Fréttablaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 38
8. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26
„Þetta er frábært og mikill
heiður fyrir mig,“ segir Magn-
ea Gunnarsdóttir keppandi í
módelfitness en hún gerði á dög-
unum samning við einn stærsta
fæðubótarefnaframleiðanda í
Evrópu, SciTec Nutrition.
Hún er einungis nítján ára
gömul en hefur þó keppt í
módelfi tness frá því hún var
sautján ára.
„Ég fékk samning sendan
heim sem var níu blaðsíður og
þetta er mjög góður samning ur
fyrir mig. Ég þarf að senda þeim
vikulega myndir og æfi nga-
myndbönd af mér svo þeir
geti sett það á síðurnar sínar,“
útskýrir Magnea.
Þá mun hún vera nokkurs
konar andlit fyrirtækisins
og koma fram á svokölluðum
vörusýningum sem haldnar eru
á ýmsum viðburðum.
„Ég fer í myndatöku fyrir þá
og verð á
einhverjum
viðburðum
til að kynna
vörurn-
ar þeirra.
Á fl est-
um mótum
er svona
vörusýn-
ing og eru
þeir yfi rleitt
með risa-
bás, ég hef
lofað að vera
á svona bás á
mótum og fæ
þá allt greitt
og laun,“
bætir Magn-
ea við. Magnea er fyrsti Íslend-
ingurinn sem kemst á samn-
ing hjá fyrirtækinu. Fjölmargir
afreksíþrótta menn út um allan
heim eru með samning við
fyrirtækið.
SciTec Nutrition hafa ákveðið
að styrkja hana með fæðubótar-
efnum en Sportlíf er umboðsað-
ili SciTec Nutrition á Íslandi.
SciTec eru stærstir og leiðandi
á markaðnum í Evrópu og selja
yfi r fi mmtán hundruð tonn af
prótíni árlega. Þeir bjóða upp á
tvö hundruð vörutegundir í sjö
hundruð mismunandi bragðteg-
undum og stærðum.
Magnea er á leið á Arnold’s
Classic-mótið í febrúar í annað
sinn en þegar hún keppti þar í
fyrsta skiptið, aðeins sautján
ára gömul, lenti hún í þriðja
sæti. Hún hefur keppt á fjöl-
da móta og hefur meðal annars
náð sér í bikarmeistaratitil hér
á landi.
Hún stundar nám við Mennta-
skólann við Sund.
„Þegar maður er í svona íþrótt
þá verður maður mjög skipu-
lagður og þess vegna hafa ein-
kunn irnar í skólanum þotið upp,“
bætir Magnea við létt í lundu.
gunnarleo@frettabladid.is
Ég þarf
að senda
þeim vikulega
myndir og
æfingamynd-
bönd af mér
svo þeir geti
sett það á
síðurnar
sínar.
Magnea
Gunnarsdóttir
Andlit stórfyrirtækis í
fæðubótarheiminum
Magnea Gunnarsdóttir, keppandi í módelfi tness, er fyrsti Íslendingurinn sem
gerir samning við einn stærsta framleiðanda fæðubótarefna í Evrópu.
Kristján Freyr Halldórsson hjá
Bókabúð Máls og menningar segir
að mest seldu bókunum hafi líka
verið oftast skilað. „Það er ekk-
ert afbrigðilegt í þeim tölum. Það
kallast bara á við þær bækur sem
eru mest seldar.“ Bækurnar sem
seldust mest voru Fiskarnir hafa
enga fætur eftir Jón Kalman, Vís-
indabók Villa eftir Vilhelm Anton
Jónsson, Lygi eftir Yrsu Sigurð-
ardóttur, Mánasteinn eftir Sjón,
og Tímakistan eftir Andra Snæ.
„Þessum bókum var líka oftast
skilað. Svo eru aðrar bækur sem
kláruðust fyrir jólin og hefðu
getað selst mun meira. En þeim
hefur aftur á móti verið skilað
minna. Til dæmis bók Guðmund-
ar Andra, Sæmd. Henni hefur
lítið sem ekkert verið skilað. Ég
leyfi mér að nefna það sem eina
af ástæðunum fyrir því að henni
var lítið skilað að hún seldist upp.
Nema þeir sem völdu hana í gjöf
séu svona ratvísir.“ - ue
Sæmd lítið skilað
Villa, Yrsu, Andra Snæ og Jóni Kalmani mest skilað.
„Ég er stödd í fjörutíu stiga hita
í Mendoza í Argentínu. Félagar
mínir hjá Íslenskum fjallaleiðsögu-
mönnum, með Leif Örn Svavarsson
fremstan í flokki, koma á svæðið í
dag og þá hefjum við leiðangur á
næsta fjall, Aconcagua. Það verð-
ur þá minn fimmti tindur ef allt
gengur að óskum. Á morgun þurf-
um við að ganga frá ýmsum leyfum
og síðan leggjum við af stað,“ segir
pólfarinn Vilborg Arna Gissurar-
dóttir.
„Aconcagua er oft vanmetinn af
því að hann er ekki tæknilega erf-
iður en gríðarlega hár. Hann er
tæpir sjö þúsund metrar og það er
alltaf áskorun að fara í svona hæð.
Um helmingur sem leggur af stað
kemst ekki upp.“
Vilborg eyddi jólunum í að klífa
Vinson Massif, hæsta tind Suður-
skautslandsins og hefur eytt síð-
ustu tíu dögum í að ferðast á milli
staða og hvíla sig fyrir næstu átök.
„Það var ótrúleg upplifun að klífa
Vinson Massif. Það var frekar kalt
eins og gefur að skilja og nú er ég
að upplifa um áttatíu stiga hitamun.
Það var æðislegt að koma til baka
á suðurskautið og fékk ég stór-
kostlegar móttökur enda kynntist
ég mörgum í fyrra. Landslagið er
svo stórkostlegt að það er eiginlega
ekki hægt að lýsa því. Það er margt
við tindinn sem er exótískt þó hann
sé ekki tæknilega erfiðastur en
það er margt í kringum hann sem
eykur á upplifunina,“ segir Vilborg.
Þetta eru önnur jólin í röð sem hún
eyðir á suðurskautinu.
„Ég missi af jólahefðunum og
öðru en ég fæ svo margt í staðinn.
Ég hef haft það þannig að ég fæ smá
jólamat þegar ég kem heim,“ segir
Vilborg, sem kemur til Íslands 28.
janúar ef allt fer samkvæmt áætlun.
Þá hefur hún verið á rúmlega sex
vikna ferðalagi og vonandi búin að
ná toppnum á tveimur tindum. Þá á
hún tvo tinda eftir af tindunum sjö
– Kilimanjaro og Everest. - lkg
Pólfarinn borðar jólamatinn í lok janúar
Pólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir byrjar ferð sína á tindinn Aconcagua í Suður-Ameríku nú í vikunni. Hún
kleif nýverið hæsta tind Suðurskautslandsins og eyddi öðrum jólunum í röð á þeim slóðum í nístingskulda.
SKEMMTILEG TILVILJUN Vilborg hitti
leik- og söngkonuna Höllu Vilhjálms-
dóttur á Vinson Massif og segir hana
hörku fjallageit. MYND/EINKASAFN
Í FLOTTU
FORMI
Magnea
Gunnars-
dóttir
er fyrsti
Íslend-
ingurinn
sem kemst
á samning
hjá SciTec
Nutrition.
MYND/
KRISTJÁN FREYR
ÞRASTARSON
ÆFIR
TVISVAR
Á DAG
Það þarf
skipulag
og dugnað
til að skara
fram úr.
Listkennsludeild Listaháskóla
Íslands býður upp á opin nám-
skeið í listkennslugreinum. Vig-
dís Jakobsdóttir er aðjúnkt við
listkennsludeild og hefur umsjón
með þessum námskeiðum.
„Við höfum starfrækt list-
kennsludeild í þrjá vetur. Fyrir
tveimur árum fórum við að hugsa
um hvernig við gætum þjónað
vettvanginum betur,“ segir Vigdís.
„Við höfðum fengið margar
fyrir spurnir um það hvort mögu-
legt væri að fá aðgang að nám-
skeiðum án þess að skrá sig í fullt
nám. Við ákváðum því að bjóða
upp á aðgang að námskeiðunum.
Þetta er fyrst og fremst hugsað
fyrir starfandi listgreinakenn-
ara og listafólk sem hefur áhuga
á kennslu.“
Öll námskeiðin eru líka sótt af
nemendum í meistaranámi í list-
kennslu.
„Þetta er leið fyrir okkur til
að tengja listavettvanginn og
vettvang listkennslu beint inn í
námið. Þarna verður til spenn-
andi samtal á milli nemenda í list-
greinakennslu og starfandi lista-
manna og listgreinakennara. Allt
þetta fólk lærir hvert af öðru. Við
höfum verið með ýmislegt í boði,
til dæmis nám í listmeðferð sem
hefur alveg slegið í gegn. Biðlist-
arnir í það eru fullir. Síðan erum
við með námskeið í aðferðum
leiklistar í kennslu, og námskeið í
barna- og unglingakórstjórn sem
Þórunn Björnsdóttir kennir, og
margt fleira.“ Námskeiðin kosta
á bilinu 23.000 til 35.500 krónur.
- ue
Fullir biðlistar
í listþerapíu
Listkennsludeild LHÍ býður upp á opin námskeið.
AÐJÚNKT Vigdís Jakobsdóttir er
aðjúnkt við listkennsludeild Lista-
háskóla Íslands.
LYGI Bók Yrsu Sigurðardóttur
var einna mest skilað, enda
einna mest seld.