Fréttablaðið - 08.01.2014, Side 10
8. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
INDLAND, AP Indverskir stjórnmálamenn reyna nú
hvað þeir geta til að sannfæra kjósendur um að
þeir muni að sjá til þess að lögreglan taki nauðg-
anir alvarlega.
Þingkosningar verða haldnar innan fárra mán-
aða og ekki fer lengur fram hjá neinum að slæleg
viðbrögð lögreglu og stjórnvalda gagnvart nauðg-
unum eru orðin að kosningamáli, sem gæti ráðið
úrslitum.
Hrottaleg hópnauðgun í Nýju-Delhi fyrir rúmu
ári vakti hörð viðbrögð og virðist hafa kostað
borgarstjórnina meirihlutann í borgarstjórnar-
kosningum í síðasta mánuði.
Önnur hrottaleg hópnauðgun í Kolkata nú í
desember hefur ýtt enn frekar undir óánægju
almennings, sem gagnrýnir nú hástöfum þá lin-
kind sem stjórnvöld og lögregla hafa lengi sýnt
gagnvart nauðgunum á Indlandi.
Þrátt fyrir fögur orð stjórnmálamanna undan-
farið ár virðist sem víða hafi fátt breyst. Konur
sem reynt hafa að kæra nauðganir lenda enn í
því að lögreglumenn taki þeim af fálæti, áreiti
þær jafnvel, reyni að múta þeim til að falla frá
ákærum eða hreki þær einfaldlega burt.
- gb
Indverskir stjórnmálamenn lofa að sjá til þess að lögreglan taki sig á:
Nauðganir orðnar kosningamál
MÓTMÆLI GEGN NAUÐGUNUM Á INDLANDI Hrottalegar
nauðganir hafa ítrekað vakið hörð viðbrögð almennings á Ind-
landi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NEYTENDUR „Við höfum í raun ekki
orðið vör við neina eftirspurn eftir
rafsígarettum,“ segir Þorgerður
Þráinsdóttir, forstöðumaður versl-
unar- og markaðssviðs Lyfju.
Rafsígarettur hafa notið vinsælda
erlendis, meðal annars til að hjálpa
fólki að hætta að reykja, en þær eru
ekki leyfðar hér á landi. Ekki hefur
verið sýnt fram á það með fullnægj-
andi hætti að rafsígarettur með
nikótíni séu skaðlausar og virki eins
og ætlast sé til. Lyfjastofnun, Neyt-
endastofa og Tollstjóri sendu nýlega
frá sér tilkynningu þar sem bent er
á að ekki sé heimilt að flytja inn og
dreifa rafsígarettum með nikótíni
og því munu rafsígarettur sem inni-
halda nikótín verða stöðvaðar í tolli.
Notkun á rafsígarettum líkist því
að reykja venjulegar sígarettur og
telja því margir að þær séu líklegri
til að hjálpa við að hætta reykingum
en þau nikótínlyf sem eru á mark-
aði. Sigríður Ólafsdóttir, hjá eftir-
litssviði Lyfjastofnunar, segir aftur
á móti niðurstöður rannsókna ekki
hafa stutt þá skoðun svo óyggjandi
sé.
„Stjórnvöld víða í Evrópu hafa
ekki leyft sölu á rafsígarettum því
ekki hefur enn verið sýnt fram á
með fullnægjandi hætti að vörurn-
ar séu skaðlausar og að þær virki
eins og ætlast er til.“
Sigríður segir efnagreiningar á
vegum Bandarísku lyfjastofnunar-
innar á gufum úr tveimur algengum
gerðum af rafsígarettum hafa leitt
í ljós að gæðum og öryggi þeirra
geti verið ábótavant. Merkingar
á nikótínmagni voru ekki alltaf í
samræmi við mælingar á innihaldi
og efnasamsetning var stundum
breytileg frá einni vörusendingu til
annarrar. Þar gat munað allt að 60
prósentum á nikótínmagni.
„Slíkur breytileiki getur valdið
aukaverkunum og ofskömmtun ef
magnið er of mikið eða fráhvarfs-
einkennum ef of lítið er af nikótín-
inu,“ segir Sigríður.
Einnig var sýnt að gufurnar úr
rafsígarettum innihalda efni sem
geta verið eitruð og krabbameins-
valdandi.
„Rannsóknir hafa leitt í ljós að
notendum rafsígaretta fjölgar hratt
í Bandaríkjunum. Það er athyglis-
vert að fjöldi unglinga sem notuðu
rafsígarettur tvöfaldaðist milli
áranna 2011 og 2012 og einn af
hverjum fimm rafsígarettunotend-
um á aldrinum 12 til 14 ára hafði
aldrei prófað sígarettur áður,“ segir
Sigríður.
erlabjorg@frettabladid.is,
kristjana@frettabladid.is
Lítil eftirspurn eftir
rafrettum á Íslandi
Þrátt fyrir að rafsígarettur séu vinsælar erlendis er ekki að merkja aukinn áhuga
hér á landi að sögn markaðsstjóra Lyfju. Innflutningur er bannaður þar sem ekki
hefur tekist að sýna fram á skaðleysi þeirra eða virkni í rannsóknum.
RAFRETTUR Margir sem hætta að reykja styðjast við nikótínlyf. Hér á landi er
ekki heimilt að flytja þær inn og dreifa þeim og segir markaðsstjóri Lyfju að eftir-
spurn hafi verið . NORDICPHOTOS/AFP
Það er
athyglisvert
að fjöldi
(bandarískra)
unglinga
sem notuðu
rafsígarettur
tvöfaldaðist milli áranna
2011 og 2012.
Sigríður Ólafsdóttir,
eftirlitssviði Lyfjastofnunar
ÁSTRALÍA, AP Rússneska rannsókna-
skipið Akademik Sjokalskí og kín-
verski ísbrjóturinn Xue Long, eða
Snjódrekinn, eru laus úr ísnum við
Suðurskautslandið.
Rússneska skipið hefur setið þar
fast í ísnum frá því á jólum en kín-
verska skipið, sem bjargaði farþeg-
um af rússneska skipinu, festist
fyrir helgi. Bandarískur ísbrjótur
var sendur af stað áleiðis til þeirra
á sunnudag, en var ekki kominn á
vettvang þegar skipunum tókst að
brjótast út úr ísnum. - gb
Í vanda við Suðurskaut:
Bæði skipin
laus úr ísnum
NEYTENDUR „Uppleggið í þessum
kjarasamningum og skilaboð frá
atvinnurekendum eru þau að halda
eigi aftur af verðhækkunum eins
og hægt er. Þar af leiðandi er það
mikið áhyggjuefni þegar innlendir
framleiðendur hækka verð á sínum
vörum því það mun skila sér út í
verðlagið,“ segir Andrés Magnússon
framkvæmdastjóri Samtaka versl-
unar og þjónustu aðspurður um full-
yrðingar Gunnars Inga Sigurðsson-
ar, framkvæmdastjóra Hagkaupa, á
Bylgjunni í gær. Þar sagði Gunnar
að verðhækkanir væru yfirvofandi.
„Það eru nú þegar fjórir birgj-
ar sem boðað hafa einhverj-
ar hækkanir á sínum vörum,
allt frá 3% og upp í 7%, þrátt
fyrir styrkingu krónunnar.“
Hann nefndi sem dæmi að ís frá
Emmess muni hækka um 4,5%,
próteindrykkurinn Hámark um
5%, og Freyjusælgæti um 7%.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
sagði einnig á Bylgjunni að mikil-
vægt væri að ná tökum á verðbólgu
og ná niður vöxtum.
„En ef atvinnulífið ætlar að nota
þessa stöðu til þess að hækka sína
álagningu og auka sinn hagnað, þá
fá þeir bara til baka aukna verð-
bólgu og vaxtahækkanir og ég sé
ekki hvernig þeim verður mikið
betur borgið við það.“
Mörg fyrirtækjanna sem Gunnar
minntist á eru innan Samtaka iðn-
aðarins. Svana Helen Björnsdóttir,
formaður samtakanna, segir í sam-
tali við Fréttablaðið að hún hvetji
eindregið til þess að verð á vöru og
þjónustu verði ekki hækkað. - ka
Birgjar hafa boðað hækkanir á vörum sínum um allt að 7% þrátt fyrir styrkingu krónunnar:
Óttast yfirvofandi hækkanir á vöruverði
MIKIÐ ÁHYGGJUEFNI Framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjónustu
segir hækkanir mikið áhyggjuefni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hef opnað stofu í Lífsteini,
Álftamýri 1-5, Reykjavík
Tímapantanir alla virka daga
í síma 530-8300
Ragnheiður Árnadóttir læknir
Sérgrein: Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp
Hlíðasmári 10, 201, Kópavogi
Sími 568 3868
matarfikn@mfm.is
www.matarfikn.is
Stjórnar át og þyngdarvandi lífi þínu?
Nýtt líf: 5 vikna námskeið fyrir byrjendur hefst 14.01.14.
Fráhald í forgang: Framhaldshópar hefjast 3. og 5.02.14.
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is www.sorg. is sorg@sorg. is
Valgerður Magnúsdóttir sálfræðingur fjallar um efnið
á fræðslukvöldi Nýrrar dögunar fimmtudagskvöldið
9. janúar kl. 20:00 í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Aðgangur er ókeypis og opinn öllum.
Allir velkomnir.