Fréttablaðið - 13.01.2014, Blaðsíða 6
13. janúar 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
HEILBRIGÐISMÁL „Foreldrar geta
með ýmsum hætti unnið gegn því
að börn þeirra þrói með sér alvar-
legan kvíða,“ segir Dr. Philip
Kendall, bandarískur sálfræðing-
ur sem hefur sérhæft sig í kvíða
barna og ungmenna. Hann heim-
sótti Ísland í síðustu viku og hélt
meðal annars fyrirlestra á árlegri
ráðstefnu Barna- og unglinga-
geðdeildar.
Kendall segir margt í umhverfi
barna auka á kvíðann. „Við
setjum margs konar þrýsting á
börn. Stundum er hann eðlilegur,
til dæmis að þau eigi að standa
sig vel í skólanum. En stundum er
hann óviðeigandi,“ segir Kendall
og nefnir sem dæmi þegar for-
eldrar yfirfylla dagskrá barna
með ýmsum skyldum, en gleyma
að gera ráð fyrir tíma fyrir
frjálsan leik.
„Það er í gegnum frjálsan leik
með jafningjum sem börn læra
inn á hæfileika sína og veikleika.
Ef þau umgangast eingöngu for-
eldra sína fá þau ekki réttar hug-
myndir um hvað þau geri vel og
hvað illa,“ segir Kendall.
„Foreldrar þurfa að leyfa börn-
um að gera eigin mistök. Þeir
verða að stíga til hliðar og leyfa
þeim að glíma við vandamálin
sjálf,“ segir Kendall en hann
leggur ríka áherslu á að foreldrar
kvíðinna barna láti ekki undan
kvíðaviðbrögðum barna sinna.
„Ef barnið neitar að fara í skól-
ann hjálpar ekkert að leyfa því að
vera heima. Það leysir vandann á
þeirri stundu, en til lengri tíma
litið eykst vandinn.“
Aukin samskipti á samfélags-
miðlum geta aukið kvíða fólks
og sérstaklega barna að mati
Kendall. „Þú ert stöðugt í sam-
bandi í gegnum síma, netið og
tölvuleiki og færð aldrei að njóta
þess að vera einn með sjálfum
þér. Fyrir kvíðin börn skap-
ar þetta aukið álag því þau fara
að hafa áhyggjur af því að þau
sé að missa af einhverju,“ segir
Kendall.
Kvíði er eðlilegur þegar hann
hefur ekki hamlandi áhrif á líf
fólks. Kendall segir einkenni
hamlandi kvíða hjá börnum meðal
annars vera þau að börn forðist
að gera tiltekna hluti. „Það segja
öll börn á ein hverjum tímapunkti
að það sé leiðinlegt í skólanum
og þau vilji ekki fara, en ef þau
segjast ekki geta farið og sýna
líkamleg einkenni á borð við
magaverki, þau svitna eða forð-
ast augnsamband, þá getur kvíð-
inn verið orðinn óeðlilega mikill.“
Kendall segir skipta miklu máli
hvernig tekið er á kvíða hjá börn-
um. „Það er ekki nóg að tala bara
um vandann. Foreldrar þurfa leita
til fagfólks sem fær barnið til að
prófa ólíka hluti og framkvæma
áskoranir til að takast á við ótt-
ann. Sem dæmi, ef barn óttast
býflugur er ekki nóg að tala um
óttann, barnið þarf líka að snerta,
finna og vera í kringum býflugur
til að læra að hugsa með öðrum
hætti um þær. Það þarf að öðlast
aðra reynslu af þeim,“ segir hann.
eva@frettabladid.is
Ekki ofvernda kvíðin börn
Sálfræðingur segir margt í umhverfi barna auka á kvíða. Foreldrar geta unnið gegn kvíða hjá börnum sínum
með því að leggja áherslu á frjálsan leik með jafningjum og að leyfa börnunum að læra af mistökum sínum.
Yfirlæknir göngudeildar Barna- og unglingageðdeildar
(BUGL) segir þörf á aukinni þjónustu við börn með
kvíðaraskanir. Best væri að veita meðferð snemma í
ferlinu, með vægari inngripum.
„Snemmtæk íhlutun er mikilvæg þegar um slíkan
vanda er að ræða og þess vegna þarf þekkingin að
vera til staðar í nærumhverfi barnanna,“ segir Guðrún
Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir á BUGL. Því var
ákveðið að fá Dr. Philip Kendall til landsins og hann
hélt fyrirlestur á árlegri ráðstefnu BUGL fyrir skömmu.
Mikill áhugi var á ráðstefnunni og á fjórða hundrað
manns mættu, en vísa þurfti mörgum frá vegna plássleysis.
„Kvíði hjá börnum hefur verið meira í brennidepli fagfólks eftir
efnahagshrunið,“ segir Guðrún Bryndís. „Þeir sem vinna með börnum og
unglingum átta sig á þörfinni og vilja öðlast meiri þekkingu á efninu,“
segir hún.
Nauðsynlegt að auka þekkingu á kvíða
GUÐRÚN B.
GUÐMUNDSDÓTTIR
PHILIP KENDALL Foreldrar þurfa að leyfa börnum að glíma við vandamálin sjálf.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Rúmlega þrjú hundruð
manns munu starfa við byggingu
kísilmálmverksmiðju í Helguvík.
Þá er talið að 160 ný störf skap-
ist þegar framleiðsla verksmiðj-
unnar hefst, auk afleiddra starfa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá
fyrirtækinu Thorsil ehf.
Thorsil ehf. gekk á föstudag frá
samningi við verkfræði stofuna
Mannvit um hönnun kísilmálm-
verksmiðjunnar sem reisa á í
Helguvík. Mannvit mun í sam-
starfi við norsku verkfræðistofuna
Norconsult AS hafa umsjón með
hönnun, útboðum og byggingu
verksmiðjunnar. Verðmæti samn-
ingsins er metið á 508 milljónir.
Vinna við umhverfismat vegna
verksmiðjunnar stendur yfir og er
áætlað að byggingaframkvæmdir
hefjist á þessu ári. Áætluð fram-
leiðslugeta verksmiðjunnar er 54
þúsund tonn af kísilmálmi.
Samkomulag hefur verið gert við
Landsvirkjun um kaup á 87 MW af
raforku og unnið er að samningum
um sölu framleiðslunnar. - eb
Rúmlega 300 manns munu starfa við byggingu verksmiðju í Helguvík:
Hanna nýja kísilmálmverksmiðju
HELGUVÍK Ný kísilmálmverksmiðja
mun rísa við iðnaðar- og hafnarsvæðið í
Helguvík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1. Hvar á Íslandi fjölgaði ofbeldisbrot-
um um 220 prósent á síðasta ári?
2. Hver sagði freka karla stjórna
pólitíkinni á Íslandi?
3. Hvað þurftu Of Monsters and
Men að selja margar plötur í Banda-
ríkjunum til að hljóta platínuplötu?
SVÖR:
LOGAÐI Þotan logaði þegar slökkviliðs-
menn komu á vettvang. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞÝSKALAND, AP Lítil þota brotlenti
í námunda við flugvöll í Þýska-
landi í gær. Talið er að fjórir
farþegar hafi látist í slysinu.
Flugvélin hrapaði á urðunarstað
nálægt bænum Trier sem er í
vesturhluta Þýskalands.
Flugvélin logaði þegar slökkvi-
lið kom að henni. Í yfirlýsingu
frá lögreglu segir að líklega hafi
verið um að ræða einkaþotu af
gerðinni Cessna Citation. Um
borð hafi verið tveir flugmenn og
tveir farþegar frá Englandi. Ekki
er vitað hvað olli slysinu. - ue
Þota brotlenti við flugvöll:
Fjórir taldir af
eftir flugslys
BANDARÍKIN, AP Störfum í Banda-
ríkjunum fjölgaði ekki jafn mikið
í desember og búist var við. Um
74 þúsund störf bættust við í
mánuðinum.
Störfum fjölgaði næstum
þrisvar sinnum meira í fjóra
mánuði í röð þar áður. Hagfræð-
ingar nefna ofsakuldann sem eina
skýringu fyrir því að störfum
fjölgaði ekki meira.
Atvinnulausum fækkaði úr 7
prósentum í 6,7 prósent, sem er
minnsti fjöldi atvinnulausra í
fimm ár. Það segir þó ekki alla
söguna, því fjöldi fólks hætti að
leita að vinnu, og hverfur af lista
yfir atvinnulausa þrátt fyrir að
vera ekki með vinnu. - ue
Kuldinn hefur áhrif á vinnu:
Störfum fjölg-
aði ekki mikið
STJÓRNMÁL Sindri Þór Hilmars-
son hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri Pírata. Hann var
valinn úr hópi umsækjenda í
lýðræðislegu kjöri innan fram-
kvæmdaráðs flokksins, að því er
fram kemur í tilkynningu.
Sindri Þór er menntaður við-
skiptafræðingur. Hann sinnir
stundakennslu við Háskóla
Íslands. Hann var áður fjármála-
stjóri tónlistarfyrirtækisins
Gogoyoko og sérfræðingur hjá
KPMG. - bj
Ráðinn framkvæmdastjóri:
Stýrir skútunni
hjá Pírötum
Foreldrar
þurfa að leyfa
börnum að
gera eigin
mistök. Þeir
verða að stíga
til hliðar og
leyfa þeim að glíma við
vandamálin sjálf.
Philip Kendall
sálfræðingur
VEISTU SVARIÐ?
1. Á Suðurnesjum 2. Jón Gnarr 3. Yfi r eina
milljón