Fréttablaðið - 16.12.2013, Side 42
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Þú gætir eignast
nýjan Spark ef þú drífur
bílinn í skoðun!
Þeir sem koma með bílinn í skoðun fyrir lok dags þ. 22. des.
eiga möguleika að eignast stórglæsilegan Chevrolet Spark
sem verður dreginn út þ. 23. des. 2013.
Aðal iv nningur er s lp u kn unýr Chevrolet Spark árg. 20 14
HAPPDRÆTTI
GÓÐ ÞJÓNUSTAOG HAGSTÆÐ KJÖR Á SKOÐUNUM
Bryndís Björgvinsdóttir rithöfundur
Um „haute bonbon“ eða hánammi
„Þegar maður hefur borðað svona mikið af nammi svona lengi er erfitt að lýsa
upplifun sinni í stuttu máli. Stundum hef ég talað um gott nammi sem „haute bon-
bon“ upp á frönsku eða „alta bellaria“ á latínu – líkt og talað er um „haute cout-
ure“ eða hátísku eða „haute cuisine“ þegar kemur að matargerðarlist. Á íslensku
myndi þá gott nammi kallast hánammi.
Ég hef sérstakan áhuga á samsettu nammi; nammi sem er myndað úr tveimur
eða fleiri nammihráefnum. Eftir mikla nammismökkun um allar heimsins trissur
held ég því blákalt fram að þar séum við Íslendingar framarlega á nammimerinni.
Kúlusúkk og Tromp vitna til um það, sem og nýjasta samsetta afsprengi sælgætis-
verksmiðjunnar Freyju sem er sterkar djúpur. Það er ansi langt gengið hjá Freyju að
blanda saman lakkrís, súkkulaði og salmíakpipar, jafnvel svolítið úrkynjað, en hver
veit nema nammið eigi eftir að ryðja brautina fyrir enn skrautlegri samsetningar.
Ég hef líka verið að kaupa ósamsett nammi en sett það saman sjálf með því að
borða það saman. Sportlakkrís og kókosbollur fara vel saman. Og poppkorn sem
maður fær í bíói og Nóa kropp þótt það hljómi kannski ekki vel. Súrt hlaup eða
sterkur brjóstsykur og karamella eru klassík. Þegar kemur gómsætum samsetn-
ingum luma ég á ýmsum hugmyndum sem sælgætisframleiðendur gætu viljað
heyra. En svo má einnig nefna það – því það gleymist oft í umræðunni um nammi
– að nammi hefur marga kosti og sá veigamesti er kannski að nammi þarf ekki
að elda. Það má alltaf borða „beint úr búð“.“
Íslendingar eru framarlega
á nammimerinni
Fréttablaðið leitaði til Íslendinga sem eru með fágaðan smekk á nammi til að deila ára-
langri reynslu sinni af sælgætisáti með lesendum. Lengi hefur skort upplýsta umræðu
um réttar nammivenjur en nú þarf enginn að hika lengur við nammiát vegna fáfræði.
BRYNDÍS BJÖRGVINSDÓTTIR „Stundum er
gagnlegt að sjá heiminn með nammigler-
augum.“
ÁRMANN REYNISSON Hann vill brýna fyrir lesendum að best sé að
borða konfekt vel til hafður.
KRISTJANA BJÖRG REYNISDÓTTIR Þefar af nammi.
AUÐUR ALFÍFA KETILSDÓTTIR Sátt við nammilausa tilveru.
16. desember 2013 MÁNUDAGUR26 | MENNING |
Ármann Reynisson
vinjettuhöfundur
Konfekt tileinkað vinjettum
„Í tilefni af vinjettuútgáfu minni fékk ég Hafliða Ragnars-
son súkkulaðimeistara til að búa til konfekt. Hann setti saman
konfektmola sem voru í glæsilegum tréöskjum. Í öskjunum
voru molar fyrir hverja árstíð. Ég átti hugmyndina, þannig að
ég hef heldur betur komið nálægt sælgætisgerð. Ég hugsa að
það hafi ekki margir lent í þessu, ef undan eru skildir sælgæt-
isgerðarmenn. Þetta var í fyrsta sinn í mannkynssögunni sem
útbúið hefur verið sérstakt konfekt tileinkað bókmenntagrein.
Ég kem ekkert nálægt sælgætisgerð lengur vegna þess að ég
þarf að passa upp á línurnar. Af því sem ég hef kynnst hér
á landi stendur Hafliði Ragnarsson upp úr hvað varðar sæl-
gætisframleiðslu, auk Ásgeirs í Sandholtsbakaríi. Ástæðan er
sú að þeir nota náttúruleg efni, engin gerviefni eða ensími.
Þeir fá þessi náttúrulegu efni alls staðar að úr heiminum, fá
jafnvel möndlur sendar að utan. Það er ekki sama hvernig
möndlur menn fá og hvaðan menn kaupa þær. Auðvitað er
þeirra sælgæti miklu dýrara en þetta venjulega, en ég lít ekki
við öðru sælgæti í dag. Ég vil taka það fram að ég hef aldrei
verið lakkrísmaður eða svoleiðis. Ég geri í því að þroska
smekk minn. Þegar ég er erlendis legg ég upp úr því að prófa
hágæðaframleiðslu. Það er dapurlegt að horfa upp á það hér
á landi að fólk lætur bjóða sér upp á hvað sem er, sem ég
því miður kalla hálfgert „junk“.“
Kristjana Björg Reynisdóttir
rekstrarstjóri Harlems.
Nammi sameinar fólk
„Það veldur togstreitu í samböndum þegar pör geta ekki
samræmt nammivalið. Ég er mjög heppin að eiga kærasta
sem borðar frekar svipað nammi og ég. En ég á eina vin-
konu sem borðar bara íslenskt nammi. Mér finnst það mjög
skrítið. Hún er mjög fín stelpa, þrátt fyrir þennan brest.
Við höfum ferðast saman og lent í miklum vandræðum með
að samræma nammikaup. Ólíkur nammismekkur tvístr-
ar samt ekki góðum vinum, nammi sameinar fólk frekar.
Þegar maður var lítill var maður mikið að kaupa sér vináttu
með sælgæti, en það er ekki eins skilvirk aðferð á fullorð-
insárum. Lögunin á namminu skiptir máli. Það er skemmti-
legt að borða nammi sem er í laginu eins og spælt egg, en
skrítið að borða nammi í laginu eins og typpi. Svo borða ég
mikinn lakkrís. Mér finnst hann góður. Ég hef gert dauða-
leit að lakkrís í útlöndum án þess að finna neitt og ég skil
ekkert í því. Þetta er greinilega eitthvað mjög íslenskt. Svo
hef ég verið í átaki þar sem ég mátti ekki borða nammi, í
Meistaramánuðinum. Þá hef ég gert mér ferð á Nammibar-
inn til þess að finna lyktina af nammi. Almennt leyfi ég mér
að borða nammi, en get líka alveg sleppt því og ég er í það
minnsta reiðubúin að mæta afleiðingunum.“
Auður Alfífa Ketilsdóttir blaðamaður
Var í dagneyslu sælgætis
„Ég hætti að borða nammi fyrir einu og hálfu ári en ég hef engu
gleymt. Ég hætti því vegna þess að ég var búin að borða nammi
fyrir lífstíð. Við getum sagt að ég hafi verið í dagneyslu sælgætis.
Minn helsti veikleiki var stóri, sterki eldflaugabrjóstsykurinn. Það
má ekki rugla honum saman við brjóstsykurinn sem er rifflaður
og mjór. Á þeim er grundvallarmunur. Á tímabili þurrkaðist þessi
tegund upp á höfuðborgarsvæðinu. Þetta nammi hafði verið til í
Drekanum á Njálsgötu, en svo hættu þeir með nammiborðið. Ástæð-
an fyrir þessum vöruskorti var að flestar sjoppur voru farnar að
kaupa heildarpakka frá einhverjum framleiðendum þar sem þessi
brjóstsykur var ekki til, þannig að nammibarir ollu mér síendur-
teknum vonbrigðum. Þar var alltaf bara einhver meintur sterkur
brjóstsykur. Og ekki reyna að tala við mig um Drakúlabrjóstsykur,
hann reitir mig til reiði. Góður sterkur brjóstsykur er með þykku
saltlakkrísbragði að utan og inni í honum er sterk duftfylling. Ég
vil ekki dæma aðra, en ég skil ekki af hverju Milka-súkkulaðið
selst á Íslandi. Útlenskt súkkulaði er að langmestu leyti vont, nema
það samanstandi aðallega af einhverju öðru en súkkulaði, eins og
Mars og Snickers. Einstakt fyrir íslenskt sælgæti, og því hefur ekki
verið haldið nægilega mikið á lofti sem þjóðmenningu, er þessi ein-
staka lakkrís- og súkkulaðiblanda eins og Draumur og Kúlusúkk, að
ógleymdum lakkrískúlunum frá Nóa. Þær eru sko engar bingókúlur.“