Fréttablaðið - 16.12.2013, Page 41
MÁNUDAGUR 16. desember 2013 | MENNING | 25
TÓNLIST ★★★ ★★
Tengsl: Kammerverk eftir
Hjálmar H. Ragnarsson
Geisladiskur
ÚTG. SMEKKLEYSA
Fyrsta lag eða verk á geisladiski
er á vissan hátt það mikilvægasta.
Það er einskonar andlit disksins og
gefur forsmekk að því sem koma
skal. Upplifunin af því ræður
miklu um það hvort hlustandinn
hafi yfirleitt áhuga á að heyra
meira.
Ég er á því að geisladiskur með
kammerverkum eftir Hjálmar H.
Ragnarsson sé að þessu leyti illa
skipulagður. Fyrsta verkið hefði
átt að vera seinna á dagskránni,
Adagio fyrir strengjasextett. Það
er fullt af tjáningu, en fjarskalega
drungalegt og stemningin eftir því
fráhrindandi.
Lagaflokkurinn Tengsl við ljóð
eftir Stefán Hörð Grímsson, sem
er næstur, kemur ekki heldur
vel út. Þar er m.a. um að kenna
frammistöðu altsöngkonunnar
Mörtu Hrafnsdóttur, en hún er
ósköp sviplaus. Tilþrif í túlkun
hefðu mátt vera mun kröftugri,
söngurinn snarpari, en þó afslapp-
aðri. Það er eins og Marta sé of
mikið að vanda sig.
Textaframburðurinn er auk
þess óskýr, sem skrifast mögulega
á upptökuna að einhverju leyti.
Svipað vandamál gerir vart við
sig í söng Ólafs Kjartans Sigurð-
arsonar í sex lögum sem á eftir
koma. Hann er venjulega með
skýrmæltari söngvurum. Hins
vegar er túlkun Ólafs að öðru
leyti líflegri og blæbrigðaríkari.
Auðvitað eru lögin sem hann flyt-
ur öðruvísi en hjá Mörtu. Það er
meiri breidd í þeim, tónlistin er
opnari, þótt hún sé ekki meira
aðlaðandi. En Marta hefði samt
getað gert betur.
Að mínu mati hefði síðasta verk-
ið á geisladiskinum átt að vera það
fyrsta, Vókalísa fyrir mezzósópr-
an, fiðlu og píanó. Það er „erótísk
sumarmúsík“ eins og henni er lýst
í meðfylgjandi bæklingi. Stemn-
ingin er suðræn, full af munúðar-
fullum hljómum og sjarma. Guð-
rún Jóhanna Ólafsdóttir syngur
vel, röddin er tær, rétta tilfinn-
ingin til staðar.
Hið akademíska Movement fyrir
strengjakvartett, hið elsta á disk-
inum, hefði líka átt að vera fram-
ar (það er næst síðast). Tónmálið
er agaðra, yfir því er ferskleiki.
Hann er þægileg tilbreyting frá
öllum myrku tilfinningunum sem
annars gegnsýra geisladiskinn.
Fyrir utan söngvarana sem hér
hafa verið nefndir leika hljóðfæra-
leikarar úr Kammersveit Reykja-
víkur. Flutningurinn er hvarvetna
til fyrirmyndar, samstilltur og
hreinn. En líka dökkur og þungur,
rétt eins og tormelt tónlistin sjálf.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Erfið tónlist sem hefði
mátt gera meira aðlaðandi með annar-
ri uppröðun. Söngurinn er misjafn, en
hljóðfæraleikurinn góður.
Hið síðasta hefði átt að vera fyrst
TÓNLIST ★★★★ ★
Vincent d‘Indy:
Hljómsveitarverk
Geisladiskur
ÚTG. CHANDOS
Schola cantorum er ekki bara
nafnið á íslenskum kór, heldur
líka tónlistarskóla í París. Hann
var stofnaður í lok 19. aldarinn-
ar og þangað sótti margt merkis-
fólk menntun, eins og Erik Satie.
Vincent nokkur d‘Indy var einn
af stofnendum skólans. Skólinn
lifir góðu lífi í dag, en sömu sögu
er ekki að segja um tónsmíðar
d‘Indys. Stjórnandinn Rumon
Gamba ásamt Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands ætlar sér greini-
lega að breyta því. Nýlega kom út
fimmti geisladiskurinn í heildar-
útgáfu hljómsveitarverka d‘Indys
með Sinfóníunni.
Þetta framtak hefur vakið
nokkra athygli í tónlistarheim-
inum. D‘Indy var ekki endilega
frumlegasta tónskáld síns tíma.
En tónlist hans er engu að síður
falleg, fíngerð eins og svo margt
franskt. Hún er líka glæsileg, oft
undir áhrifum Wagners og jafn-
vel Liszts. Hún á ekki skilið að
gleymast.
Á fimmta geisladiskinum leik-
ur kanadíski píanóleikarinn
Louis Lortie einleik í sinfóníu
op. 25 sem er eins konar píanó-
konsert. Það þýðir að hlutverk
píanóleikarans er mikilvægt, en
þó ekki eins sjálfstætt og venju-
lega. Í píanókonsert er einleiks-
hljóðfærið og hljómsveitin oft
eins og andstæðingar sem tak-
ast á með tilheyrandi spennu. Í
þessu verki er píanóið hins vegar
hluti af heildinni og Lortie spilar
fallega, án þess að trana sér of
mikið fram. Túlkunin er lifandi
en fáguð, kraftmikil en öguð.
Hún er alveg eins og hún á að
vera.
Í það heila er geisladiskur-
inn hrífandi, tónlistin er full af
töfrum, og hljómsveitin spilar af
aðdáunarverðri fagmennsku og
öryggi undir innblásinni stjórn
Rumons Gamba.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Fallegur flutningur
á verkum eftir tónskáld sem aldrei
hefði átt að gleymast.
Gleymt
tónskáld
grafið upp
RUMON GAMBA.