Fréttablaðið - 08.01.2014, Page 19
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 8. janúar 2014 | 1. tölublað | 9. árgangur
Vilja sinna ferðageiranum
Pipar\Travel nefnist ný deild
innan auglýsingastofunnar Pipar\
TBWA sem veita á ferðaþjónustu-
fyrirtækjum sérfræðiþjónustu.
Verkefnastjóri Pipar\Travel,
Unnar Bergþórsson, var ráðinn
til starfa í fyrra en nýbúið er að
hleypa þjónustunni af stokkun-
um. „Fram að þessu hefur hefð-
bundin þjónusta auglýsingastofa
ekki hentað þessum geira sérlega vel, þar sem
„varan“ sem verið er að selja er eðlisólík ann-
arri vöru – hún snýst um upplifanir og þjónustu,“
segir á vef fyrirtækisins. - óká
UNNAR
BERGÞÓRSSON
Minni verðbólga í evrulöndum
Verðbólga í evrulöndunum 17 minnkaði enn í des-
ember samkvæmt nýbirtum tölum Eurostat, hag-
stofu Evrópusambandsins. Eykst því þrýstingur á
seðlabanka Evrópu að auka slaka í peningastjórn-
inni. Verðbólga fór úr 0,9 prósentum í nóvember í
0,8 prósent í desember. Peningastefna Seðlabanka
Evrópu miðar við að halda verðbólgu rétt undir
tveimur prósentum. Verðbólgan er þó enn yfir 0,7
prósenta metlægð októbermánaðar, en þá lækkaði
seðlabankinn stýrivexti í 0,25 prósent og hafa þeir
aldrei verið lægri. Á morgun er vaxtaákvörðunar-
dagur í Evrópu og veðja flestir hagfræðingar á að
stýrivöxtum verði haldið óbreyttum. - óká
Virðið jókst um 50 milljarða
Á síðasta ári bar Icelandair höfuð og herðar yfir
önnur fyrirtæki í Kauphöllinni þegar horft er til
hækkunar markaðsvirðis, að því er fram kemur í
umfjöllun Greiningar Íslandsbanka. „Hækkun á
árinu nam 121 prósenti og hækkaði markaðsvirði
félagsins um rétt tæplega 50 milljarða króna,“
segir þar. Þá er bent á að markaðsvirði Icelandair
hafi verið 41 milljarður í byrjun árs 2013, en verið
komið í 91 milljarð í lok árs og 96 milljarða í byrj-
un þessarar viku. Markaðsvirði Marels hafi hins
vegar verið 106 milljarðar í byrjun árs en verið
komið í 98 milljarða í lok árs. Núna er það rúmlega
101 milljarður. „Icelandair stefnir því hraðbyri í að
verða stærsta félagið á innlenda hlutabréfamark-
aðinum,“ segir í umfjöllun Greiningar. - óká
Sjónmælingar í Optical Studio
Tímapantanir í síma:
Optical Studio í Smáralind, 5288500
Optical Studio í Keflavík, 4213811
Optical Studio í Leifsstöð, 4250500
OYSTER PERPETUAL LADY-DATEJUST PEARLMASTER
V I Ð KO M U M
V Í ÐA V I Ð !
ORKA
NÁTTÚRUNNAR
MÆTIR TIL LEIKS
➜ Viðtal við Pál Erland,
framkvæmdastjóra Orku
náttúrunnar.
➜ Félagið hefur tekið við
rekstri virkjana og raforkusölu
Orkuveitu Reykjavíkur.
➜ Það á eignir upp á
130 milljarða króna og
selur 75 þúsund heimilum
og fyrirtækjum raforku.
SÍÐA 4