Fréttablaðið - 16.12.2013, Qupperneq 20
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÉTUR JÓHANNSSON
Lindarbraut 10, Seltjarnarnesi,
lést á Landakotsspítala föstudaginn 6.
desember. Útför hans fer fram
frá Seltjarnarneskirkju, miðvikudaginn
18. desember kl. 15.00. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Kristín M. Guðmundsdóttir
Auður Pétursdóttir
Jóhann Pétursson Margrét Lilja Magnúsdóttir
Brynja Pétursdóttir
Baldvin Búi Wernersson
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐLAUG LILLÝ ÁGÚSTSDÓTTIR
lyfjafræðingur úr Hafnafirði,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð
á Akureyri mánudaginn 2. desember.Útför hennar fer fram frá
Fríkirkjunni í Hafnarfirði, miðvikudaginn 18. desember kl 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á líknarfélög.
Gunnar Einarsson Guðrún S. Kristjánsdóttir
Hjörleifur Einarsson Sigurbjörg Sigurðardóttir
Þóra Einarsdóttir Rúnar Garðarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
KARÍTAS KRISTJÁNSDÓTTIR
hjúkrunarfræðingur,
lést að heimili sínu föstudaginn 6. desember.
Jarðarförin fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn
17. desember kl. 13.
Kári Sigurbergsson
Kristján Kárason Hrafnhildur Soffía Guðbjörnsdóttir
Sigurbergur Kárason Guðrún Jónasdóttir
Hrafnkell Kárason Brynhildur Ingvarsdóttir
Ásdís Káradóttir Arnar Þór Másson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
STEINÞÓRA ÞÓRISDÓTTIR
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
sunnudaginn 8. desember.Útförin fer fram
frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 17. desember
kl. 15.00.
Halldóra Halldórsdóttir Adler Jeremy Adler
Anna Birna Halldórsdóttir
MERKISATBURÐIR
1653 Oliver Crom-
well varð einvald-
ur yfir enska sam-
veldinu.
1809 Napóleon
Bonaparte skildi
við eiginkonu sína,
Jósefínu.
1853 Alls brunnu
530 byggingar í
stórbruna í New
York.
1905 Fyrsta eintak
af tímaritinu Var-
iety kom út.
1912 Fyrsta frí-
merkið með mynd
af flugvél á var
gefið út í Banda-
ríkjunum.
1916 Munkurinn
Gregory Raspútín var myrtur.
1972 Miami Dolphins varð fyrsta liðið í NFL-deildinni til þess
að fara taplaust í gegnum heilt tímabil.
1980 Harland Sanders, stofnandi KFC-veitingakeðjunnar, dó
níræður að aldri.
2009 Stjörnufræðingar fundu plánetuna GJ1214b sem er fyrsta
plánetan sem fundist hefur þar sem vatn gæti fundist.
OLIVER CROMWELL varð einvaldur yfir
enska samveldinu þennan dag 1653.
„Þetta er þriðja og síðasta línan þar
sem ég sæki innblástur til fugla. Ég
loka hringnum með hrafninum,“ segir
Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir skartgripa-
hönnuður, sem kynnti fyrir helgi þriðju
og síðustu skartgripalínuna þar sem
fuglar eru innblástur.
Að þessu sinni er hrafninn innblást-
ur Guðbjargar, en áður hafa fálkinn og
svanurinn veitt henni andagift. Hún
segir hrafninn vera spennandi umfjöll-
unarefni í skartgripahönnun.
„Hrafninn er mjög glysgjarn. Yfir-
leitt finnst ýmislegt glingur í hreiðri
hrafnsins. Þessi lína er öðruvísi en
hinar tvær, ég nota mikið svarta litinn
í bland við gullið – mikið af steinum.“
Guðbjörg er Ísfirðingur og eyðir
miklum tíma nálægt heimaslóðunum
og fær hún margar hugmyndir þar.
„Við eigum bústað við Ísafjarðardjúp.
Hugmyndir mínar kvikna oft þegar ég
er í náttúrunni. Mér finnst mjög gott að
vera fyrir vestan.“
Sem ung stúlka á Ísafirði hafði Guð-
björg ekki hugmynd um að hún myndi
leggja skartgripahönnun fyrir sig.
„Ég fór í skiptinám til Bandaríkjanna
þegar ég var átján ára gömul. Ég hafði
ekki ferðast mikið þá, en inni í mér
blundaði ævintýraþrá og því fór ég út.“
Þar kynntist Guðbjörg framtíðarstarf-
inu í bandarískum framhaldsskóla.
Hún kom heim staðráðin í því að leggja
fyrir sig skartgripahönnun.
„Ég flutti til Danmerkur og lærði
gullsmíði og skartgripahönnun. Þegar
ég kom heim opnaði ég svo verslunina
Aurum. Það var árið 1999 og er ég því
búin að vera í þessum rekstri
í bráðum 15 ár. Við byrjuðum
smátt en árið 2003 fengum við
tækifæri að stækka við okkur.
Við fluttum í Bankastrætið og
erum þar enn. Við vorum svo
heppin árið 2009 að geta stækk-
að búðina enn frekar þegar
önnur búð lokaði og bættum þá
við hönnunarbúð,“ segir Guð-
björg. kjartanatli@frettabladid.is
Hrafninn lokar þríleiknum
Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir skartgripahönnuður kynnir nýja línu. Hugmyndirnar fæðast
gjarnan í Ísafj arðardjúpi. Glysgjarnir hrafnar eru innblástur Guðbjargar að þessu sinni.
SVART OG
GYLLT Guð-
björg notar
mikið svartan
lit og gullhúðin
er ekki langt
undan, enda
hrafninn glys-
gjarn.
ILMVATN
Guðbjörg kynn-
ir líka til leiks
ilmvatn sem
fylgir línunni.
Þennan dag árið 1961 hófst sjö leikja
hrina þar sem Wilt Chamberlain körfu-
knattleiksmaður skoraði 50 stig eða
meira í einum leik í NBA-deildinni. Þetta
er met sem stendur enn. Hann var þá
leikmaður Philadelphia Warriors, en
liðið er nú komið til San Fransisco og
liðið í Fíladelfíuborg heitir nú 76ers.
Tímabilið frá 1961 til 1962 var ótrúlegt
fyrir Chamberlain. Hann skoraði 50,4
stig að meðaltali í leik. Það er met í sögu
NBA, sá sem næst því hefur komist er
Elgin Baylor, sem skoraði 38,3 stig, sem
var sama tímabil. Chamberlain er eini
leikmaðurinn í sögu NBA sem skorað
hefur yfir 100 stig í einum leik. Hann
gerði garðinn frægan með Los Angeles
Lakers þar sem hann lék frá 1968 til
1973. Hann hóf atvinnumannaferil sinn
með Harlem Globetrotters en lék með liði
Kansasháskóla í háskóladeild bandaríska
körfuboltans.
MIÐHERJINN WILT CHAMBERLAIN SETTI MET Í STIGASKORUN SEM STENDUR ENN:
Skoraði yfi r 50 stig í sjö leikjum í röð
ÓSTÖÐVANDI
Wilt Chamber-
lain var illvið-
ráðanlegur í
NBA-deildinni
á sínum tíma.
ILMKERTI Guðbjörg fékk franska fyrirtækið
Paris Popup til þess að framleiða ilmkerti.
BANDARÍKIN
SKIPTU MÁLI
Guðbjörg kynntist
ævistarfinu fyrst í
Bandaríkjunum sem
skiptinemi.