Fréttablaðið - 16.12.2013, Page 50
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| SPORT | 34
FÓTBOLTI Liverpool er komið á
ógnarskrið í ensku úrvalsdeild-
inni. Liðið hefur unnið síðustu
þrjá leiki sína samanlagt með
fjórtán mörkum gegn tveimur en
í gær fóru þeir rauðklæddu illa
með Tottenham í Lundúnum, 5-0.
Líkast til er enginn að spila betur
í ensku úrvalsdeildinni en Luis
Suarez – sem hefur skorað átta
mörk í þessum þremur leikjum og
er kominn með sautján mörk alls
á tímabilinu.
Tíu lið, þar á meðal Tottenham,
hafa ekki einu sinni náð að skora
svo mörg mörk í deildinni í vetur
og er þá frátalin sú staðreynd að
Suarez var í banni í fyrstu fimm
leikjum tímabilsins.
„Ég reyni mitt besta á vellinum.
Ég er sóknarmaður og reyni að
skora. Það mikilvægasta er frammi-
staða liðsins. Við spiluðum mjög
vel,“ sagði hógvær Luis Suarez en
stjóri hans, Brendan Rodgers, vildi
ekki gera mikið úr einstaklingsaf-
reki Suarez eftir leikinn. Hann lof-
aði frekar liðið allt.
„Við skoruðum fimm mörk en
hefðum auðveldlega getað skorað
sjö eða átta. Ég er ekki í vafa um að
þetta sé besta heildarframmistaða
liðsins síðan ég tók við,“ sagði Rod-
gers.
Suarez og Cristiano Ronaldo,
leikmaður Real Madrid, hafa báðir
skorað sautján deildarmörk á tíma-
bilinu. Ronaldo er þó búinn að spila
fleiri leiki (fimmtán) og skora fleiri
mörk úr vítum (fjögur). Suarez
hefur einmitt lengi vel verið orðað-
ur við Real Madrid en það er ljóst
að verðmiðinn á kappanum verður
aðeins hærri með hverjum leiknum
sem líður.
Arsenal gaf eftir í toppbarátt-
unni um helgina með 6-3 tapi gegn
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
VIRB Elite
Hasarmyndavél
Innbyggður skjár, 2000mAh
rafhlaða, 16Mp myndflaga,
GPS skráir hraða og hæð, WiFi
tenging við síma og margt annað
setur Garmin hasarmyndavélarnar
í sérflokk.
VIRB FRÁ KR.
54.900
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍASÍ
A
SÍ
A
Forerunner 620
Hlaupaúr
Hvíldartími, súrefnisupptaka,
skrefafjöldi, skreftími og
sendir þráðlaust á Garmin
Connect með WiFi.
HLAUPAÚR FRÁ KR.
23.900
Monterra
Útivistartæki
Android, Vídeó, FM útvarp,
netvafri, tölvupóstur, myndavél
og margt annað spennandi.
ÚTIVISTARTÆKI FRÁ KR.
29.900
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi | S: 577 6000 | www.garmin.is | Opið kl. 10-18 fram að jólum. Kl. 10-12 á aðfangadag.
ÚRSLIT
DOMINO‘S-DEILD KARLA
ÞÓR Þ. - ÍR 79-78 (35-39)
Þór: Ragnar Ágúst Nathanaelsson 27/22 fráköst,
Mike Cook Jr. 17/5 fráköst/7 stoðsendingar.
ÍR: Calvin Lennox Henry 25/12 fráköst, Hjalti Frið-
riksson 20/11 fráköst, Sveinbjörn Claessen 14.
SKALLAGR. - GRINDAVÍK 73-85 (50-32)
Skallagrímur: Egill Egilsson 19/8 fráköst, Páll Axel
Vilbergsson 17/5 fráköst, Oscar Bellfield 11.
Grindavík: Earnest Lewis Clinch Jr. 20/7 fráköst,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 18/5 fráköst,
Jóhann Árni Ólafsson 15/5 fráköst.
KR - HAUKAR 96-67 (41-33)
KR: Martin Hermannsson 19/5 fráköst, Terry
Leake Jr. 16/4 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 15,
Pavel Ermolinskij 12/13 fráköst/9 stoðsendingar.
Haukar: Terrence Watson 17/12 fráköst, Sigurður
Þór Einarsson 16, Emil Barja 9/9 fráköst.
KFÍ - VALUR 85-68 (43-34)
KFÍ: Mirko Stefán Virijevic 23/16 fráköst, Jason
Smith 19/7 fráköst/14 stoðsendingar.
Valur: Chris Woods 24/10 fráköst/7 stoðsendingar,
Birgir Björn Pétursson 17/5 fráköst.
KEFLAVÍK - SNÆFELL 103-77
STAÐAN
KR 11 11 0 1063-829 22
Keflavík 11 10 1 978-819 20
Grindavík 11 7 4 948-903 14
Njarðvík 10 6 4 937-848 12
Haukar 11 6 5 927-903 12
Stjarnan 10 6 4 845-808 12
Þór Þ. 11 6 5 997-1017 12
Snæfell 11 5 6 968-983 10
KFÍ 11 3 8 917-982 6
ÍR 11 2 9 881-1051 4
Skallagrímur 11 2 9 839-1001 4
Valur 11 1 10 881-1037 2
DOMINO‘-S DEILD KVENNA
VALUR - NJARÐVÍK 79-46
GRINDAVÍK - KR 52-72
KEFLAVÍK - SNÆFELL 58-84
STAÐAN
Snæfell 14 11 3 1103 - 921 22
Keflavík 14 10 4 1045 - 1004 20
Haukar 14 9 5 1075 - 994 18
Hamar 14 6 8 975 - 1005 12
Valur 14 6 8 997 - 993 12
KR 14 6 8 966 - 982 12
Grindavík 14 6 8 964 - 1034 12
Njarðvík 14 2 12 909 - 1101 4
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
MANCHESTER CITY - ARSENAL 6-3
NEWCASTLE - SOUTHAMPTON 1-1
WEST HAM - SUNDERLAND 0-0
EVERTON - FULHAM 4-1
CHELSEA - CRYSTAL PALACE 2-1
CARDIFF - WEST BROM 1-0
HULL - STOKE 0-0
ASTON VILLA - MAN. UNITED. 0-3
NORWICH - SWANSEA 1-1
TOTTENHAM - LIVERPOOL 0-5
STAÐAN
Arsenal 16 11 2 3 33-17 35
Liverpool 16 10 3 3 39-18 33
Chelsea 16 10 3 3 32-18 33
Manchester City 16 10 2 4 47-18 32
Everton 16 8 7 1 27-15 31
Newcastle 16 8 3 5 21-22 27
Tottenham 16 8 3 5 15-21 27
Southampton 16 6 6 4 20-15 24
Man. United 15 6 4 5 22-19 22
Swansea 15 5 4 6 21-20 19
Aston Villa 15 5 4 6 16-18 19
Hull 16 5 4 7 13-19 19
Stoke 16 4 6 6 15-20 18
Cardiff 16 4 5 7 12-22 17
Norwich 15 5 2 8 14-28 17
WBA 16 3 6 7 17-22 15
West Ham 16 3 5 8 13-19 14
Crystal Palace 16 4 1 11 11-24 13
Fulham 16 4 1 11 15-30 13
HANDBOLTI Stella Sigurðardóttir
hefur ekki fengið fulla sjón enn eftir
að hún fékk þungt högg á augað í
æfingaleik með íslenska landsliðinu í
síðasta mánuði.
„Ég er aðeins byrjuð að æfa á ný.
Ég er búin að taka tvær handboltaæf-
ingar en annars hef ég mest verið
að lyfta og þess háttar,“ segir Stella
sem er á mála hjá danska liðinu
SönderjyskE.
„En ég er ekki enn komin með
fulla sjón aftur. Það er enn smá ský
fyrir auganu. Ég er enn að taka dropa
sem ég fékk hjá læknunum á Íslandi
og á að taka þá þangað til í næstu
viku. Ef þetta verður ekki komið þá
mun ég fara aftur til þeirra þegar ég
kem heim í jólafrí,“ segir hún.
Stella hefur þó ekki miklar
áhyggjur af auganu, þó svo að hún
vildi gjarnan fá fulla sjón aftur sem
fyrst. „Augnbotninn er heill sem er
fyrir öllu og læknarnir segja að ég
eigi að fá fullan bata. Þetta er því
vonandi allt að koma hjá mér.“
Stella stundar háskólanám sam-
hliða handboltanum og er nýbúin
með jólaprófin. „Það var svolítið
erfitt að lesa bara með öðru auganu
en þetta gekk þó sæmilega hjá mér,“
sagði hún.
Auk Stellu leika Karen Knútsdóttir
og Ramune Pekarskyte með Sönder-
jyskE en þjálfari liðsins er Ágúst Þór
Jóhansson landsliðsþjálfari.
Stella enn með ský fyrir auganu
FÉKK LEPP Stella meiddist í æfingaleik
gegn Sviss. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefáns-
son verður frá næstu þrjár vik-
urnar eða svo þar sem hann þarf
að fara í aðgerð vegna óþæg-
inda í hné. Félag hans á Spáni,
CAI Zaragoza, staðfesti það um
helgina.
Það er því ljóst að Jón Arnór
spilar ekki meira á árinu en
í fjarveru hans tapaði liðið
fyrir Gran Canaria á Kanarí-
eyjum í gær, 58-55. CAI Zara-
goza er í áttunda sæti spænsku
úrvalsdeildar innar. - esá
Jón Arnór fer í
hnéaðgerð
HANDBOLTI Hannes Jón Jónsson,
leikmaður Eisenach í Þýskalandi, fór
á laugardaginn í sína aðra aðgerð
á nokkrum dögum vegna slæmrar
sýkingar í öxl. Hann var lagður inn á
sjúkrahús fyrir viku með mikla verki
í öxlinni en hann er vongóður um að
nú horfi til betri vegar.
„Tíminn verður að leiða það í ljós
en læknarnir gátu ekki annað séð
í aðgerðinni en að sýkingin væri í
rénun– bæði í liðnum og í blóðinu,“
sagði Hannes Jón. Hann þarf þó
að dvelja áfram á sjúkrahúsinu
næstu daga þar sem hann er enn að
gangast undir sýklalyfjameðferð. - esá
Hannes Jón enn að
berjast við sýkingu
SUND Eygló Ósk Gústafsdóttir,
sundkona úr Ægi, komst tvívegis
í úrslit á EM í 25 m laug sem lauk
í Herning í gær. Í gær hafnaði
hún í sjöunda sæti í 100 m bak-
sundi er hún hjó nærri Íslands-
meti sínu í greininni með því að
synda á 2:06,68 mínútum.
Eygló Ósk varð fyrsta íslenska
konan til að komast í úrslit á EM
í 25 m laug fyrir helgi en þá varð
hún áttunda í 100 m baksundi.
Hún bætti eitt Íslandsmet á
mótinu en það gerði hún í undan-
rásunum í 100 m baksundi.
Alexander Jóhannesson náði að
bæta sinn besta árangur í einni
grein en enginn hinna fjögurra í
íslenska hópnum, utan Eyglóar,
náði að bæta sig í Herning. Þau
kepptu samtals í sextán greinum.
Ísland keppti svo í fjórum boð-
sundum og setti eitt met. - esá
Eygló Ósk í
sjöunda sæti
GÓÐUR ÁRANGUR Eygló Ósk komst
tvisvar í úrslit í Herning. NORDICPHOTOS/AFP
Luis Suarez
Fæddur
24. janúar 1987 í Salto,
Úrúgvæ.
Kom frá
Ajax árið 2011.
17 mörk í 11 leikjum
4 stoðsendingar
1,55 mörk að meðaltali í leik
58 mínútur á milli marka
Liverpool án Suarez:
5 mörk í 5 leikjum
Liverpool með Suarez:
34 mörk í 11 leikjum
Betri en helmingur
liða í allri deildinni
Luis Suarez skoraði tvö mörk í 5-0 sigri Liverpool á Tottenham í gær. Hann
hefur skorað sautján mörk í ellefu leikjum og virðist einfaldlega óstöðvandi.
15
Mörk
15
Mörk
15
Mörk
15
Mörk
13
Mörk
13
Mörk
12
Mörk
11
Mörk
11
Mörk
16
Mörk
Liðin sem hafa skorað færri mörk en Suarez
ÓTRÚLEGUR
Luis Suarez
hefur skorað
átta mörk í
síðustu þrem-
ur leikjum
Liverpool.
Manchester City í ótrúlegum leik
á laugardaginn. Liverpool og Chel-
sea náðu því að minnka forystu
Lundúnaliðsins á toppnum í tvö
stig en City og Everton fylgja á
eftir í humátt.
Manchester United kom sér svo
á sigurbraut á ný með 3-0 útisigri
á Aston Villa í gær þar sem Danny
Welbeck skoraði tvö fyrstu mörk
United.
eirikur@frettabladid.is