Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 8

Fréttablaðið - 19.12.2013, Page 8
19. desember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 FRAMKVÆMDIR „Tilraunakaflar sem gerðir hafa verið hafa flestir eða allir misheppnast að einhverju leyti,“ segir Ólafur Björnsson, sam- göngustjóri Reykjavíkurborgar, í umsögn vegna tillögu borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokks um að stein- steypa götur þar sem umferðar- þungi er mikill. „Áætlað er að um tíu þúsund tonn af malbiki slitni árlega vegna notkunar nagladekkja í borginni og endar hluti þess slits sem svifryk í andrúmslofti. Talið er að minnstu agnir af þessu ryki séu hættuleg- ar heilsu fólks,“ segir í greinargerð með tillögu sjálfstæðismanna. „Steinsteyptar götur slitna til muna hægar undan umferðarálagi og rannsóknir benda til að við slit þess leysist mun minna svifryk úr læðingi en við akstur á malbikuð- um götum. Slitmælingar á Íslandi hafa leitt í ljós að steypt slitlög slitni um það bil helmingi hægar en slit- sterk malbikslög og séu því góður kostur við gatnagerð, að minnsta kosti á umferðarþungum götum,“ segja sjálfstæðismenn og bæta við að holótt malbik valdi skemmdum á bílum og skapi slysahættu. „Ljóst er að stofnkostnaður steypulagnar er hærri en malbiks. Á móti kemur að steypa endist mun lengur og því er líklegra að notkun hennar sé mun hagkvæmari til lengri tíma litið en malbiks.“ Samgöngustjóri bendir á að áður hafi komi fram sams konar hug- myndir. „Notkun á innlendu efni var ein ástæðan á meðan sement var framleitt á Akranesi,“ segir Ólafur og vísar til skýrslu frá árinu 2009. „Raunhæf dæmi sem tekin eru í umræddri skýrslu eru mal- biki í hag.“ Ólafur kveður umhverfisþætti eins og hávaða eða svifryk ekki hafa verið tekna inn í kostnaðar- samanburð. „Varðandi slitþol sýnir nýgerð rannsókn hér á landi að þáttur malbiks í svifryki mælist nú 15 prósent á móti 55 prósent fyrir tíu árum,“ segir samöngu- stjóri og nefnir að á árinu 2012 hafi svifryk farið átta sinnum yfir heilsuverndar mörk á mælistöð við Grensásveg. „Einungis tvö skipti voru rakin til umferðar.“ Þá segir samgöngustjóri gerð slitlags skipta minna máli gagnvart mengun en áður. Hávaði og sót frá umferðinni sjálfri vegi þyngra. „Meta þarf vandlega ávinning og áhættu og gera tilraunir áður en ráðist er í að leggja steypt slitlög á götur í Reykjavík,“ segir í umsögn samgöngustjóra sem umferðar- og skipulagsráð samþykkti. gar@frettabladid.is Steyptar götur hljóta dræmar undirtektir Samgöngustjóri Reykjavíkur segir malbik hafa yfirhöndina gagnvart steypu við gatnagerð í borginni. Þetta segir í umsögn vegna tillögu sjálfstæðismanna um að steypa götur með mikinn umferðarþunga til að auka öyggi og draga úr svifryki. MALBIKAÐ VIÐ GRENSÁSVEG Svifryk fór átta sinnum yfir heilsuverndarmörk við Grensásveg í fyrra en þó aðeins tvisvar vegna umferðar segir samgöngustjóri Reykjavíkurborgar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Raunhæf dæmi sem tekin eru í umræddri skýrslu eru malbiki í hag. Ólafur Björnsson, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar HEILBRIGÐISMÁL Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir velferðarráðuneytið ekki munu greiða 516 milljóna króna reikning fyrir sjúkraflutninga frá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins. Slökkviliðið sendi ráðuneytinu greiðsluáskorun þar sem ekki hafi verið staðið við „samkomu- lagsgrundvöll“ frá í febrúar. Sjúkraflutningunum hafi verið sinnt í nær tvö ár án þess að samningur væri í gildi. Ráðherra svarar því til að unnið hafi verið eftir samningi sem rann út í árslok 2011 og að greiðslur hafi verið í samræmi við hann. „Ráðuneytið hefur aldrei fallist á greiðslur umfram það. SHS getur ekki ákveðið hækkun greiðslna einhliða,“ segir hann. Auk kröfunnar á ríkið sendi slökkviliðið Sjúkratryggingum Íslands um 432 milljóna króna reikning. Þá hafði slökkviliðið tilkynnt að hafin væru verklok á samn- ingnum og uppsagnir á sjúkraflutningamönnum að hefjast. Heilbrigðis- ráðherra segir bæði ráðu- neytið sem verkkaupa og slökkviliðið sem verksala þurfa að standa að slíkum verklokum. „Verksali getur því hvorki ákveð- ið einhliða að verklok séu hafin né hvenær þeim skuli ljúka,“ segir ráðherra sem kveður ráðuneytið reiðubúið til viðræðna um áætlun um verk- lok ef ekki semst um framhald þjónustunnar. - gar Heilbrigðisráðherra segir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins ekki geta dregið sig út úr samningi: Hafnar aukagreiðslu fyrir sjúkraflutninga KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍ- USSON Heilbrigðisráð- herra segir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins ekki geta hætt sjúkra- flutningum án sam- starfs við ríkið. HEILSA Geislun farsíma og annars sendibúnaðar er ekki skaðleg, segja norrænar geislavarnastofnanir. Í sameiginlegri yfirlýsingu er vísað í samanteknar rannsóknir sem birst hafa í vísindaritum til þessa. Þær sýna ekki skaðleg áhrif frá rafsegulgeislun við þráðlaus samskipti, sem eru neðan við þau viðmiðunarmörk sem tekin hafa verið upp á Norðurlöndum. Þetta á meðal annars við um geislun frá farsímum, farsímamöstrum og staðarnetum (WiFi, WLAN). - shá Yfirlýsing frá geislavörnum: Geislun farsíma ekki skaðleg LÖGREGLUMÁL Tilkynnt var um 276 þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu í nóvember, sem er fækkun þriðja mánuðinn í röð og jafnframt minnsti fjöldi þjófnaða síðustu tólf mánuði. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði lögreglunnar á höfuðborgar svæðinu sem var birt í gær. Tilkynningum um þjófnaði á far- símum, eldsneyti og skráningar- merkjum fjölgaði nokkuð en á sama tíma fækkaði reiðhjólaþjófnuðum, innbrotum og þjófnuðum á öku- tækjum. Tilkynningar um reið- hjólaþjófnaði hafa ekki verið færri í einum mánuði síðan í desember 2011. Alls var tilkynnt um 57 innbrot í nóvember sem er svipaður fjöldi og síðustu tvo mánuði. Innbrotum í ökutæki og fyrirtæki fækkaði á sama tíma og innbrotum á heimili fjölgaði nokkuð. Tilkynningum um eignaspjöll fækkaði verulega á milli mánaða og voru 77 talsins í nóvem- ber. Skráð voru 69 ofbeldisbrot á höfuðborgarsvæðinu í nóvember sem er fækkun frá síðasta mánuði. Á sama tíma fjölgaði tilkynningum um ofbeldisbrot í miðborginni. Skráðir hafa verið 3.887 þjófn- aðir það sem af er árinu 2013, 801 innbrot, 1.149 eignaspjöll og 691 ofbeldis brot. Umferðarslys eru 352 talsins. - fb Lögreglu var tilkynnt um 276 þjófnaði á höfuðborgarsvæðinu í nóvember: Þjófnaðir ekki færri í eitt ár INNBROT Innbrotum í ökutæki og fyrir- tæki fækkaði á sama tíma og innbrot- um á heimili fjölgaði nokkuð. Skráð ofb eldisbrot á höfuðborgar- svæðinu í nóvember. 69 PI PA R\ TB W A S ÍA 1 33 6 39 Fallegar jólagjafir - okkar hönnun og smíði jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind HIN FULLKOMNA JÓL AGJÖF Opna – Velja – Njóta sími 577 5600 info@oskaskrin.is www.oskaskrin.is – Gefðu upplifun í öskju
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.