Fréttablaðið - 16.12.2013, Qupperneq 24
FÓLK|JÓLIN
Konur koma til mín eftir að hafa prófað allt mögulegt og ég finn út með þeim hvað
hentar þeirra sérstaka líkama,
hjálpa þeim að léttast og finna
þyngd sem líkama þeirra líður vel í,“
segir Júlía sem af ástríðu og áhuga
gerðist heilsumarkþjálfi við nám í
næringarfræðiskólanum Integrative
Nutrition.
„Ég hafði ekki hugmynd um að ég
myndi verða heilsumarkþjálfi en en
eitt leiddi af öðru og einn daginn
spurði vinkona mín: „Vilt þú vera
heilsuþjálfinn minn?“ Ég svaraði því
játandi, ákvað að prófa og þegar
vinkonan fór fram úr væntingum
sínum með þyngdartap, orku og
vellíðan ákvað ég að halda áfram,“
útskýrir Júlía sem í starfi sínu nýtur
þess að hjálpa konum við að ná
eðlilegu þyngdartapi, meiri orku og
betra hormónajafnvægi með heilsu-
markþjálfun hjá Lifðu til fulls.
„Heilsumarkþjálfun er lífsstíls-
breyting til frambúðar. Öll erum
við misjöfn og það sem virkar fyrir
einn þarf ekki endilega að virka
fyrir þann næsta. Þyngdartap er
stór ávinningur heilsumarkþjálfunar
og betri líðan í eigin skinni. Þegar
borðuð er hrein fæða og fullkomn-
ari næring eykst almenn vellíðan og
orka og líkaminn hættir að krefjast
skyndibita og sykurs. Þessu fylgir
aukið sjálfstraust, verkjaminni eða
verkjalaus líkami, betra jafnvægi
á líkama og sál og meiri lífsgæði,“
upplýsir Júlía sem kennir skjólstæð-
ingum sínum að njóta lífs og líka
sætinda með réttu fæðuvali.
„Jólasmákökurnar hafa fá inni-
haldsefni og því auðvelt fyrir líkam-
ann að melta þær og brjóta niður.
Þær eru lausar við algengar ofnæm-
isvaldandi fæðutegundir eins og
glúten, egg, mjólkurvörur og sykur.
Margir eru með viðkvæmni eða óþol
fyrir þeim án þess að vita af því og
það getur valdið baráttu við auka-
kílóin. Með því að velja matvæli sem
eru laus við þessar fæðutegundir
eykst þyngdartap í stað þess að úr
verði þyngdaraukning eins og hvítt
hveiti, sykur og mjólkurvörur gera
flestum.“
Í smákökum Júlíu er næringar-
ríkt möndlumjöl og möndlumjólk.
„Möndlur eru kolvetnalágar en
háar í prótíni og fitu sem styður við
þyngdartap. Möndlur halda blóð-
sykri líka í skefjum og gefa andox-
unarefni sem styðja við hreinsun
líkamans,“ segir Júlía um sannkallað
heilsugóðgæti sitt.
Á www.lifdutilfulls.is er hægt að
skrá sig á ókeypis fjarnámskeið hjá
Júlíu og fá fría rafræna uppskrifta-
bók með dýrindis eftirréttum og
sætindum.
SÚKKULAÐIBITAKÖKUR SEM ÞÚ
TRÚIR VARLA AÐ SÉU HOLLAR
1 bolli glútenlausir hafrar, malaðir
1 1/4 bolli möndlumjöl
1/2 tsk. matarsódi
1/2 tsk. vínsteinslyftiduft
1/2 tsk. salt
1/2 bolli ólífuolía
1/2 bolli hunang (má einnig nota hun-
ang og agave/hlynsíróp til helminga)
1 tsk. vanilludropar
1/2 bolli lífrænt 70% súkkulaði eða
dekkra
Malið hafrana í matvinnsluvél eða
blandara þar til úr verður hveitiáferð.
Sameinið olíu, hunang og vanilludropa í
litla skál. Sameinið möndlumjöl, malaða
hafra, matarsóda og lyftiduft í stóra
skál. Sameinið blautu blönduna í litlu
skálinni við þurrefnin í stóru skálinni og
hrærið saman með sleif. Bættu við söx-
uðu súkkulaði. Takið deigið með mat-
skeið og setjið á bökunarpappír. Hafið
hverja köku um 4 cm með því að dreifa
aðeins úr þeim með blautum fingrum
og hafið 4 cm á milli þeirra. Bakið við
180°C í 12-15 mín. og slökkvið þá á ofn-
inum. Látið kökurnar bíða í ofninum í um
7-10 mínútur áður en þær eru fjarlægðar
úr ofninum. Látið kólna. Bestar með
kaldri möndlumjólk!
HOLLAR OG SÆTAR
JÓLAGOTT Júlía Magnúsdóttir er heilsumarkþjálfi sem veit fyrir víst að vel er
hægt að njóta sætinda og vellystinga jóla með matarást og góðri samvisku.
1. Sjö til átta tíma svefn
Þreytt sækjum við frekar í sætubita yfir
daginn. Þá erum við einnig gjörn á að af-
kasta minna þar sem hugur okkar er ekki
við efnið. Sjö til átta tíma nætursvefn er lyk-
ill að betra skapi, einbeitingu og jafnvægi í
matarlöngun.
2.Hreyfing í tíu mínútur að
morgni
Kröftug öndun fyrir morgunmat gefur meiri
orku yfir daginn, róar taugakerfið og kemur
brennslu betur af stað. Prófaðu æfingar
með kröftugri öndun í tíu mínútur og sjáðu
hvernig þér líður yfir daginn.
3.Andaðu á meðan þú borðar
Í jólastressi grípum við stundum næsta bita
án þess að stoppa en það tekur líkamann
20 mínútur að gefa heilanum merki um að
hann sé saddur! Settu því hnífapörin niður
eftir fimm bita og dragðu andann á meðan
þú borðar. Það bætir meltingu og upptöku
næringarefna.
4. Drekktu nóg af vatni
Vatn er ótrúlega mikilvægt fyrir líkamann,
það bætir meltingu, skýrleika og fókus og
styður við þyngdartap og flutning úrgangs-
efna úr líkamanum.
JÓLAHEILRÆÐI JÚLÍU
Skráðu bílinn FRÍTT hjá okkur!
Við SELJUM bílinn þinn!
30.000
fréttaþyrstir
notendur
Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu
blaðið hvar sem er og hvenær sem er
Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjallsímann
með Fréttablaðsappinu. Sláðu inn Fréttablaðið á Google
Play, Windows store eða í App store og náðu í appið.
SÆLKERI Júlía getur
varla beðið eftir jól-
unum. „Jólamaturinn
verður hrein kalkúna-
bringa, villisveppasósa
með kókosmjólk, bökuð
sætkartöflustappa
með pecan-hnetum,
ferskt grænt salat,
hrátt rauðrófusalat og
epla-waldorf-salat með
kasjúhneturjóma.”
MYND/GVA