Fréttablaðið - 13.01.2014, Síða 45

Fréttablaðið - 13.01.2014, Síða 45
KYNNING − AUGLÝSING13. JANÚAR 2014 MÁNUDAGUR Ég hef kennt við framhalds-skóla í tólf ár og finnst ég skynja aukna vanlíðan nem- enda sem margir glíma við þung- lyndi, kvíða og ýmislegt annað. Ég vissi að í náminu væru kenndar aðferðir til að takast á við slíkt með uppbyggilegum hætti og hugsaði með mér að þannig ætti ég mögu- lega auðveldara með að skilja og aðstoða nemendur. Auk þess var ég sannfærð um að nám af þessu tagi gæti nýst mér nýst vel, bæði í starfi og einkalífi. Megináhersla námsins er á hag- nýta þekkingu á undirstöðuatrið- um hugrænnar atferlismeðferðar. Markmiðið er að veita fræðilega yfirsýn yfir grunnatriði kenninga um hugræna atferlismeðferð, líkön, hugtakanotkun og aðferðir. Nem- endur öðlast skilning á tengslum kenninga og meðferðar, einkum við þunglyndi, kvíða og álag í dag- legu lífi. Námið er ekki eiginlegt meðferðarnám en nemendur læra að beita grunnatriðum í samtals- aðferðum hugrænnar atferlismeð- ferðar, þekkja einkenni og leggja mat á alvarleika streitu, kvíða og þunglyndis. Þeir læra að nota fimm þátta líkan hugrænnar atferlismeð- ferðar og þekkja tengsl hugsana, hegðunar og tilfinninga. Þeir læra sömuleiðis að beita aðferðum hugrænn- ar atferlismeðferðar í fyrirbyggjandi til- gangi í afmörkuðum starfstengdum verk- efnum. Námið er einkum æ t l a ð h á s k ó l a - menntuðu fagfólki innan heilbrigðis-, félags- og mennta- vísinda sem og stjórnendum stofnana og fyrirtækja. Svava segir nemendur hafa komið úr öllum áttum. „Það gaf mikla breidd og er gaman að sjá hversu víða aðferðirnar geta nýst.“ Svava segir samtals- tæknina sem kennd er í nám- inu hafa nýst sér vel í starfi. „Við lærum til dæmis að spyrja opinna spurninga sem kalla fram önnur og ítarlegri svör en já og nei. Ef mér finnst ástandið alvarlegt veit ég nú líka hvert ég get vísað skjól- stæðingum mínum.“ Námið byggist upp á 98 kennslustundum og 21 klukkustunda h a n d l e i ð s l u e n kennslan fer fram í sjö tveggja daga lotum. Á vormisseri eru kennd- ar fjórar lotur og á haustmisseri þrjár. Handleiðslan fer fram í litlum hópum eftir hverja kennslulotu. „Mér fannst hún sér- lega gagnleg og námið í heild afar hagnýtt.“ Námið gefur 10 ECTS einingar á grunnstigi háskóla og getur Svava vel hugsað sér að fara í frekara nám. Það hefst aftur í lok janúar og enn eru nokkur sæti laus. Allar nánari upplýsingar er að finna á endurmenntun.is en þar er jafn- framt hægt að sækja um námið.” Auðveldara að skilja og aðstoða nemendur Svava Jóhannesdóttir, kennari við hársnyrtiskóla Tækniskólans, lauk námi í undirstöðuatriðum hugrænnar atferlismeðferðar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands síðastliðið vor. Hún er afar ánægð með námið og það hefur nýst henni bæði í starfi og einkalífi. 200 NÁMSKEIÐ Á VORMISSERI Á vormisseri eru hátt í 200 námskeið á dagskrá hjá Endurmenntun Háskóla Íslands en árlega sækja um sjö þúsund manns námskeið þar. Þátttakendur hafa afar ólíka reynslu og menntun og eru á öllum aldri. Sumir sækja námskeið til að styrkja sig í starfi en aðrir sækjast meira eftir fróðleik í bland við skemmtun. Námskeiðsframboðinu er skipt upp í tvo meginflokka, Fyrir þig og Fyrir starfið. Eins og ávallt er mikið úrval starfs- tengdra námskeiða á ýmsum fræðasviðum sem má finna í flokknum Fyrir starfið. Auk þess eru fjölmargir spenn- andi valkostir á sviði menningar, persónulegrar hæfni og tungumála í flokknum Fyrir þig. Endurmenntun hvetur alla til að nýta þá möguleika sem þeir eiga á fræðslustyrkjum t.d. hjá stéttarfélögum. Skráning á námskeið vormisseris er nú þegar hafin á endurmenntun.is og í síma 525 4444. NÁMSLÍNUR Á VORMISSERI LEIÐTOGAHÆFNI – LEIÐ AÐ AUKINNI SJÁLFSÞEKKINGU OG ÁRANGURSRÍKRI STJÓRNUN ÁFALLASTJÓRNUN (CRISIS MANAGEMENT) – Í FYRIRTÆKJUM OG STOFNUNUM Umsóknarfrestur til 3. febrúar N Það gaf mikla breidd og er gaman að sjá hversu víða aðferðirnar geta nýst. XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX Svava segir námið hagnýtt og það nýtist henni jafnt í starfi sem einkalífi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.