Fréttablaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 22
 | 4 8. janúar 2014 | miðvikudagur Orka náttúrunnar (ON) er nýtt opinbert hlutafélag í eigu Orku- veitu Reykjavíkur (OR) sem hefur tekið við rekstri virkjana og raf- orkusölu móðurfélagsins. Hluta- félagið var stofnað til að uppfylla ákvæði raforkulaga sem tóku gildi um síðustu áramót og skylda orku- fyrirtækin til að skilja samkeppn- ishluta sinn frá sérleyfishlutan- um. Félagið er næststærsti raf- orkuframleiðandi landsins, á eftir Landsvirkjun, og Páll Erland, framkvæmdastjóri ON, mun sjá um að stýra skútunni. Með eignir upp á 130 milljarða „Þetta er nýtt félag á raforku- markaði sem er að koma fram undir eigin merkjum með það hlutverk að framleiða og selja raf- orku. Fyrirtækið byggir á traust- um grunni og margra ára reynslu og er nú í samræmi við kröfur um aðskilnað orðið sjálfstætt fyrir- tæki sem sinnir samkeppnisþátt- um eingöngu,“ segir Páll. ON sér nú um rekstur jarð- varmavirkjananna á Hellisheiði og Nesjavöllum og vatnsaflsvirkj- ananna Andakílsárvirkjunar og Elliðaárstöðvar. Rekstur félags- ins mun að sögn Páls skila um 15 milljörðum króna í tekjur á ári og það á eignir upp á 130 milljarða. „ON er það rafmagnssölufyrir- tæki sem hefur flesta viðskipta- vini en um 75 þúsund heimili og fyrirtæki um allt land eru í við- skiptum hjá okkur. Svo framleið- um við um helming þess hita- veituvatns sem er notað á höfuð- borgarsvæðinu,“ segir Páll. Hann undirstrikar að veituþjónusta OR, það er vatnsveita, hitaveita, frá- veita og dreifing rafmagns, verð- ur áfram rekin undir merki móð- urfélagsins. Um sextíu manns starfa hjá ON í höfuðstöðvum OR. Félagið hefur að sögn Páls náð að lágmarka rekstrarkostnað með samnýtingu á stoðþjónustu móðurfélagsins, til dæmis með því að nota bókhalds- og tölvukerfi OR. „Við höfum unnið að því að þessi breyting skapi sem minnst óhag- ræði fyrir viðskiptavini okkar og þeir þurfa í raun ekkert að gera til þess að halda áfram að nota þjónustuna. Við ætlum til dæmis að senda áfram út orkureikninga sameiginlega með OR til að forð- ast aukinn innheimtukostnað.“ Langur aðdragandi Stofnun ON átti sér langan aðdrag- anda og var frestað fjórum sinn- um á jafn mörgum árum. Þar var helst um að kenna slæmri skulda- stöðu OR. „Samkeppnin á raforkumarkað- inum hófst í rauninni árið 2005 og á þeim tíma þurfti að aðgreina sér- leyfis- og samkeppnisþættina bók- haldslega. Árið 2008 var ákveðið að gera kröfu um fyrirtækjauppskipt- ingu og hún hefur verið í undirbún- ingi í nokkur ár og tók gildi um ára- mótin,“ segir Páll og heldur áfram: „Frá því að raforkumarkaðurinn opnaðist hafa viðskiptavinir okkar að stærstum hluta komið af höfuð- borgarsvæðinu en í sífellt auknum mæli af öllu landinu. Stærstu ein- stöku viðskiptavinir okkar eru á Austurlandi og Vesturlandi og þar má nefna Síldarvinnsluna og Norð- urál á Grundartanga.“ Gera upp í Bandaríkjadollurum OR skuldar um 210 milljarða króna og hefur undanfarin ár stað- ið í umfangsmiklum hagræðing- araðgerðum. Tekjur nýja félags- ins af raforkusölu eru að stórum hluta í dollurum, og lánin í erlend- um gjaldeyri, og því er stefnt að því að ON verði gert upp í Banda- ríkjadollurum. „Orkuveitan er búin að vera að leita leiða til að ná stöðugleika og lágmarka áhættu og þetta er ein leið til þess og ætlunin er að sækja um heimild til þess á vormánuð- um,“ segir Páll. Spurður um hvar skuldir ON enduðu við uppskiptinguna segir Páll að efnahagsreikningur félags- ins sé myndaður með yfirfærslu eigna og skulda við móðurfélag- ið sem nemur þeim lánum sem til- heyra rekstri ON. „Þær skuldir sem tilheyra eign- um Orku náttúrunnar hvíla á henni, og hún greiðir þá móður- félaginu.“ Næstu skref Páll segir verkefni næstu mánaða snúast um að hasla félaginu völl á raforkumarkaði og kynningu á nýja vörumerkinu. „Síðan ætlum við að veita við- skiptavinum okkar enn betri þjón- ustu og gera það með góðri við- skiptastýringu til stærri fyrir- tækja og aukinni sjálfsafgreiðslu. VIÐTAL Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is Sér um virkjan Orka náttúrunnar, nýtt opinbert hlutafélag í eigu móðurfélagsins. Félagið á eignir upp á 130 millja leiðir hitaveituvatn. Páll Erland, framkvæmdastj Á HELLISHEIÐI Jarðvarmi úr um fimmtíu borholum er nýttur til framleiðslu á rafmagni í Hellisheiðarvirkjun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Orka náttúrunnar hefur meðal annars tekið við rekstri Nesjavallavirkjunar sem var gangsett 29. september 1990. Virkjunin, sem nýtir jarðvarmaorku úr Hengilssvæðinu, framleiðir 120 megavött af rafmagni og þrjú hundruð megavött í varmaorku (heitt vatn). Á Nesjavöllum hafa verið boraðar 25 holur, eitt þúsund til 2.200 metra djúpar. Hitastig í þeim hefur mælst allt að 380 gráður á Celsíus, að því er fram kemur á heimasíðu Orkuveitu Reykjavíkur. Þar segir einnig að meðalhola búi yfir sextíu megavatta orku sem nægir til hitaveitu fyrir 7.500 manns. NÝTIR JARÐVARMAORKU ÚR HENGILSSVÆÐINU FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Aðalfundur Viðskiptaráðs 2014 Miðvikudaginn 12. febrúar kl. 11 á Hilton hótel Nordica Fulltrúum allra aðildarfélaga Viðskiptaráðs Íslands er heimilt að sækja fundinn. Frestur til að koma að lagabreytingatillögum er þremur vikum fyrir auglýstan fund og skulu berast stjórn ráðsins. Dagskrá aðalfundar er samkvæmt 9. grein laga ráðsins: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Reikningar bornir upp til samþykktar. 3. Úrslit formanns- og stjórnarkjörs tilkynnt. 4. Lagabreytingar. 5. Kosning kjörnefndar. 6. Tekju- og gjaldaáætlun kynnt og árgjöld ákvörðuð. 7. Önnur mál. Nánari upplýsingar um fundinn, stjórnarkjör og atkvæðagreiðslu má finna á vef Viðskiptaráðs: www.vi.is VIÐSKIPTARÁÐ ÍSLANDS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.