Fréttablaðið - 08.01.2014, Síða 4
8. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
2.080 krónur kostaði að meðaltali að vera
með heimasíma á síðasta ári.
Verðið hefur hækkað um 16
prósent frá árinu 2011,
og um 44 prósent frá árinu 2007.
Heimild: Hagstofa Íslands
DÓMSMÁL Tveir sakborningar í
skattahluta Baugsmálsins krefjast
um átta milljóna króna miskabóta
hvor fyrir Mannréttindadómstóli
Evrópu. Þeir vilja að auki að sektir
sem þeir voru dæmdir til að greiða
verði endurgreiddar, sem og máls-
kostnaður, samtals yfir 100 millj-
ónir króna.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Baugs, og
Tryggvi Jónsson, fyrrverandi for-
stjóri fyrirtækisins, voru dæmd-
ir fyrir skattalagabrot í febrúar í
fyrra. Þeir kærðu niðurstöðu
Hæstaréttar til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu á þeim forsendum að
þeim hafi verið refsað tvisvar fyrir
sömu sakir. Meðferð málsins er
langt komin hjá dómstólnum. Vilja
þeir meina að þar sem yfirskatta-
nefnd sektaði þá hafi ekki mátt
ákæra þá og dæma fyrir sömu brot.
Gestur Jónsson, lögmaður Jóns
Ásgeirs, segir að dómurinn bíði þess
nú að ríkið taki afstöðu til bótakröf-
unnar. Ríkið hefur tvívegis fengið
frest til að skýra afstöðu sína, síðast
fram í byrjun febrúar. Þegar það er
komið er ekkert því til fyrirstöðu að
dómstólinn felli dóm sinn. - bj
Krefjast miskabóta hjá Mannréttindadómstóli Evrópu vegna Baugsmálsins:
Vilja átta milljónir króna hvor
JÓN ÁSGEIR
JÓHANNESSON
TRYGGVI
JÓNSSON
KVIKMYNDIR Ragnheiður Elín
Árnadóttir, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, og Jón Ásbergs-
son, framkvæmdastjóri Íslands-
stofu, hafa undirritað þriggja ára
samning um að Íslandsstofa annist
áfram umsjón verkefnisins Film in
Iceland.
Hlutverk Íslandsstofu hefur und-
anfarin ár verið að kynna lög um
tuttugu prósenta endurgreiðslu af
framleiðslukostnaði fyrir erlend-
um kvikmynda- og sjónvarpsfram-
leiðendum annars vegar og hins
vegar að kynna Ísland sem ákjós-
anlegan tökustað. - fb
Ríkisstjórnin og Íslandsstofa:
Sömdu um
Film in Iceland
ÁNÆGÐ MEÐ SAMNING Ragnheiður
Elín og Jón handsala samninginn.
SAKAMÁL Karlmaður á sextugs-
aldri var fyrir Héraðsdómi
Reykjaness í gær dæmdur í fimm
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn tólf
ára stúlku á samskiptaforritinu
Skype. Maðurinn er fæddur árið
1961 og hefur ekki áður komið við
sögu lögreglunnar.
Um kynferðislega áreitni
var að ræða þar sem maðurinn
klæmdist við stúlkuna í en slík
afbrot hafa aukist á undanförn-
um árum. - fb
Skilorðsbundið fangelsi:
Braut gegn
stúlku á Skype
SPÁNN, AP Kristína, dóttir Jóhanns
Karls Spánarkonungs, kemur fyrir
rétt á Mallorca í mars til að svara
fyrir ásakanir um aðild að fjár-
svikum og peningaþvætti.
Ásakanirnar tengjast allar fyr-
irtæki eiginmanns hennar, sem
heitir Iñaki Urdangarín og var í
eina tíð þekktur handboltaleikmað-
ur á Spáni.
Hann sætir rannsókn vegna
ásakana um að hann hafi reynt að
hafa stórfé út úr verktakasamning-
um við ríkið í gegnum stofnun sem
hann setti á laggirnar og átti að
starfa án ágóða. - gb
Spánarprinsessa í vanda:
Sökuð um aðild
að fjársvikum
STJÓRNSÝSLA Tjón ríkisins vegna
sérhæfðs búnaðar um borð í
sjúkraflugvél Mýflugs sem fórst
um síðustu verslunarmannahelgi
kann að verða rúmar 40 milljónir
króna.
Skömmu eftir slysið fékk
Mýflug sams konar Beechraft
Kingair 200 flugvél sem kom til
landsins frá Bandaríkjunum í
september. Í fjáraukalögum fyrir
nýliðið ár kemur fram að ríkið
ætli að verja allt að 40 milljón-
um króna til að útbúa nýju vélina
með sjúkrabúnaði. Með ísetningu
er reiknað með að kostnaðurinn
verði alls rúmar 40 milljónir að
því er heilbrigðisráðuneytið
upplýsir.
Samkvæmt útboðslýs-
ingu ber Mýflug ábyrgð á
öllu tjóni sem ríkið kann að
verða fyrir við framkvæmd
sjúkraflugsins. Tryggingar
Mýflugs fyrir flug-
vélina tóku ekki sér-
staklega til búnaðar-
ins sem ríkið átti um
borð.
Í heilbrigðisráðu-
neytinu hafa menn
ekki gert upp við
sig hvort gera eigi
kröfu á Mýflug
vegna búnaðarins
sem tapaðist. Í fjár-
aukalögum fyrir árið
2013 er upphæðin færð
á liðinn „tapaðar kröfur
og tjónabætur“. Af því
að dæma virtist ríkið
ekki ætla að gera bóta-
kröfu á hendur Mýflugi.
Endanleg afstaða liggur þó ekki
fyrir.
„Í þessu máli er ekki aug-
ljóst að ríkið eigi kröfu á hendur
Mýflugi vegna búnaðarins. Þessi
mál verða skoðuð í heild en ekki
er tímabært að fullyrða neitt að
svo stöddu. Sem stendur er meg-
ináhersla af hálfu ráðuneytis-
ins lögð á að tryggja aðbúnað
sjúklinga og fylgdarmanna um
borð í nýrri sjúkraflutningavél
Mýflugs,“ segir í svari heilbrigð-
isráðuneytisins við fyrirspurn
Fréttablaðsins.
Meðal þess sem þarf í flug-
vélina eru sjúkrabörur, búnaður
til súrefnisgjafar, öndunarvél,
hjartarafstuðstæki og búnað-
ur til vökva- og lyfjagjafar.
Ekki er reiknað með að allur
búnaðurinn verði kominn á
sinn stað fyrr en í lok febrúar.
Þangað til er aðeins
hægt að flytja einn
sjúkling á börum í
vélinni.
Nýr þjónustu-
samningur við
Mýflug tók gildi
í fyrravor. Þótt
settar hafi verið
fram á síðustu
dögum ásak-
anir um meint
óvönduð vinnu-
brögð Mýflugs-
manna í sjúkra-
fluginu stendur
ekki til að taka
samstarf ríkisins
við flugfélagið til
endurskoðunar.
„Ég hef ekki fengið inn á mitt
borð, eða þeir starfsmenn hérna
í ráðuneytinu sem sýsla við þetta,
frá því ég tók við starfi neinar
ávirðingar í þessum efnum,“ segir
Kristján Þór Júlíusson sem tók
við sem heilbrigðisráðherra eftir
alþingiskosningar í fyrravor.
gar@frettabladid.is
Óvíst að ríkið krefji Mýflug
bóta vegna 40 milljóna tjóns
Ríkið greiðir 40 milljónir króna fyrir sjúkrabúnað í nýja sjúkraflugvél Mýflugs. Félagið bar ábyrgð á búnaði
sem ríkið átti og eyðilagðist í flugslysinu í ágúst. Óljóst er hvort ríkið geri bótakröfu á Mýflug vegna tjónsins.
SJÚKRAFLUGVÉLIN SEM FÓRST Tugmilljóna sérbúnaður í eigu ríkisins eyðilagðist í
flugslysinu á akstursbraut Bílaklúbbs Akureyrar 5. ágúst síðastliðinn.
MYND/BALDVIN ÞEYR
„Verksali [Mýflug] ber ábyrgð á verkefninu og framkvæmd þess, þar
með töldum verkum undirverktaka og auk þess tjóni er verkkaupi
[ríkið] eða þriðji aðili kann að verða fyrir við framkvæmd þess.“
Úr útboðslýsingu vegna sjúkraflugs 2012.
Mýflug bar ábyrgð á tjóni
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON
Heilbrigðisráðherra segir
engar ávirðingar á hendur
Mýflugi hafa borist í ráð-
herratíð sinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet
Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Föstudagur
8-18 m/s.
BREYTING Á MORGUN Vaxandi austanátt á morgun og þykknar upp syðra.
Fremur hvasst á föstudag og rigning eða slydda um sunnan og austanvert landið en
úrkomulaust að mestu norðan til og bjart. Hitinn breytist lítið.
1°
13
m/s
3°
10
m/s
3°
8
m/s
6°
10
m/s
Á morgun
Vaxandi A-átt, hvassast syðst.
Gildistími korta er um hádegi
4°
1°
3°
2°
0°
Alicante
Basel
Berlín
18°
9°
11°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
8°
12°
12°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
7°
7°
23°
London
Mallorca
New York
12°
18°
-4°
Orlando
Ósló
París
18°
5°
12°
San Francisco
Stokkhólmur
14°
7°
3°
5
m/s
4°
9
m/s
1°
7
m/s
3°
10
m/s
2°
6
m/s
2°
8
m/s
-2°
8
m/s
3°
0
2°
1°
1°
Í þessu máli
er ekki augljóst
að ríkið eigi kröfu
á hendur Mýflugi
vegna búnaðarins
Heilbrigðisráðuneytið.