Fréttablaðið - 13.01.2014, Qupperneq 10
13. janúar 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Málsvari byggingamanna
FÉLAGSFUNDIR
BYGGIÐNAR – FÉLAGS BYGGINGAMANNA
Félagsfundir um nýgerða kjarasamninga verða á:
AKUREYRI
Þriðjudag 14. janúar kl. 17:30
á Skipagötu 14, 5. hæð
REYKJAVÍK
Miðvikudag 15. janúar kl. 17:30
í Borgartúni 30, 6. hæð
Rafræn kosning hefst
mánudaginn 13. janúar kl. 12
og lýkur á miðnætti
mánudaginn 21. janúar
Sjá nánar á heimasíðu
félagsins byggidn.is
Stjórnin
V
E
R
T
MENNTUN Börn sem ekki eru með
greiningu á geðrænum vankvæðum
en eiga við félagslegan eða náms-
tengdan vanda að stríða í grunn-
skóla fá ekki við stuðning við hæfi
í skólum sínum.
Þetta eru helstu niðurstöður
rannsóknar sem Erla Dögg Krist-
jánsdóttir, nemi í félagsráðgjöf,
gerði með viðtölum við foreldra
barna á svokölluðu gráu svæði.
„Börn á gráu svæði hafa ekki
uppfyllt greiningarviðmið, eru á
biðlista eftir greiningu eða fara
hreinlega ekki í greiningu. Þau
þurfa aftur á móti aukinn stuðning
í skóla vegna vandamála sem þau
glíma við, til dæmis meira næði,
meiri tíma með kennara, félagsleg-
an stuðning og meiri námshjálp.“
Erla segir að heilt yfir hafi börn-
in sem tóku þátt í rannsókninni ekki
fengið það einstaklingsmiðaða nám
sem skóli án aðgreiningar gengur
út á, en það er sú hugmyndafræði
sem er ríkjandi í grunnskólum
landsins.
„Flestir viðmælendur voru sam-
mála um að þetta snérist um fjár-
magn. Það var sagt við einn við-
mælanda að því barnið væri ekki
með greiningu væri ekki til fjár-
magn til að veita því viðbótarstuðn-
ing. Foreldrarnir voru þó sammála
um að hugmyndafræðin um skóla
án aðgreiningar væri falleg en að
framkvæmdin væri ekki í samræmi
við fræðin. Þeir voru ekki ósáttir
við kennarann sem slíkan heldur
uppbyggingu skólakerfisins.“
Margir foreldranna voru búnir
að finna leiðir til að aðstoða börnin
sín heimafyrir með óhefðbundnum
leiðum, svo sem verklegum æfing-
um eða á sjónrænan hátt.
„Þessar aðferðir skiluðu sér ekki
í skólana þrátt fyrir að foreldrarnir
hafi ítrekað rætt við kennara og
stjórnendur og reynt að fá það í
gegn. Í skólunum virðist vera ákveð-
inn kassi og ef barnið passar ekki
inn í kassann eru kennarar ráða-
lausir. Kennsluhættir virðast vera
niðurnjörvaðir og haldið í gamlar
hefðir í stað þess að virkja börnin
þar sem þeirra styrkleikar liggja.“
Erla segir mikilvægt fyrir fram-
tíð barnanna að grunnurinn sé
góður. „Grunnskólinn er fyrsta
stigs þjónusta og það skiptir öllu
máli að þjónustan sé góð. Rann-
sóknir hafa sýnt að brottfall úr
námi megi rekja til vöntunar á
stuðningi í grunn skólum þar sem
börnin koma ekki nægilega und-
irbúin úr skólanum fyrir næsta
námsstig.“ erlabjorg@frettabladid.is
Börn í vanda fá ekki
viðeigandi stuðning
Börn sem eiga í vanda í skólakerfinu án þess þó að vera með greiningu fá ekki
nægilegan stuðning. Foreldrar barnanna segja hugmyndafræði skóla án aðgrein-
ingar ekki vera fylgt nægilega vel eftir, meðal annars vegna skorts á fjármagni.
SKÓLABÖRN Félagsleg staða fólks ákvarðast mikið af menntun. Mikilvægt er að
börnum líði vel í skólanum svo þau haldist lengur í námi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM