reikningsdæmi, og ætti að vera auð-
velt að slá tölurnar inn í Excel. Hætt-
an er hins vegar sú að auðvelt er að
slá inn tölur í reikningsformúlu sem
gefa ákjósanlega niðurstöðu!
Til að átta sig á umfanginu á þús-
und MW, þá má geta þess að upp-
sett afl Kárahnjúkavirkjunar er 690
MW, og samanlagt uppsett afl allra
raforkuvera á Íslandi er 2.700 MW.
Það er því augljóst mál að slík teng-
ing við raforkumarkað Evrópu mun
auka verulega þrýsting á fleiri virkj-
anir hér á landi. Við þurf-
um því að gera það upp við
okkur hvort við ætlum að
fara út í stórfelldar virkj-
unarframkvæmdir til að
byggja upp iðnað í Evrópu
með tilheyrandi línulögn-
um um sveitir landsins. Allt
tal um sæstreng upp á 500
milljarða til þess eins að
flytja út afgangsorku í kerf-
inu upp á 150 MW er því
blekking ein.
Forgangsmál
Í nýlegri skýrslu sem iðnaðarráð-
herra lagði fram á Alþingi segir orð-
rétt:
„Augljóst má telja að raforkuverð
til heimila og smærri fyrirtækja
mun hækka og þar af leiðandi muni
draga úr afkomumöguleikum sprota-
fyrirtækja og annarra fyrirtækja,
svo sem örfyrirtækja í smærri
byggðum.“
Frá sjónarhóli græna hagkerfis-
ins virðist einnig liggja beinna við
að sú orka, sem annars væri seld úr
landi, væri þess í stað nýtt til að gera
Ísland óháðara innflutningi eldsneyt-
is. Þar með væri hugmyndin komin
í andstöðu við áherslur græns hag-
kerfis um uppbyggingu grænna
starfa innanlands, auk þess sem
nýting raforku til fjölþættrar fram-
leiðslu innanlands hefur fljótt á litið
burði til að skapa meiri arð fyrir
þjóðarbúið en útflutningur sömu
orku til nýtingar erlendis.
Eftir lestur skýrslunnar tel ég
það forgangsmál að verja strax fjár-
munum í að klára að rafvæða Ísland,
leggja þriggja fasa rafmagn í dreif-
býli landsins, og gera bændum og
smærri fyrirtækjum kost á því að
tæknivæða sinn eigin atvinnurekst-
ur, sem mun auka nýtingu á öðrum
auðlindum landsins.
Mikil vakning hefur orðið í full-
vinnslu á sjávarafla og rafvæðingu
í loðnubræðslum landsins sem eru
að skipta úr olíu yfir í rafmagn. Það
skýtur því skökku við ef við ætlum
að rjúka í að flytja út rafmagn, í
stað þess að nýta það til verðmæta-
sköpunar hér heima.
Sum sveitarfélög hafa sett það í
sína auðlindastefnu að nýta skuli
ákveðið hlutfall af nýtanlegri orku í
viðkomandi sveitarfélögum til upp-
byggingar í heimabyggð. Við alþing-
ismenn ættum að taka þau til fyrir-
myndar og hugsa þannig á landsvísu.
Evrópusamband um sæstreng
ORKUMÁL
Páll J. Pálsson
alþingismaður
Þeir sem staðið hafa á
Stórhöfða í Vestmanna-
eyjum í tólf gömlum
vindstigum að suðaust-
an vita að það þýðir ekki
að tala við fólk beint upp
í þannig bálviðri. Orðin
feykjast bara aftur fyrir
mann. Núna vona ég að
það sé lag til að segja þó
ekki væri nema þetta:
Það er ekki verið að
leggja niður Rás 1. Það er ekki
verið að rífa hana á hol. Það er
ekki verið að slökkva á menn-
ingarvitanum. Það er heldur
ekki verið að breyta megin-
stofni Rásar 1; inntaki hennar
né eðli. Dagskrárstefna henn-
ar, hlutverk, upplegg og inni-
hald verður áfram hið sama.
Áfram verða flutt útvarps-
leikrit. Áfram verða lesnar
útvarpssögur. Áfram verða
flutt ljóð. Áfram verður útvarp-
að frá tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands. Áfram verður
fjallað um menningar- og sam-
félagsmál í vönduðum þáttum.
Áfram verður flutt tónlist af
öllum stærðum og gerðum frá
öllum heimshornum. Áfram
verða tíndar upp úr gullkistu
Rásar 1 gersemar frá liðnum
tíma til að tengja saman nútíð
og fortíð.
Áfram verða líka fluttar dán-
arfregnir og upplýsingar um
jarðarfarir. Og tilkynningar um
félagsvist á Hólmavík og Rauf-
arhöfn. Og jólakveðjur.
Í stuttu máli: Rás 1 heldur
áfram að vera Íslendingum að
inntaki allt það sem hún hefur
verið þeim í 83 ár. Hún verð-
ur hins vegar að laga sig að
minni fjárráðum, búa sér ódýr-
ari umgjörð og spjara sig með
færra starfsfólki en áður. Eins
og allir aðrir þættir í starfsemi
Ríkisútvarpsins.
Rás 1
RÍKISÚTVARPIÐ
Páll Magnússon
útvarpsstjóri
Vigdís Hauksdóttir notaði orðið
„rangsannindi“ í umræðum á
Alþingi um daginn. Væntanlega
hefur slegið saman hjá henni
saman orðunum „ósannindi“ og
„rangfærslur“ og hún mismælt
sig svona skemmtilega, eins og
vill henda hjá fólki í líflegum tjá-
skiptum. Þetta er vissulega arg-
asta þversögn – hvernig geta sann-
indi verið röng? En samt sem áður
– eða kannski einmitt þess vegna –
finnst manni þetta skringilega orð
einmitt tjá vel ástandið um þessar
mundir.
Rangsannindi I
Mjólkursamsalan notar írskt
smjör í alíslenska framleiðslu sína.
Höfuðforsenda þess að okkur neyt-
endum er gert að kaupa íslenskar
mjólkurvörur er raunar sú meinta
hætta sem sögð er stafa af inn-
fluttum landbúnaðarafurðum.
Okkur er talin trú um að í húfi sé
heill og hamingja íslensku kýr-
innar og allir hennar margbrotnu
magar – og gott ef við fáum ekki
öll hreinlega gin- og klaufaveiki ef
við leggjum okkur útlenskan mat til
munns. Spornað er við þessari vá
með ofurtollum, væntanlega sam-
kvæmt þeirri frumlegu hugmynd
að sýkingarhættan fari minnkandi
með hækkandi verði. Sýkingarhætt-
an virðist einnig bundin við vöru-
merkið. Hún hverfur ef varning-
urinn er merktur MS eða íslensku
kjúklingabúi, en eins og kunnugt er
hafa útlenskir kjúklingar verið hér
á boðstólum sem íslenskir væru.
„Bara ef lúsin íslensk er / er þér
bitið sómi“, orti Hannes Hafstein.
Rangsannindi kynni annar að segja:
sú staðreynd að sjúkdómavarnir eru
nauðsynlegar er notuð til að draga
taum innlendra matvælaframleið-
enda sem ekki hafa síður orðið upp-
vísir að því að bjóða upp á sýkta
vöru og fara illa með sitt búfé. Tals-
maður íslensks landbúnaðar, Guðni
Ágústsson, svaraði fyrir þessi mál
í fréttum ríkisútvarpsins og var að
vanda ljóðrænn og skemmtilegur:
„Við elskum íslenska smjörið, það
er gult …“ sagði hann og þar með
var málið útrætt. Sjálfur verð ég að
gera þá játningu að ég elska íslenskt
smjör ekki baun – hata það ekki
heldur – á ekki í neins konar tilfinn-
ingalegu sambandi við það en vildi
gjarnan fá að kaupa svolítið ódýr-
ari mat en gefst hér í landi einok-
unarrisanna sem mata mig daglega
á rangsannindum.
Rangsannindi 2
IPA-málið hans Gunnars Braga
er af svipuðum toga. Þar er allt
svo öfugsnúið að það hvarflar að
manni að lesa skammstöfunina
afturábak. Þetta eru styrkir Evr-
ópusambandsins til ríkja sem eru
í aðildarviðræðum við sambandið,
til að hjálpa ríkjunum við að inn-
leiða kostnaðarsamar umbætur á
þjóðþrifasviðum á borð við mat-
vælaeftirlit, náttúrufarsrannsókn-
ir, menntamál og fleira, þar sem
ESB heldur uppi merkinu og er til
marks um margvíslegan ávinning
sem myndi verða af aðild.
Þeir sem andvígir eru fullri
aðild að ESB, en vilja hornrekur
vera, í svokölluðu EES-samstarfi,
hafa nú fengið því framgengt, að
aðildarviðræðum sem stóðu í tíð
síðustu ríkisstjórnar hefur verið
hætt. Samninganefndin íslenska
hefur verið leyst upp, og þeim
samningamönnum evrópskum sem
haft hafa fyrir því að setja sig inn í
íslensk sérmál gert ljóst að Íslend-
ingar líti til annarra átta. Sjálfur
notaði Gunnar Bragi margsinnis
þau orð um IPA-styrkina, að þeir
væri glerperlur og eldvatn, og sótti
þá líkingu til Ögmundar Jónasson-
ar, þar sem hann reis lægst í sínum
málflutningi; með öðrum orðum,
einskis nýtt glingur til þess að
slá ryki í augun á ölóðum nátt-
úrubörnum. Þegar ný ríkisstjórn
Íslands hefur margítrekað að þess-
um aðildarviðræðum sé hætt og
að ekki sé ætlunin að standa við
kosningaloforð um þjóðaratkvæða-
greiðslu um framhald viðræðn-
anna, eru eðlileg viðbrögð hjá ESB
að draga til baka þessa IPA-styrki
svo að hægt sé að nota féð þar sem
þess er þörf, í samræmi við góða
stjórnsýslu. Þá bregður svo við að
glerperlurnar og eldvatnið er orðið
að brýnum nauðsynjum og Gunn-
ar Bragi lætur eins og hafið sé
nýtt Icesave-mál þar sem Íslend-
ingar séu enn sviknir, forsmáðir
og sniðgengnir af óvinaríkjum.
Hann heldur því fram að þó að
aðildarviðræðum hafi verið hætt
og samninganefndin leyst upp þá
séu Íslendingar enn í formlegu
umsóknarferli og þeim beri því að
fá péééninginn.
Rangsannindi.
Rangsannindi 3
Fjárlaganefnd barst á dögunum
minnisblað frá Fjármála- og efna-
hagsráðuneyti. Þar segir í byrjun
að fjármála- og efnahagsráðherra
fari þess á leit „fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar“ að við 2. umræðu
fjárlaga verði gerðar tilteknar
breytingar á fjárlagafrumvarp-
inu. Þar segir í lið 09: „Hámarks-
barnabætur lækki um 3% vegna
forgangsröðunar fjármuna til heil-
brigðismála“ og í næsta lið fyrir
neðan eru sambærileg tilmæli frá
ráðherra fyrir hönd ríkisstjórnar-
innar um 7% lækkun vaxtabóta. Í
kjölfarið talaði téð Vigdís Hauks-
dóttir í fjölmiðlum um yfirvofandi
lækkun barnabóta, sagði að vinstri
menn vildu gera fólk háð bótum og
vitnaði í Margréti Thatcher um að
sósíalismi væri að eyða peningum
annarra. Þessi áform vöktu mik-
inn úlfaþyt, svo sem vænta má.
En þegar Helgi Hjörvar spurði
Sigmund Davíð Gunnlaugsson for-
sætisráðherra út í þetta brást hann
ókvæða við – sagði þetta tilhæfu-
lausar getgátur og ekki stæði til
að lækka barnabæturnar. Af bréfi
fjármálaráðuneytisins má hins
vegar ráða að ríkisstjórnin hugðist
lækka barnabætur og Sigmundur
Davíð sagði ósatt þegar hann neit-
aði því í svari sínu til Alþingis að
það hefði staðið til.
Eða fór að minnsta kosti með
rangsannindi.
Rangsannindi
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Af bréfi fjármála-
ráðuneytisins
má hins vegar ráða að
ríkisstjórnin hugðist lækka
barnabætur og Sigmundur
Davíð sagði ósatt þegar
hann neitaði því í svari sínu.
➜ Rás 1 heldur áfram
að vera Íslendingum
að inntaki allt það
sem hún hefur verið
þeim í 83 ár. Hún
verður hins vegar
að laga sig að minni
fjárráðum, búa sér
ódýrari umgjörð og
➜ Bitur reynsla okkar síð-
astliðin ár hefur kennt okkur
að stíga varlega til jarðar
spjara sig með færra starfs-
fólki en áður.