Fréttablaðið - 16.12.2013, Síða 48
Ég viðurkenni að
það er auðvelt að missa
einbeitinguna og byrja
að hugsa um næsta skref
of snemma.
Alfreð Finnbogason,
leikmaður Heerenveen.
GOLF Möguleikar Valdísar Þóru Jóns-
dóttur á sæti á Evrópumótaröðinni í
golfi minnkuðu talsvert í gær en þá
spilaði hún á níu höggum yfir pari á
lokaúrtökumótinu sem nú fer fram í
Marokkó.
Hún er á samtals ellefu höggum
yfir pari eftir fyrstu tvo keppnis-
dagana og meðal neðstu keppenda,
sem eru 95 talsins. 60 efstu komast
í gegnum niðurskurðinn að loknum
fjórum hringjum en 30 efstu að
loknum fimm hringjum fá þátttöku-
rétt í Evrópumótaröðinni. - esá
Valdís Þóra átti
erfi ðan dag
SPORT 16. desember 2013 MÁNUDAGUR
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3
ellingsen.is
Munið
gjafabréfi
n!
SKOGSTAD SNAPP DÚNÚLPA
Bleik og ljósbrún
Stærðir 80–116
16.990 KR.
COLUMBIA ALPINE ÚLPA
Svört og græn
Stærðir 104–152
14.990 KR.
SKOGSTAD GLACIER DÚNÚLPA
Græn, dökkblá og ljósblá
Stærðir 80–116
16.990 KR.
DIDRIKSONS BIGGLES LÚFFUR
Grænar, fjólubláar, bláar,
svartar, rauðar og dökkbláar
2.990 KR.
HLÝJAR
JÓLAGJAFIR
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
3
3
4
6
3
FÓTBOLTI „Sigrar eru alltaf kær-
komnir, sérstaklega þegar það er
lítill munur á milli liða í deildinni,“
segir Alfreð Finnbogason en hann
tryggði Heerenveen mikilvæg þrjú
stig með því að skora bæði mörk-
in í 2-1 útisigri á PEC Zwolle í hol-
lensku úrvalsdeildinni á föstu-
dagskvöldið.
Alfreð hafði ekki skorað í tveim-
ur leikjum í röð og misst af tveim-
ur til viðbótar vegna meiðsla.
Hann hafði því ekkert skorað í
rúman mánuð en er þrátt fyrir
það enn langmarkahæsti leikmað-
ur deildarinnar með sextán mörk
í fjórtán leikjum.
„Maður getur í raun sjálfum
sér um kennt að það teljist krísa
að skora ekki í tveimur leikjum
í röð. Ég kom mér sjálfur í það
vandamál,“ sagði Alfreð í léttum
dúr en hann segist aðeins hafa
misst taktinn þegar hann meiddist
um miðjan síðasta mánuð. Alfreð
var næstmarkahæsti leikmaður
deildarinnar á síðasta tímabili
með 24 mörk og segist sáttur við
að hafa náð að fylgja þeim frábæra
árangri eftir í haust.
„Margir efuðust um að ég gæti
haldið uppteknum hætti annað árið
í röð. Þessi frábæra byrjun mín á
tímabilinu sýnir að þetta var engin
heppni og sjálfur var ég staðráð-
inn í að sýna að ég gæti verið mátt-
arstólpi í liðinu tvö ár í röð.“
Allir geta unnið alla
Alfreð segir að hollenska deild-
in sé sterk en jafnari en oft áður.
Það stafar af því að risarnir í hol-
lenska boltanum – Ajax, PSV og
Feyenoord – hafi oft verið betri
en nú. Þessi þrjú lið hafa unnið 51
af 55 titlum síðan úrvalsdeildin
[Eredivisie] var stofnuð árið 1956
en eru síður en svo með yfirburða-
stöðu í deildinni nú.
„Nú geta allir unnið alla.
Zwolle, sem við unnum á föstu-
daginn, vann fyrstu fimm leiki
sína á tímabilinu en hefur nú ekki
unnið í sex leikjum í röð. Það er
auðvitað getu munur á liðum
í deildinni en ef neðstu liðin
vinna tvo sigra í röð eru þau lið
komin í pakkann um miðja deild,“
útskýrir Alfreð.
„Ég vil sýna að ég geti skorað
gegn hverjum sem er og það gaf
mér mikið sjálfstraust að hafa
skorað í nánast öllum leikjum gegn
bestu liðunum á síðasta tímabili.
Ég vil komast í sterkari deild og
þá þarf maður að vera enn stöð-
ugri og sterkari.“
Auðvelt að missa einbeitinguna
Markaskorarar fá ávallt mikla
athygli og ekki síst þeir sem
standa sig vel í hollensku deild-
inni. Það hefur margsýnt sig að
stóru liðin í Evrópu eru ófeimin
við að fjárfesta í þeim – enda hefur
Alfreð verið orðaður við nánast
óteljandi lið á undanförnum vikum
og mánuðum.
Alfreð er spurður út í framtíð
sína á nánast hverjum degi og við-
urkennir að það verði þreytandi til
lengdar.
„Fjölskyldan mín á Íslandi
les auðvitað fréttirnar sem eru
sumar hverjar sannar en aðrar
ekki. Ég sagði þeim um daginn að
hætta einfaldlega að spyrja mig
– ég myndi bara láta vita þegar
eitthvað merkilegt gerist,“ segir
Alfreð.
„En ég viðurkenni að það er
auðvelt að missa einbeitinguna og
byrja að hugsa um næsta skref of
snemma. Eina leiðin fyrir mig að
taka næsta skref á mínum ferli er
að standa mig vel í hverjum leik
sem ég spila hér. Ég vil því helst
bara einbeita mér að næsta leik og
hvort eitthvað gerist í janúar verð-
ur þá bara að koma í ljós.“
Heerenveen fékk nokkur tilboð í
Alfreð í sumar en þeim var öllum
hafnað. „Félagið setti háan verð-
miða á mig og í sumar var ekkert
lið reiðubúið að borga svo mikið.
Ég vil því sýna að ég sé svo mikils
virði eins og félagið heldur fram.“
Skiptir máli að velja rétt
Alfreð segir að það trufli sig ekki
þó svo að hann sé borinn saman
við bestu sóknarmenn Evrópu.
„Ég hef gaman af því en það er
stór munur á því að skora vikulega
í Hollandi og svo þessum bestu
deildum í Evrópu. Þeir eru marg-
ir sem hafa farið héðan í sterk lið
en mistekist. Aðrir hafa staðið sig
en aðeins tíminn mun leiða í ljós
hvernig mér mun ganga. Ef ég fæ
tækifæri til að komast í sterka
deild skiptir máli að ég velji mér
lið og umhverfi þar sem ég mun fá
tækifæri til að skapa færi og skora
mörk. En ég hef fulla trú á sjálfum
mér og ég tel það ekki síður mikil-
vægt.“ eirikur@frettabladid.is
Fjölskyldan hætt að spyrja
Alfreð Finnbogason heldur áfram að raða inn mörkunum í Hollandi. Hann hefur verið þrálátlega orðaður
við fj ölda sterkra liða í mörgum löndum og viðurkennir að það geti verið erfi tt að halda fullri einbeitingu.
SKORAÐI TVÖ Alfreð Finnbogason í leiknum gegn PEC Zwolle á föstudaginn en hann skoraði bæði mörk Heerenveen í 2-1 sigri
liðsins. Alfreð hefur nú skorað átján mörk í sextán leikjum, bæði í deild og bikar. NORDICPHOTOS/GETTY
„Eigum við ekki bara að sleppa því að tala um
það,“ segir Alfreð Finnbogason spurður
um hvort hann hafi fylgst
með þegar dregið var í
riðla fyrir HM í Brasilíu
næsta sumar. Króatía,
sem sló Ísland úr leik í
umspilsrimmu liðanna í
síðasta mánuð, verður í
riðli með Brasilíu og spilar
opnunarleik keppninnar gegn
heimamönnum.
„Jú, ég fylgdist með þessu.
Það var ekki gaman,“ bætir
hann við. Alfreð viðurkennir
að 2-0 tapið í Zagreb sitji enn
í honum. „Ég held að ég muni
aldrei sætta mig fullkomlega við
þetta– að hafa verið svo nálægt
þessu en mistekist. Hins vegar er lítið við því
að gera þegar maður tapar fyrir liði sem spilar
betur á þeim degi. Króatarnir voru mun betri
en við í þessum leik. Þannig var það bara,“
segir hann.
Alfreð byrjaði í helmingi leikja Íslands í
undankeppni HM og kom við sögu í öllum
þeirra nema tveimur. Hann skoraði tvö mörk af
þeim sautján sem Ísland skoraði alls.
„Ég byrjaði ágætlega á þessu ári og átti gott
samstarf við Kolbein. En þá meiðist ég og missi
af tveimur leikjum. Liðinu gekk þá vel og ég
komst ekki aftur inn í byrjunarliðið strax,“ segir
Alfreð. „Mér finnst ég eiga talsvert inn með
landsliðinu og að ég geti sýnt meira en
ég hef gert. Það finnst mér jákvætt.“
Alfreð byrjaði í báðum leikjunum
gegn Króatíu en sóknarleikur Íslands
gekk illa í þeim leikjum. „Ég fundaði
mikið með Lars [Lagerbäck, landsliðs-
þjálfara] þar sem við fórum yfir leik-
skipulagið. En sóknarleikurinn var ekki
í forgangi og ég held að okkur hafi ekki
tekist að skapa okkur opið færi í þessum
tveimur leikjum. Þá nýtast mínir hæfileikar
ekki sem best,“ segir Alfreð.
„En það er alveg ljóst að við erum
komnir með góðan grunn fyrir framtíð-
ina. Við töluðum það strax eftir leik að
nota þessa ónotatilfinningu til að hvetja
okkur áfram í næstu undankeppni.
Næsta markmið er að gera atlögu að
sæti í úrslitakeppni EM 2016.“
Mun aldrei sætta mig fullkomlega við tapið í Króatíu
HANDBOLTI Karlalið Hauka og
kvennalið Stjörnunnar halda í
jólafríið með bros á vör eftir að
hafa orðið deildarbikarmeistarar um
helgina. Haukar unnu erkifjendur
sína og granna í FH, 25-22, en
Stjarnan lagði spútniklið Gróttu í
kvennaflokki, 28-23.
„Þetta er fyrsti titill liðsins síðan
2010 og það er enn pláss í bikar-
skápnum hjá Stjörnunni,“ sagði Skúli
Gunnsteinsson, þjálfari Stjörnunnar.
Rakel Dögg Bragadóttir var ekki
með Stjörnunni vegna meiðsla en
það kom ekki að sök. „Það spiluðu
margar vel í hennar fjarveru en
Helena [Rut Örvarsdóttir] stóð upp
úr. Hún er ungur leikmaður og spilaði
frábærlega, ekki síst í vörn.“
Úrslitaleikirnir fóru fram í íþrótta-
húsinu við Strandgötu, gamla
heimavelli Hauka. Þeim rauðklæddu
leið greinilega vel þar því Haukar
unnu sanngjarnan sigur á FH-ingum í
úrslitaleiknum í karlaflokki.
„Við erum með grunnskipulag og
taktík sem við förum eftir en þessir
strákar eru líka mjög öflugir ein-
staklingar,“ sagði Patrekur Jóhann-
esson, þjálfari Hauka. „Þeir spiluðu
frábærlega í dag og ég er virkilega
sáttur með fyrsta bikar vetrarins.“
Fyrsti titill Stjörnukvenna síðan 2010– Haukar unnu FH
FÖGNUÐUR Skúli Gunnsteinsson,
þjálfari Stjörnunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL