Fréttablaðið - 08.01.2014, Blaðsíða 40
8. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 28
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
„Ég vildi breiða út boðskapinn,“
segir Ragnar Hansson kvikmynda-
gerðarmaður og maðurinn á bak við
aðdáendahóp Alans Gordons Part-
ridge á Íslandi.
„Ég byrjaði með þennan hóp á
Facebook því ég hef verið gallharð-
ur aðdáandi þessa karakters í gegn-
um árin. Ég vissi að ég ætti vini
sem væru sama sinnis og bauð
þeim að vera með fyrir tveimur
eða þremur árum,“ segir Ragnar
um tilkomu hópsins.
„Við höfum haldið þessu mjög
aktívu og nýlega opnuðum við
fyrir umsóknir í grúppuna, en til
að öðlast inngöngu í hópinn þurftu
tilvonandi meðlimir að setja inn
uppáhaldstilvitnanir sínar í kar-
akterinn,“ segir Ragnar. Meðal
meðlima í aðdáendahópnum eru
höfundurinn Hugleikur Dagsson,
tónlistar- og myndlistarmaðurinn
Lóa Hjálmtýsdóttir og kvikmynda-
gerðarmaðurinn Árni Sveinsson.
Karakterinn hefur haft mikil
áhrif á Ragnar.
„Alan Partridge hefur fylgt mér
síðan seint á síðustu öld og litað mitt
líf. Ég leikstýrði til dæmis Sigtinu
með Frímanni Gunnarssyni og var
þar sakaður um að hafa stolið svo-
lítið af hugmyndum frá Partridge.
Það er alls ekki rétt, enda eru Frí-
mann og Alan Partridge mjög ólík-
ir, þó að þeir séu báðir mislukkaðir
fjölmiðlamenn,“ útskýrir Ragnar,
sem segist hafa kveikt á Partridge
þegar hann sá hann fyrst á VHS-
spólu hjá vini sínum, Gauki Úlfars-
syni.
„Það var vegna þess að hann
minnti mig svo á pabba minn að
mér fannst hann svona fyndinn. Svo
átti ég leið til London skömmu síðar
og keypti þættina á VHS-spólu og
gaf pabba sem var ekkert sérstak-
lega ánægður með gjöfina,“ segir
Ragnar léttur í bragði, og bætir við
að Frímann hafi verið byggður að
miklu leyti á pabba hans.
„Þessi húmor hefur haft gríðar-
leg áhrif á mig og Alan Partridge er
án efa besta grínpersóna sem sköp-
uð hefur verið. Ég get alltaf hlegið
að honum. Og þó að Steve Coogan
sé búinn að leika hann í tuttugu ár
hefur hann alltaf haldið gríðarlega
miklum metnaði, sem ég kann vel
að meta,“ segir Ragnar og bætir við
að nýjasta útspil Partridges, kvik-
myndin Alpha Papa sem er nú sýnd
í Bíói Paradís, hafi verið frábær.
„Þetta er fyndnasta mynd sem ég
hef séð lengi. Við höfðum sérstaka
forsýningu fyrir meðlimi aðdá-
endahópsins og það var jafnframt
í fyrsta sinn sem við hittumst öll
sem hópur í raunheimum,“ segir
Ragnar. olof@frettabladid.is
„Besta grínpersóna sem
sköpuð hefur verið“
Ragnar Hansson er maðurinn á bak við aðdáendahóp Alans Partridge á Íslandi.
AÐDÁENDUR BREGÐA Á LEIK Árni Sveinsson, Ragnar Hansson og Hugleikur Dagsson eru meðal meðlima í aðdáendahópi
Alans Partridge. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ég leikstýrði Sigtinu
með Frímanni Gunnarssyni
og var þar sakaður um að
hafa stolið svolítið af
hugmyndum frá Partridge.
Það er alls ekki rétt, enda
eru Frímann og Alan
Partridge mjög ólíkir, þó
að þeir séu báðir mislukk-
aðir fjölmiðlamenn,“
Save the Children á Íslandi
Nýtt upphaf! Ný tækifæri! Nýtt líf! Ég drattast fram úr í kolniðamyrkri og
tíni á mig spjarirnar, fyrsta heila vinnu-
vikan í langan tíma er fram undan og það
er janúar. Úti bítur frostið og vindgnauðið
smýgur inn um hlustirnar. Byrjaðu núna!
Engar afsakanir! Ég feta mig eftir svell-
bunkanum og sýg upp í nefið.
MENN eru víst komnir á kolvetna-
laust heyri ég útundan mér, sneiða
hjá sterkju og drekka sítrónuvatn
á fastandi maga. Fólk deilir á milli
sín leiðbeiningum um innkaup fyrir
þennan og hinn kúrinn. Einhverjir
ætla að fasta. Alls staðar er fólk að snúa
við blaðinu, taka sig á og varla hægt
að fletta blaði né opna netið án þess
að dynji á manni skilaboð frá
bísperrtum heilsuspekúlöntum
með uppskriftir að bættum lífs-
stíl. Lausnina fyrir þig! Og mig
sjálfsagt líka.
EN ég er lítið í lausnum svona
á janúarmorgni. Vaknaði ekki
fyrr til að skjótast í ræktina
áður en vinnudagur hæfist. Er
ekki einu sinni búin að kaupa mér kort.
Skokkaði heldur ekki hring í hverfinu fyrir
morgunmat og þeytti ekki grænan klíðis-
hristing í blandaranum í morgun. Ég bara
drattaðist.
UNDANFARNAR vikur hafa enda snú-
ist um allt annað. Það er ekki langt síðan
ég leitaði ákaft að uppskrift að mjúkum
súkkulaðismákökum. Ég datt niður á eina
sem innihélt svo mikið smjör, svo mikið
súkkulaði og svo mikinn sykur að útkoman
varð draumi líkust. Uppskriftin dugði í 70
kökur! Ég bakaði tvo umganga.
ÞAÐ er enn styttra síðan ég skóflaði í mig
dísætri pavlóvu og drakk heitt súkkul-
aði með rjóma með án þess að blikna, og
það rétt eftir að ég hafði farið tvær ferðir í
majonesbaðaða smurbrauðstertuna og heita
réttinn! Ég kæmist ekki upp með það í dag.
EN ég mátti eiga von á þessu. Þessi lífs-
stílskúvending yfirtekur alltaf allt um leið
og nýtt ár gengur í garð. Kaldranalegt,
svona á kaldasta tíma ársins. Ég læt minn-
inguna um pavlóvuna fleyta mér inn í nýja
árið.
Kaldranaleg kúvending
Alan Gordon Partridge er kar-
akter leikinn af enska grínist-
anum Steve Coogan. Partridge
er hugarsmíði Coogans, Arm-
ando Iannucci og fleiri höfunda
On The Hour, sem er útvarps-
þáttur á BBC Radio 4. Partridge
skopstælir íþróttafréttamenn og
spjallþáttastjórnendur, svo dæmi
séu tekin, og hefur komið fyrir í
tveimur útvarpsseríum, fjórum
sjónvarpsseríum og fjölmörgum
sjónvarps- og útvarpsþáttum, til
að mynda Comic Relief-þáttun-
um úr smiðju BBC, en sá þáttur
hefur fylgst með skálduðum ferli
Alans Partridge frá byrjun. Þá
hefur karakterinn komið fyrir í
grínseríum á borð við Knowing
Me, Knowing You with Alan Part-
ridge og I‘m Alan Partridge. Í
ágúst í fyrra kom út kvikmynd
í fullri lengd með Partridge í
aðalhlutverki, en sú heitir Alan
Partridge: Alpha Papa, og var
nýlega tekin til sýningar í Bíói
Paradís. Myndin var heimsfrum-
sýnd í Norwich, í Englandi, þaðan
sem Partridge er, en þegar pers-
ónan var búin til gætti mikillar
óánægju meðal íbúa Norwich
með valið á heimabænum. Í dag
horfir öðruvísi við, enda pers-
ónan orðin rótgróin og hluti af
enskri poppmenningu.
Þá hefur Partridge gefið út sjálfs-
ævisögu persónunnar sem heitir
I, Partridge: We Need To Talk
About Alan og er skrifuð út frá
Partridge sjálfum, sem er jafn-
framt titlaður höfundur verksins.
Verkefni Partridge eru yfirleitt
framsett eins og um raunveru-
legan fréttamann sé að ræða, en
einkar mislukkaðan. - ósk
Hver er Alan
Partridge?
ALAN PARTRIDGE MYND/GETTY
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
T.V. - BÍÓVEFURINN/SÉÐ OG HEYRT
ROLLING STONE
EMPIRE
THE GUARDIAN
NÝJASTA MYND MICHEL GONDRY
MOOD INDIGO
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
SECRET LIFE OF WALTER MITTY
SECRET ... WALTER MITTY LÚXUS
THE HOBBIT 3D 48R
THE HOBBIT 3D 48R LÚXUS
RISAEÐLURNAR 3D
RISAEÐLURNAR 2D
SECRET LIFE OF WALTER MITTY
THE HOBBIT 3D
THE HUNGER GAMES 2
KL. 3.30 - 5.30 - 6 - 8 - 9 - 10.30
KL. 8 - 10.30
KL. 4.30 - 6 - 8 - 9.30
KL. 4.30
KL. 3.30
KL. 3.30
Miðasala á: og
KL. 5.30 - 6.30 - 8 - 9 - 10.30
KL. 5.30 - 9
KL. 6 - 9
NÁNAR Á MIÐI.IS
SECRET LIFE OF WALTER MITTY
THE HOBBIT 3D
RISAEÐLURNAR 3D
KL. 8 - 10.10
KL. 6 - 9
KL. 6
-S.G.S., MBL
„LISTILEGT SAMSPIL DRAUMA OG
RAUNVERULEIKA SEM HEFÐI VEL
GETAÐ KLIKKAÐ EN SVÍNVIRKAR“
-L. K.G., FBL
SECRET LIFE OF WALTER MITTY 5:30, 8, 10:20
HOBBIT 2 4, 10:20
ANCHORMAN 2 8, 10:30
FROZEN 2D 4:45
S.G.S - MBL
„Mjög skemmtileg mynd, mikið hlegið“
-Nanna Bryndís, Of Monsters and Men
sýnd í 3d 48 rammaS R
STEVE
COOGAN