Fréttablaðið - 16.12.2013, Page 54
16. desember 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 38
Bjarni Fritzson og Kristín Tómasdóttir,
höfundar jólabókarinnar Strákar, gerðu
sér ferð á Alþingi fyrir stuttu til þess
að gefa alþingismönnum eintak af bók-
inni og hvetja þá til þess að kynna sér
stöðu stráka í samfélaginu og hlúa
betur að þeim. Lögðu þau sérstaka
áherslu á niðurstöður Písa-könnunar-
innar og hrakandi námsárangur stráka.
„Fjöldi þingmanna kom til þess að
kynna sér bókina og komust færri að
en vildu. Var Össur Skarphéðinsson
sérstaklega ósáttur við að hafa komið
of seint til þess að næla sér í eintak af
þessari áhugaverðu bók. Forsætisráð-
herra mætti og tók á móti hvatningu
okkar og þótti efnið bæði mikilvægt og
nauðsynlegt,“ segir Bjarni og bætir við
að þverpólitísk samstaða hafi myndast
um að bókin hefði verið ágætur kostur í
náttborðsskúffum þingmannanna fyrir
mismörgum áratugum síðan.
Þá rákust rithöfundarnir einnig á
Kristínu Ástgeirsdóttur, framkvæmda-
stýru Jafnréttisstofu, og afhentu henni
einnig eintak með sambærilegri hvatn-
ingu og alþingismennirnir fengu sem
hún tók glöð á móti. - lkg
Sigmundur Davíð fékk Strákabók að gjöf
Bjarni Fritzson og Kristín Tómasdóttir gáfu þingmönnum glaðning með fræðslugildi við góðar undirtektir.
„Ég er afskaplega þagnarelskandi
og svo fer þetta eftir mánudögum.“
Auður Haralds, rithöfundur.
MÁNUDAGSLAGIÐ
Kláraðu jólagjafa-
kaupin á einum stað.
Í Bóksölu stúdenta
finnur þú meira
en þig grunar.
í Bóksölu stúdenta
Háskólatorgi - www.boksala.is
JAHÁ Sig-
mundur
Davíð var
ánægður
með
gjöfina.
„Það var alveg truflað að vinna
með Ben, hann er náttúrulega
maður sem ég hef fylgst með svo
lengi,“ segir Ólafur Darri Ólafs-
son, leikari en hann leikur á
móti Ben Stiller í kvikmyndinni
The Secret Life of Walter Mitty.
Myndin var forsýnd á sérstakri
hátíðarforsýningu síðastliðinn
fimmtudag í Smárabíói en allir
salir bíósins voru þéttsettnir.
Myndin verður svo frumsýnd á
Íslandi 3. janúar.
„Myndin hefur fengið prýð-
is viðtökur en hún er ekki enn
komin í almenna sýningu hér né
í Bandaríkjunum, en hún hefur
fengið góða dóma,“ segir Ólafur
Darri.
Hann var viðstaddur frumsýn-
ingu myndarinnar á New York
Film Festival í byrjun október.
„Það var mjög gaman úti, en eftir
forsýninguna í Smárabíói get ég
líklega ekki mætt á fleiri forsýn-
ingar eða frumsýningar sökum
mikilla anna,“ útskýrir Ólafur
Darri.
Hann æfir þessa dagana leik-
ritið Hamlet sem verður frum-
sýnt í Borgarleikhúsinu 11.
janúar. Ólafur Darri leikur titil-
hlutverkið í verkinu. „Þetta er
krefjandi hlutverk og maður
þarf að vera í góðu formi,“ segir
Ólafur Darri, sem var einmitt á
leið í ræktina þegar blaðamað-
urinn náði tali af honum. Meðal
annarra verkefna sem hann
hefur tekið að sér að undanförnu
er að leika í þætti sem heitir
Line of Sight. Ekki er víst hvort
þættirnir fara í framleiðslu en
gerður hefur verið prufuþáttur.
Framhaldið er síðan óráðið, en
það er enginn annar en Jonathan
Demme sem leikstýrir þáttunum,
en hann leikstýrði meðal annars
The Silence of the Lambs. Hand-
ritið gerði Blake Masters, sem
skrifaði meðal annars myndina
2 Guns, sem Baltasar Kormák-
ur leikstýrði. „Ef þættirnir fara
í framleiðslu, þá myndu tökur
líklega hefjast í apríl eða maí í
Atlanta í Georgíu. Þá þyrfti ég að
búa úti í einhvern tíma.“
Ólafur Darri er fæddur í
Connecticut í Bandaríkjunum
árið 1973. „Ég bjó þar þangað til
ég var þriggja eða fjögurra ára
en hef ekkert búið í Bandaríkj-
unum síðan þá. Hins vegar á ég
skyldmenni sem búa í Bandaríkj-
unum.“
Ólafur Darri segist helst vilja
fá góða bók í jólagjöf. „Ég verð
alltaf meira og meira jólabarn
með árunum en mér stendur
alltaf meira og meira á sama um
hvað ég fæ í jólagjöf með árun-
um,“ gunnarleo@frettabladid.is
Súrrealískt að vinna
með Ben Stiller
Ólafur Darri Ólafsson leikur á móti Ben Stiller í kvikmyndinni The Secret Life of
Walter Mitty en myndin verður frumsýnd hér á landi í byrjun næsta árs.
■ Búið er að gera prufuþátt
fyrir AMC-Studios, sem kallast
Line of Sight. Það er enginn
annar en Jonathan Demme
sem leikstýrir þáttunum
en hann leikstýrði meðal
annars The Silence of the
Lambs. AMC-studios á meðal
annars heiðurinn af þáttunum
Breaking Bad og Mad Men.
■ Þáttaröðin Banshee verður
frumsýnd í Bandaríkjunum í
janúar.
■ True Detective er þáttaröð
sem fer líklega í sýningu á
Stöð 2 í janúar.
■ Lék Ísleif Jökulsson fjallagarp
í Harry og Heimi-myndinni en
hún kemur út um páskana.
Þess má til gamans geta
að Ólafur Darri er mikill
aðdáandi Harrys og Heimis og
sögumannsins.
■ Ófærð er íslensk þáttaröð sem
Baltastar Kormákur og Sigur-
jón Kjartansson skrifa en þeir
ásamt Magnúsi Viðari Sigurðs-
syni framleiða þættina. Þar
leikur Ólafur Darri aðalhlut-
verkið, en hann leikur löggu
sem tekst á við erfið mál.
Nokkur verkefni
Á RAUÐA DREGLINUM Hér er Ólafur Darri á rauða dreglinum á New York Film
Festival við frumsýningu myndarinnar The Secret Life of Walter Mitty.
NORDICPHOTOS/GETTY
BEN BIÐUR AÐ HEILSA Ben Stiller fór
fögrum orðum um Ólaf Darra áður en
myndin var forsýnd í Smárabíó síðast-
liðinn fimmtudag. NORDICPHOTOS/GETTY
Save the Children á Íslandi
Ef þættirnir fara í framleiðslu þá myndu tökur líklega
hefjast í apríl eða maí, í Atlanta í Georgíu. Þá þyrfti ég að
búa erlendis í einhvern tíma.
Ólafur Darri Ólafsson