Fréttablaðið - 16.12.2013, Page 46
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 30
BAKÞANKAR
Sögu
Garðarsdóttur
Zakaria er mjög flottur strákur
og ég er rosalega ánægð að við
náðum að grípa hann en hann
ferðast um allan heim vegna
vinnunnar.
Ellen Loftsdóttir
PHILOMENA
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
USA TODAY LOS ANGELES TIMES
THE PLAYLIST
FROZEN 3D 5.30
FROZEN 2D 6
HUNGER GAMES 2 8, 9, 10
FURÐUFUGLAR 2D 6
S.B. - FBL
ÍSL TAL
FROSINN 2D
FROSINN 3D
THE HUNGER GAMES 2
THE HUNGER GAMES 2 LÚXUS
THE COUNCELOR
FURÐUFUGLAR 2D
PIONEER
MANDELA
THE HUNGER GAMES 2
HROSS Í OSS
PIONEER
MANDELA
THE HUNGER GAMES 2
KL. 3.30 - 5.40
KL. 3.30 - 5.40
KL. 6 - 8 - 9
KL. 5 - 8
KL. 8
KL. 3.30 - 5.50
KL. 6 - 8
KL. 10
KL. 6 - 9
Miðasala á: og
KL. 6 - 9
KL. 6 - 9
KL. 6 - 9
KL. 6 - 9
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
YFIR 32.000 MANNS Í AÐSÓ KN!
„Við ætlum að frumsýna nýja tískumynd á
síðu Bast Magazine sem íslensk stúlka, Haf-
rún Alda Karlsdóttir, stendur á bak við en
hún er búsett hér í Kaupmannahöfn,“ segir
stílistinn Ellen Loftsdóttir. Hún og kær-
asti hennar, Þorbjörn Ingason, eru leik-
stjórateymi sem ganga undir nafninu Narvi
Creative og frumsýna nýja tískumynd í dag
en skötuhjúin eru búsett í Kaupmannahöfn,
höfuðstað Danmerkur.
„Við gerðum tískumyndina með einu
stærsta karlmódelinu hér sem heitir Zak-
aria. Hann er búinn að ganga tískupalla hjá
mörgum af stærstu merkjum í heiminum, til
dæmis Tommy Hilfiger. Þessi tískumynd er
ein og hálf mínúta og í henni sýnir Zakaria
haust- og vortísku hjá merkjunum Wood Wod,
Hennes & Mauritz, Carhartt, Norse Projects,
Nike, Soulland og fleirum. Zakaria er mjög
flottur strákur og ég er rosalega ánægð að
við náðum að grípa hann en hann ferðast um
allan heim vegna vinnunnar,“ bætir Ellen við.
Fleiri Íslendingar taka þátt í myndinni.
Tónsmiðurinn og plötusnúðurinn Gísli Galdur
gerði tónlistina og tökumaðurinn Þorsteinn
Magnússon skaut myndina.
Ellen og Þorbjörn hafa framleitt tónlistar-
myndbönd fyrir listamenn á borð við Gus
Gus og Þórunni Antoníu og næsta verkefni
er að taka upp myndband við lagið Hearts
með hljómsveitinni Highlands en hana skipa
tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson og
söngkonan Karin Sveinsdóttir.
„Við skjótum það milli jóla og nýárs og
fáum tvo góða íslenska leikara til að leika
aðalhlutverkin.“
liljakatrin@frettabladid.is
Frumsýna tískumynd með
heitasta karlmódeli Dana
Ellen Loft sdóttir og Þorbjörn Ingason eru leikstjórar sem ganga undir nafninu Narvi Creative. Þau frumsýna
tískumynd í dag á síðu Bast Magazine en næst á dagskrá er tónlistarmyndband með Highlands.
American Idol-stjarnan Kelly
Clarkson mun leika sjálfa sig í
sjónvarpsþættinum Nashville
sem fjallar um líf og störf kántrí-
stjarna.
Kelly tekur að sjálfsögðu lagið
og syngur popplagið Fade Into You
með Mazzy Star. Sam Palladio og
Clare Bowen, sem leika Gunnar
Scott og Scarlett O‘Connor, munu
þenja raddböndin með Kelly.
Hún er ekki fyrsta stórstjarnan
til að landa hlutverki í þáttunum
því Chris Young, Vince Cill, Brant-
ley Gilbert og Brad Paisley eru
meðal tónlistarmanna sem hafa
leikið í Nashville. - lkg
Fær hlutverk
í Nashville
■ One - tískumynd
■ Over með Gus Gus - tónlistarmyndband
■ Andrea Maack Parfums Shot - mynd
■ Nicola Formichetti Short fyrir CCP -
mynd
■ So High með Þórunni Antoníu - tónlistar-
myndband
➜ Verk eftir Narvi Creative
HEPPIN Kelly leikur sjálfa sig í Nash-
ville.
OFURPAR
Ellen og Þor-
björn hafa
í nægu að
snúast.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Save the Children á Íslandi
ÉG veit hvað þú ert að hugsa: ,,Nei, nei,
ekki um jólin!“ En engar áhyggjur, ég er
ekki að skrifa þér til að þrefa og þessu
korti fylgir engin krafa um svör. Jólakort
eru nefnilega þess eðlis að þeim þarf ekki
að svara, svo þú ættir að elska þau. Á hátíð
ljóss og friðar er ekki bara hefð fyrir því
að senda út jólakort heldur líka kærleik og
hugsa til þeirra sem minna mega sín. En
hugurinn ber mann bara hálfa leið. Ef ég
ætla til dæmis á jólahlaðborð í
Perlunni er ekki nóg að hugsa
um laxahlaup, ég verð að
panta borð. Eins þegar ég hugsa
til þeirra sem minna mega sín
þá hugsa ég líka hvað ég get gert
fyrir þau og geri það.
NÓG er um þá sem eiga um sárt
að binda um jólin. Fyrstur kemur
mér í hug Snæfinnur snjókarl sem
er einstæðingur, Adam sem á sjö
syni en ekkert leikskólapláss, sama
hvað hann hann stappar og klappar,
og Andrés sem á að gefa tröllunum.
Þá eru ótaldar allar mæðurnar sem lifa
í ástlausum hjónaböndum og hrekjast í
arma jólasveina sem þær kyssa í skjóli
nætur meðan niðurbrotin börnin fylgjast
með úr fjarska. Já, lífið getur verið mis-
kunnarlaust.
SAMT eru þetta alls ekki þeir sem verst
eru staddir í heimi hér. Allir hér að ofan
eiga það sameiginlegt ásamt árstíðabund-
inni óhamingju að hafa ABC barn í sinni
umsjá og styrkja Rauða krossinn. Þess
vegna hljóðnaði og dimmdi í Davíðsborg
þegar þú og Vigdís tilkynntu að lækka ætti
framlög til þróunarmála um 460 milljón
krónur. Það á að gefa börnum brauð en vel
efnaðir útgerðarmenn, til að mynda, þurfa
síður gjafir og einföld kolvetni. Það er
afspyrnu lítið jólalegt að taka eitthvað frá
þeim sem minnst mega sín og gefa öðrum
betur stöddum það að gjöf. Þú kannast við
jólaköttinn, Sigmundur. Við erum ekki að
fara í hann og ef einhver er í aðstöðu til að
færa stórar hugsanir í göfug verk þá ert
það þú. Þú getur gefið gimsteina, perlur og
gullsveig um enni – ef þú nennir!
P.S. Ég keypti 10 þúsund vatnshreinsitöfl-
ur frá UNICEF í þínu nafni og 150 pakka
af næringarríkri fæðu í nafni Vigdísar
vinkonu þinnar.
Gleðileg jól, Sigmundur Davíð