Fréttablaðið - 16.12.2013, Síða 28
„Hér er komið hið veglegasta
verk og afar fróðlegt“
(mbl.is)
„merkasta rit ársins“
(jonas.is)
Bókinni fylgir hljómdiskur
með fjölbreyttu efni.
Þetta er ný saga þessa tímabils,
vandaðri og skilmerkilegri
en áður hefur komið fram.
Nauðsynleg lesning um
mikinn umbrotatíma
í sögu Evrópu og Íslands.
Heimsþekktur
rithöfundur
og mikilvirkur
fræðimaður beitir
hárbeittu stílvopni
sínu til að leiða
fram nauðsyn þess
að taka hið forna
kvæði Bjólfskviðu
til nýrrar skoðunar.
Er kvikmyndin
listgrein eða afþreying?
Í hverju felast
listrænir eiginleikar
kvikmyndarinnar?
Hér er glímt við
spurningar af þessum
toga af fágætri
skarpskyggni.
Grikkland alla tíð hefur að geyma
íslenskar þýðingar á grískum
textum frá tímum Hómers til okkar
daga. Hér leggja margir ástsælustu
þýðendur þjóðarinnar hönd á plóg.
Bókinni fylgir hljómdiskur með
upplestri Kristjáns Árnasonar
bókmenntafræðings á Ilíonskviðu.
Stíll og bragur fjallar um þau
margslungnu lögmál sem stýra
formi íslenskra bókmennta,
bundins máls og óbundins, allt
frá dróttkvæðum og eddukvæðum
fram til dægurlagatexta nútímans.
Mælskufræði, skáldskaparfræði og
stílfræði. Kristján Árnason, mál-
fræðingur og prófessor í íslensku,
er höfundur þessa mikla og
gagnlega verks.
Lærdómsrit
Bókmenntafélagsins
eru nú að tölu.86
Ný öndvegisrit
Stórbrotið sagnfræðirit
Kaupmannahöfn við Eyrarsund var höfuðborg
Íslands í nærfellt fimm aldir, frá því á 15. öld og
til 1. desember 1918. Saga Kaupmannahafnar sem
höfuðborgar Íslands hefur aldrei fyrr verið sögð í heild.
Hér rekja sagnfræðingarnir Guðjón Friðriksson og
Jón Þ. Þór þessa sögu í tveimur veglegum bindum.
Kaupmannahöfn var miðstöð viðskipta Íslendinga og
stjórnsýslu og þaðan bárust margvísleg menningar-
áhrif sem höfðu mikil og langvinn áhrif á íslenska
þjóðmenningu og daglegt líf Íslendinga.
Sagan er sögð á ljósan og skilmerkilegan hátt og margt
kemur hér fram sem áhugafólki um sögu Íslands og
Danmerkur mun þykja fengur að.
Um 1200 myndir prýða bækurnar.