Fréttablaðið - 08.01.2014, Síða 42
8. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 30
Framan af tíma-
bili var þetta þungt og
mjög erfitt. Ég fékk mjög
lítið að spila.
Ásgeir Örn Hallgrímsson,
leikmaður PSG.
DOMINOS-DEILDIN
Úrvalslið kvenna:
Hildur Björg Kjartansdóttir, Snæfelli
Sara Rún Hinriksdóttir, Keflavík
Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík
Lele Hardy, Haukum
Hildur Sigurðardóttir, Snæfelli
Besti þjálfarinn:
Andy Johnston, Keflavík
Dugnaðarforkurinn:
Marín Laufey Davíðsdóttir, Hamri
Úrvalslið karla:
Ragnar Nathanaelsson, Þór Þ.
Pavel Ermolinskij, KR
Michael Craion, Keflavík
Martin Hermannsson, KR
Elvar Már Friðriksson, Njarðvík
Besti þjálfarinn:
Finnur Freyr Stefánsson, KR
Dugnaðarforkurinn:
Darri Hilmarsson, KR
Besti dómarinn:
Sigmundur Már Herbertsson
HANDBOLTI Ekkert varð af því að Aron
Kristjánsson tilkynnti EM-hópinn sinn
í gær. Sökum meiðslavandræða mun
hann ekki gera það fyrr en á morgun
og liðið heldur svo til Danmerkur á
föstudag.
„Arnór Atlason og Arnór Gunnars
æfðu með okkur í dag [í gær] og litu
vel út. Ég reikna því með að þeir verði
klárir. Þórir Ólafsson lítur líka vel út
með framhaldið,“ segir Aron Kristjáns-
son landsliðsþjálfari en fleiri leikmenn
eru að glíma við meiðsli.
„Guðjón Valur er tæpur og kemur
ekki í ljós með hann fyrr en á síðustu
stundu. Hann þarf að fara varlega
með sín meiðsli. Ólafur Bjarki er líka
spurningarmerki og verður það áfram.
Gaui og Óli eru stóru spurningar-
merkin hjá okkur núna,“ segir Aron en
Ólafur Bjarki meiddist í æfingamótinu
í Þýskalandi þar sem hann hafði verið
að spila vel.
Það hefur verið nóg að gera hjá
læknum og sjúkraþjálfurum liðsins
síðustu daga og verður það áfram úti í
Danmörku.
„Við berum auðvitað fyllsta traust
til okkar sterka sjúkrateymis, að það
haldi leikmönnum gangandi. Það eru
fjórir í því teymi og verður nóg að gera
hjá þeim.“
Fyrsti leikur Íslands á EM er gegn
Norðmönnum á sunnudag. - hbg
Guðjón Valur og Ólafur Bjarki eru stóru spurningarmerkin
ÁHYGGJUR Undirbúningur þjálfarans
hefur ekki verið auðveldur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Njarðvíkingurinn
Elvar Már Friðriksson og Lele
Hardy, leikmaður Hauka, voru
í gær útnefnd bestu leikmenn í
fyrri hluta Dominos-deilda karla
og kvenna.
Hardy hefur borið höfuð og
herðar yfir aðra leikmenn í deild-
inni en hún er bæði stiga- og frá-
kastahæst. Hún hefur skorað rúm
30 stig og tekið rúm 20 fráköst að
meðaltali í leik. Þá er hún í öðru
sæti yfir flestar stoðsendingar
eða 5,87 að meðaltali í leik.
Haukar eru í öðru sæti deild-
arinnar með 20 stig, rétt eins
og Keflavík, en Snæfell er á
toppnum með 24 stig. Keflavík og
Snæfell eiga tvo leikmenn hvort
í úrvalsliðinu og Keflvíkingar
besta þjálfarann.
Elvar Már hefur einnig farið á
kostum í vetur en hann er fjórði
stigahæsti leikmaður deildarinn-
ar og með flest stig allra Íslend-
inga eða tæplega 25 að meðaltali
í leik. Hann er svo í þriðja sæti
stoðsendingalistans með 7,18 að
meðaltali í leik.
Njarðvík er í fjórða sæti Dom-
ino‘s-deildar karla með fjórtán
stig en KR trónir á toppnum með
fullt hús stiga. KR-ingar áttu tvo
fulltrúa í úrvalsliði fyrri umferð-
arinnar sem og besta þjálfarann.
- esá
Elvar og Hardy
valin best
BEST Lele Hardy með sín verðlaun.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
BESTUR Elvar Már hefur spilað frábær-
lega í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Norska dagblaðið Verdens Gang birti í gær átján
manna úrvalslið knattspyrnumanna frá Norður-
löndunum. Ísland á tvo leikmenn í byrjunarliði
sem og besta þjálfarann.
Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð Finnbogason
komast báðir í byrjunarliðið hjá VG en þeir
Kolbeinn Sigþórsson og Aron Einar Gunnarsson eru
á bekknum. Þá er Lars Lagerbäck settur sem þjálfari
liðsins.
Blaðamenn VG hafa greinilega mestar mætur á
danska landsliðinu en alls komust sjö Danir í hópinn,
þar af sex í byrjunarliðið.
Svíþjóð, Noregur og Finnland eiga aðeins einn leik-
mann hvert í byrjunarliðinu en Svíar eru með þrjá
menn á bekknum þar að auki. - esá
Ísland á fi mm í Norðurlandaúrvalinu
SPORT
HANDBOLTI „Ég er nokkuð sáttur
við minn spiltíma undanfarið,“
segir línumaðurinn Róbert Gunn-
arsson, sem ásamt Ásgeiri Erni
Hallgrímssyni hefur lífsviður-
væri sitt hjá franska liðinu Paris
Saint-Germain. Landsliðsmenn-
irnir gengu í raðir félagsins sum-
arið 2012 og urðu franskir meist-
arar með liðinu síðastliðið vor.
Ári fyrr var liðið hársbreidd frá
falli en síðan hefur miklu verið
kostað til hjá liðinu sem er í eigu
fjárfestingarfélags frá Katar.
„Það kemur fyrir að ég spila
ekki neitt og svo spila ég kannski
allan næsta leik. Það hefur ekki
verið neinn taktur í þessu,“ segir
Róbert. Ásgeir Örn er öllu ósátt-
ari við sitt hlutskipti á hægri
vængnum en þó hefur aðeins
verið að birta til.
„Framan af tímabili var þetta
þungt og mjög erfitt. Ég fékk
mjög lítið að spila,“ segir Ásgeir
Örn. „Ég er ekki sáttur en maður
er ánægður ef þetta er að verða
betra.“
Allir átján eru frábærir
Ásgeir Örn minnir á að leik-
mannahópur liðsins sé afar sterk-
ur. Þjálfarinn Philippe Gardent
sé duglegur að minna á það sé
hann spurður út í hlutverk sitt.
„Við erum með átján leikmenn í
hópnum og allir frábærir. Það er
ekki eins og ég sé bara með kjúk-
lingunum á bekknum. Við erum
allir landsliðsmenn með yfir 100
landsleiki og lykilmenn þar,“
segir Ásgeir Örn, sem er uppal-
inn hjá Haukum í Hafnarfirði en
hélt í atvinnumennsku til Lemgo
í Þýskalandi árið 2005.
„Þetta snýst ekki endilega um
að maður sé of lélegur. Það eru
bara of margir góðir í liðinu sem
býr til vandræði hjá þeim sem
spila of lítið.“
Þakkar fyrir landsliðshlutverkið
Ásgeir Örn og Róbert voru í eld-
línunni með íslenska landsliðinu á
fjögurra þjóða móti í Þýskalandi
um liðna helgi. Mikil ábyrgð er
á herðum Ásgeirs Arnar í ljósi
þess að Ólafur Stefánsson hefur
lagt skóna á hilluna og Alexand-
er Petersson gefur ekki kost á sér
vegna meiðsla.
„Það er annað en hjá félags-
liðinu svo það er ljómandi fínt.
Maður þakkar fyrir það og reyn-
ir að nýta tækifærið eins vel og
maður getur,“ segir örvhenta
skyttan sem verður þrítug á
árinu. EM í Danmörku hefst um
helgina en töluvert er um meiðsli
í herbúðum Íslands. Arnór Atla-
son og Guðjón Valur Sigurðsson
fóru til að mynda ekki með lands-
liðinu í æfingaferðina til Þýska-
lands um liðna helgi og sömu sögu
er að segja um hornamanninn
Arnór Þór Gunnarsson. Þá geng-
ur Aron Pálmarsson ekki heill til
skógar frekar en Ólafur Bjarki
Ragnarsson og Þórir Ólafsson.
Róbert segir það ekki hjálpa
að velta sér upp úr því neikvæða
heldur verði að horfa fram á veg-
inn. Óreyndari leikmenn verði að
nota tækifærið sem þeim bjóðist í
Danmörku og láta ljós sitt skína.
Ætti að vera eitt besta lið heims
Þegar umræðan berst að gengi
Parísarliðsins á tímabilinu renna
tvær grímur á okkar menn. Mik-
ils var vænst af liðinu sem er með
landsliðsmenn í hverri stöðu. Má
nefna Danann Mikkel Hansen,
Frakkana Daniel Narcisse og Luc
Abalo og Króatana Igor Vori og
Marko Kopljar sem dæmi. Allt
leikmenn í fremstu röð í heim-
inum.
Róbert minnir á að liðið deili
toppsætinu í deildinni og sé
komið áfram í bikarnum. Hins
vegar hafi liðið tapað tveimur
deildarleikjum í desember sem
eigi ekki að geta gerst.
„Sérstaklega ekki tveimur
í röð,“ skýtur Ásgeir Örn inn
í. Þá hefur liðið tapað tveimur
leikjum og gert jafntefli í riðla-
keppni Meistaradeildar sem er
ekki alveg á pari við lið sem ætla
mætti að væri eitt það besta í
heimi.
„Við ættum að vera eitt af fjór-
um bestu liðum í heimi. Við erum
það á pappírnum en það þarf að
spila rétt úr því. Það er misjafnt
hvernig það gengur,“ segir línu-
maðurinn sem verður 34 ára í
maí. Hann hefur verið í atvinnu-
mennsku í áratug en hann hóf
atvinnumannsferilinn með liði
AGF í Árósum árið 2003.
„Ég hef verið í liðum sem voru
ekkert sérstök á pappírnum en
árangurinn verið góður út af
góðu skipulagi og samspili. Við
erum ekki bara kennitölur þarna
inni á. Við erum líka manneskj-
ur og þá er oft betra að hafa sjö
miðlungsmenn sem ná saman en
sjö stjörnur sem ná ekki saman.“
Róbert og Ásgeir Örn verða
í lykilhlutverki með íslenska
landsliðinu á EM en fyrsti leik-
ur strákanna okkar er gegn Nor-
egi á sunnudag. Leikið er í Ála-
borg á Jótlandi og Ungverjaland
og Spánn eru einnig með Íslandi
í riðli en þrjú efstu liðin komast
áfram í millriðlakeppnina.
kolbeinntumi@frettabladid.is
Meðalmenn geta myndað
sterkara lið en stjörnurnar
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson verða að óbreyttu í stórum hlutverkum með landsliðinu á
EM í Danmörku. Báðir gætu hugsað sér meiri spiltíma með stjörnuliði Paris Saint-Germain í Frakklandi en
segja útlitið hafa batnað undanfarnar vikur. Parísarliðið ætti að vera eitt af fj órum bestu í heimi.
MIKIL ÁBYRGÐ Ásgeir Örn þarf að fylla í skarð Alexanders Peterssonar sem gaf
ekki kost á sér í landsliðið vegna meiðsla. NORDICPHOTOS/GETTY
BARÁTTUJAXL Róbert Gunnarsson hefur gegnt lykilhlutverki í íslenska landsliðinu
undanfarin ár og verður engin breyting þar á í Danmörku. NORDICPHOTOS/GETTY
Kolbeinn Tumi
Daðason
kolbeinntumi@frettabladid.is