Fréttablaðið - 08.01.2014, Side 46
8. janúar 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 34
Þórdís Nadia Semichat er á leið-
inni í starfsnám í Túnis. Starfs-
námið er hluti af námi hennar á
sviðshöfundabraut í Listaháskóla
Íslands. Í starfsnáminu verð-
ur hún aðstoðarleikstjóri kvik-
myndaleikstjórans Saber Zamm-
ouri við gerð heimildarmyndar.
„Heimildarmyndin fjallar um
listasenuna í Túnis og hvernig
hún hefur breyst eftir byltingu,“
segir Þórdís Nadia.
Faðir Nadiu er frá Túnis
„Ein af ástæðunum fyrir því að
ég vildi fara þangað var að mig
langaði til að prófa að búa þarna í
einhvern tíma til þess að fá dýpri
tengingu við rætur mínar,“ segir
hún. „Ég er auðvitað þaðan líka
þótt ég sé uppalin á Íslandi.“
Nadia setti sig í samband við
Saber í gegnum Facebook
„Ég var að reyna að byggja mér
upp tengslanet þarna, en vegna
þess að ég kann ekkert í arabísku
og mjög lítið í frönsku gekk mér
illa að gúggla listamenn. Þá brá
ég á það ráð að nota Facebook
til að leita að listamönnum. Það
endaði með því að ég komst í sam-
band við myndlistarmann sem er
götulistamaður. Hann gerir graff-
ítí og málverk og er víst á mik-
illi uppleið. Ég talaði við hann og
útskýrði að ég væri að leita mér
að starfsnámi, og spurði hvort
hann gæti bent mér á einhvern
til þess að vinna með. Hann vís-
aði mér á þennan leikstjóra sem
ég komst svo í starfsnám hjá,“
segir hún.
Þórdís Nadia lenti í Túnis í gær
„Ég veit rosalega takmarkað
um þetta enn sem komið er, en
ég held að listasenan hafi orðið
kröftugri eftir byltingu. Fólk bjó
við einræði í svo mörg ár þar til
forsetanum var steypt af stóli
árið 2011. Það var í raun ekkert
málfrelsi. Ég fór til Túnis árið
2010, rétt áður en byltingin hófst.
Þegar ég spurði innfæddan vin
minn úti á götu hvað honum fynd-
ist um forsetann yppti hann bara
öxlum og sagðist ekki geta talað
um það. Svo þegar við vorum
komin afsíðis sagði hann: „Mér
finnst hann hræðilegur og hann
ætti að fara í fangelsi.“ Hann
treysti sér ekki til að segja þetta
úti á götu af ótta við að einhver
heyrði til hans.“
Foreldrar Þórdísar Nadiu eru
kvíðnir yfir ferðalagi hennar
„En ég er með frekar gott innsæi
og ég treysti því bara,“ segir hún.
„Ég hef allavega ekki slæma til-
finningu fyrir þessu fólki sem ég
er búin að vera í samskiptum við.
Fólk á það til að vera óþarflega
áhyggjufullt vegna þess að Túnis
er svo framandi.“
ugla@frettabladid.is
Ég er auðvitað
þaðan líka þótt ég sé
uppalin á Íslandi.
Þórdís Nadia Semichat
Vildi öðlast dýpri teng-
ingu við föðurlandið
Þórdís Nadia Semichat fann sér starfsnám í Túnis í gegnum Facebook. Faðir
Nadiu er þaðan en hún segir að foreldrar sínir séu kvíðnir fyrir ferðalagi hennar.
FÓLK BJÓ VIÐ EINRÆÐI Þórdís við mynd af fyrrverandi forseta Túnis árið 2010.
Mynd af honum varð að hanga uppi á öllum veitingastöðum í Túnis fyrir byltingu.
MYND/EINKASAFN
LENTI Í GÆR Þórdís veit takmarkað um
landið enn sem komið er. MYND/EINKASAFN
„Ég setti mér það markmið að safna
einni milljón króna sem myndi
renna til góðs málefnis,“ segir uppi-
standarinn Rökkvi Vésteinsson.
Hann hefur staðið fyrir fjölda
uppistanda síðastliðin ár, en frá
árinu 2007 hefur allur peningur-
inn, sem komið hefur inn, runnið í
sjóðinn.
„Ég hef ekki fengið neinar tekjur
af uppistandinu síðan 2007 en það
er frábært að geta stutt gott mál-
efni.“ Þegar hann hélt Iceland
Comedy Festival í nóvember náði
hann markmiðinu.
Tæplega 78 prósent af fénu rann
til Barnaspítala Hringsins en einn-
ig styrkti hann Landgræðsluna,
Mæðrastyrksnefnd, Styrktarfélag
krabbameinsjúkra barna, Styrktar-
félag langveikra barna, Unicef og
Samtök gegn einelti.
„Ég var kominn á ákveðinn punkt
þar sem uppistandsbransinn var
hættur að vera skemmtilegur fyrir
mig vegna leiðinda sem ég hafði
lent í, en ég náði að snúa því við og
gera þetta aftur ánægjulegt með að
setja mér þetta markmið.“útskýrir
Rökkvi.
Grínaði til góðs í rúmlega sex ár
Rökkvi Vésteinsson gaf eina milljón króna í gott málefni. Hann safnaði féinu
með því að standa fyrir fj ölda uppistanda og stóð söfnin yfi r í rúm sex ár.
GOTT GRÍN Rökkvi Vésteinsson uppi-
standari grínaði til góðs í rúm sex ár.
„Uppáhalds íslenski myndlistarmað-
urinn minn er Ásmundur Ásmunds-
son, vegna þess að hann getur
greint kjarnann frá hisminu, og sér í
gegnum holt og hæðir.“
Kristín Eiríksdóttir, rithöfundur og mynd-
listarkona.
BESTI MYNDLISTAR-
MAÐURINN
„Já, ég var að byrja á næstu bók,“ segir Vilhelm
Anton Jónsson, betur þekktur sem Vísinda-Villi
Naglbítur. Vísindabók Villa sem kom út á síð-
asta ári vakti mikla lukku og var hún í þriðja
sæti yfir mest seldu bækur ársins 2013.
„Ætli maður sé ekki að svara ákveðnu kalli
eftir meiri fróðleik,“ bætir Villi við.
Hann segist sjálfur hafa rosalega gaman af
þessu. „Ég er svo innilega forvitinn sjálfur og
er að læra svo mikið sjálfur. Ég hef svo gaman
af því að kynna vísindi fyrir börnum, það er svo
gaman að gera þau forvitin.“
Villi segist ekki gera ráð fyrir miklum
áherslubreytingum í næstu bók og telur að hún
verði í líkingu við fyrri bókina.
„Ég stóð í snjóskafli eftir matarboð hjá
móður minni á jóladag og fór þá að hugsa út í
bókina.“ Villi var þó alveg fram á aðfangadag
að vinna í því að kynna fyrri bókina.
„Þegar ég byrjaði að skrifa fann ég að þetta
var enn í puttunum, mér fannst eins og ég væri
bara nýbúinn með fyrri bókina.“
Hann vonast til þess að bókin komi út 10.
október. „Fyrri bókin kom út 10. október þann-
ig að það væri gaman.“
- glp
Villi byrjaður á næstu bók
Vísindabók Villa stal senunni fyrir jólin og var þriðja mest selda bókin hér á
landi en nú hefur Villi sest niður og hafi st handa við Vísindabók númer tvö.
SKRIFAR Á NÝ Vísindabók Villa 2 lítur dagsins
ljós á árinu. MYND/EINKASAFN
EYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREYRI | REYKJAVÍK | AKUREY
ÚTSALA
TILBOÐ
TVENNU
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
30%
SHAPE
B Y N AT U R E ’ S B E D D I N G
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
15%