Fréttablaðið - 13.01.2014, Page 45
KYNNING − AUGLÝSING13. JANÚAR 2014 MÁNUDAGUR
Ég hef kennt við framhalds-skóla í tólf ár og finnst ég skynja aukna vanlíðan nem-
enda sem margir glíma við þung-
lyndi, kvíða og ýmislegt annað. Ég
vissi að í náminu væru kenndar
aðferðir til að takast á við slíkt með
uppbyggilegum hætti og hugsaði
með mér að þannig ætti ég mögu-
lega auðveldara með að skilja og
aðstoða nemendur. Auk þess var
ég sannfærð um að nám af þessu
tagi gæti nýst mér nýst vel, bæði í
starfi og einkalífi.
Megináhersla námsins er á hag-
nýta þekkingu á undirstöðuatrið-
um hugrænnar atferlismeðferðar.
Markmiðið er að veita fræðilega
yfirsýn yfir grunnatriði kenninga
um hugræna atferlismeðferð, líkön,
hugtakanotkun og aðferðir. Nem-
endur öðlast skilning á tengslum
kenninga og meðferðar, einkum
við þunglyndi, kvíða og álag í dag-
legu lífi. Námið er ekki eiginlegt
meðferðarnám en nemendur læra
að beita grunnatriðum í samtals-
aðferðum hugrænnar atferlismeð-
ferðar, þekkja einkenni og leggja
mat á alvarleika streitu, kvíða og
þunglyndis. Þeir læra að nota fimm
þátta líkan hugrænnar atferlismeð-
ferðar og þekkja tengsl hugsana,
hegðunar og tilfinninga. Þeir læra
sömuleiðis að beita
aðferðum hugrænn-
ar atferlismeðferðar
í fyrirbyggjandi til-
gangi í afmörkuðum
starfstengdum verk-
efnum.
Námið er einkum
æ t l a ð h á s k ó l a -
menntuðu fagfólki
innan heilbrigðis-,
félags- og mennta-
vísinda sem og stjórnendum
stofnana og fyrirtækja.
Svava segir nemendur hafa
komið úr öllum áttum. „Það
gaf mikla breidd og er gaman
að sjá hversu víða aðferðirnar
geta nýst.“ Svava segir samtals-
tæknina sem kennd er í nám-
inu hafa nýst sér vel í starfi. „Við
lærum til dæmis að spyrja opinna
spurninga sem kalla fram önnur
og ítarlegri svör en já og nei. Ef
mér finnst ástandið alvarlegt veit
ég nú líka hvert ég get vísað skjól-
stæðingum mínum.“
Námið byggist upp á 98
kennslustundum
og 21 klukkustunda
h a n d l e i ð s l u e n
kennslan fer fram í sjö
tveggja daga lotum. Á
vormisseri eru kennd-
ar fjórar lotur og á
haustmisseri þrjár.
Handleiðslan fer fram
í litlum hópum eftir
hverja kennslulotu.
„Mér fannst hún sér-
lega gagnleg og námið í heild afar
hagnýtt.“
Námið gefur 10 ECTS einingar á
grunnstigi háskóla og getur Svava
vel hugsað sér að fara í frekara
nám. Það hefst aftur í lok janúar
og enn eru nokkur sæti laus. Allar
nánari upplýsingar er að finna á
endurmenntun.is en þar er jafn-
framt hægt að sækja um námið.”
Auðveldara að
skilja og aðstoða
nemendur
Svava Jóhannesdóttir, kennari við hársnyrtiskóla Tækniskólans, lauk námi í undirstöðuatriðum
hugrænnar atferlismeðferðar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands síðastliðið vor. Hún er afar ánægð með
námið og það hefur nýst henni bæði í starfi og einkalífi.
200 NÁMSKEIÐ Á VORMISSERI
Á vormisseri eru hátt í 200 námskeið á dagskrá hjá Endurmenntun Háskóla Íslands en árlega sækja um sjö
þúsund manns námskeið þar. Þátttakendur hafa afar ólíka reynslu og menntun og eru á öllum aldri. Sumir sækja
námskeið til að styrkja sig í starfi en aðrir sækjast meira eftir fróðleik í bland við skemmtun.
Námskeiðsframboðinu er skipt upp í tvo meginflokka, Fyrir þig og Fyrir starfið. Eins og ávallt er mikið úrval starfs-
tengdra námskeiða á ýmsum fræðasviðum sem má finna í flokknum Fyrir starfið. Auk þess eru fjölmargir spenn-
andi valkostir á sviði menningar, persónulegrar hæfni og tungumála í flokknum Fyrir þig.
Endurmenntun hvetur alla til að nýta þá möguleika sem þeir eiga á fræðslustyrkjum t.d. hjá stéttarfélögum.
Skráning á námskeið vormisseris er nú þegar hafin á endurmenntun.is og í síma 525 4444.
NÁMSLÍNUR Á VORMISSERI
LEIÐTOGAHÆFNI
– LEIÐ AÐ AUKINNI SJÁLFSÞEKKINGU
OG ÁRANGURSRÍKRI STJÓRNUN
ÁFALLASTJÓRNUN
(CRISIS MANAGEMENT)
– Í FYRIRTÆKJUM OG STOFNUNUM
Umsóknarfrestur til 3. febrúar
N
Það gaf
mikla
breidd og er
gaman að sjá
hversu víða
aðferðirnar geta
nýst.
XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX
Svava segir námið hagnýtt og það nýtist henni jafnt í starfi sem einkalífi.