Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.01.2014, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 13.01.2014, Qupperneq 52
13. janúar 2014 MÁNUDAGUR| MENNING | 20 Ertu einn/ein þeirra fjölmörgu sem gjarnan vill vera reyklaus en getur ekki hafið reykbindindi vegna þess að þig vantar hvatninguna? Ef til vill hefur þú þegar reynt en fallið. Það er reyndar mjög algengt svo þú skalt ekki örvænta! Minnkaðu smám saman fjölda sígarettna Ef þér vex í augum að hætta alveg að reykja getur kannski verið auðveldara að draga smám saman úr reykingum þangað til þú verður alveg reyklaus. Það getur fljótt veitt þér tilfinningu um velgengni, vegna þess að það er sigur jafnvel þótt ekki sé dregið nema lítið úr reykingum og það mun verða þér hvatning til að halda áfram þangað til þú verður alveg reyklaus. Svona verður þú reyklaus með því að draga smám saman úr sígarettunotkun 1. MÁN. 2. MÁN. 3. MÁN. 4. MÁN. 6. MÁN. Nicotinell Spearmint 2 mg og 4 mg lyfjatyggigúmmí. Inniheldur nikótín. Ábendingar: Til meðferðar á tóbaksfíkn en lyfið dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum og það auðveldar þar með reykingarfólki sem vill hætta að reykja, að hætta og auðveldar þeim sem ekki geta hætt, eða eru tregir til þess, að draga úr reykingum. Skammtar fyrir fullorðna 18 ára og eldri: Skammta skal ákvarða út frá því hversu háður nikótíni einstaklingurinn er. Mælt er með 4 mg lyfjatyggigúmmíi fyrir einstaklinga með mikla nikótínþörf og fyrir þá sem ekki hefur tekist að hætta með notkun 2 mg lyfjatyggigúmmís. Ef þú reykir fleiri en 30 sígarettur/sólarhring má miða við notkun 4 mg, 20-30 sígarettur/sólarhring er miðað við 2 eða 4 mg eftir þörf en ef reykt er minna en 20 sígarettur á sólarhring er æskilegt að nota 2 mg. Ef þú færð aukaverkanir við notkun stærri skammtsins (4 mg lyfjatyggigúmmí), skaltu íhuga minni skammt í staðinn. Tyggja skal eitt stk við reykingaþörf þar til finnst sterkt bragð. Þá skal láta það hvíla milli kinnar og tannholds. Þegar sterka bragðið minnkar skal tyggja aftur. Þetta skal endurtaka í 30 mín. Venjuleg notkun er 8-12 stk, þó ekki fleiri en 15 stk af 4 mg og 25 stk af 2 mg lyfjatyggigúmmíi á sólarhring. Meðferðarlengd er einstaklingsbundin en skal í flestum tilfellum standa í a.m.k. 3 mánuði, skal þá draga smám saman úr notkun lyfjatyggigúmmísins. Meðferð skal hætt þegar neyslan er komin niður í 1-2 lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Venjulega er ekki mælt með notkun lyfsins lengur en í eitt ár. Sumir, sem eru hættir að reykja, gætu þó þurft lengri meðferð til þess að forðast að byrja aftur að reykja. Geyma skal afgangs lyfjatyggigúmmí þar sem reykingaþörf getur skyndilega komið upp aftur. Ráðgjöf getur aukið líkurnar á því að reykingafólk hætti að reykja. Nota má lyfið til að lengja reyklaus tímabil og draga þannig úr reykingum. Ef ekki hefur dregið úr fjölda sígaretta á sólarhring eftir 6 vikur skal leita faglegrar ráðgjafar. Reykingum skal hætt um leið og einstaklingurinn er reiðubúin til þess, þó ekki síðar en eftir 6 mánaða meðferð. Leita skal faglegrar ráðgjafar ef ekki hefur tekist að hætta reykingum eftir 9 mánaða meðferð. Frábendingar: Ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju hjálparefnanna, reykleysi. Ráðfærðu þig við lækni eða lyfjafræðing því ekki er víst að þú megir nota lyfið ef þú: ert á meðgöngu eða með barn á brjósti, hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp, ert með hjarta- eða æðasjúkdóm, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan skjaldkirtil/nýrnahettur, magasár eða verulega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða ef þú ert yngri en 18 ára. Einstaklingum með gervitennur og þeim sem eiga í erfiðleikum með að tyggja tyggigúmmí er ráðlagt að nota önnur lyfjaform nikótínlyfja. Sjúklingar með arfgengt frúktósaóþol skulu ekki nota lyfið. Athuga ber að lyfið inniheldur natríum og bútýlhýdroxýtólúen (E321). Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Jafnvel lítið magn af nikótíni er hættulegt börnum og getur valdið alvarlegum einkennum eða dauða. Markaðsleyfishafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ NÝTT! Haltu áfram að draga smám saman úr daglegum fjölda Nicotinell lyfjatyggigúmmís Upphaflega: 20 sígarettur á dag Minnkaðu reykingar smám saman og skiptu hverri sígarettu út fyrir 1 stk. af Nicotinell lyfjatyggigúmmíi Gerðu áætlun um hvernig þú ætlar að draga úr sígarettunotkun og verða að lokum reyklaus. Fáðu góð ráð í apótekinu. NÚ ERTU REYKLAUS Viltu gjarnan hætta en getur ekki sleppt sígarettunni alveg? TÓNLIST ★★★ ★★ Vínartónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands 9. janúar. Stjórnandi: Peter Guth. Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveit- ar Íslands eru fastur liður í tónleika- lífinu. Þeir eru alltaf haldnir í upp- hafi árs. Um er að ræða eins konar áramótaskaup hljómsveitarinnar. Ég man eftir brandörum þar sem hljóðfæraleikari hefur spilað ógur- lega vitlaust og áheyrendur velst um af hlátri. Eða þá að söngkona hefur ráfað inn á sviðið, þóst vera dauða- drukkin og áreitt fólk. Kannski eru Vínartónleikarnir orðnir svo margir að brandararnir eru ekki lengur fyndir. E.t.v. eru þeir bara búnir. Sumir þeirra hafa sannarlega verið ofnotaðir eins og fulla söngkonan – hún er orðin býsna þreytt. Að þessu sinni var almennt húm- orsleysi ráðandi. Vissulega kom eitt og annað fyrir sem var broslegt, en ekki þannig að maður hneggjaði. Samt var stemningin ágæt. Flutt voru ýmis atriði úr óperettum og öðru eftir þá félaga Lehár og Stoltz, Kálmán og Offenbach, og svo auð- vitað Straussfeðga. Það var lífleg tón- list sem mátti hafa gaman af. Spila- mennskan var kröftug, það var stuð í flutningnum. Þó var ekki allt gott. Hljómsveitin var á köflum dálítið ósamtaka. Sér- staklega þegar stjórnandinn Peter Guth tók upp fiðlu og spilaði með í stað þess að veifa tónsprota. Það var óttalega tilgangslaust. Megnið af tímanum heyrðist ekkert í fiðlunni. Hún rann saman við leik hinna hljóð- færaleikaranna. Guth hefði alveg eins getað spilað á luftfiðlu. Verra var þó þegar hann lék einleik, því fiðlan var hjáróma, jafnvel fölsk. Söngurinn var áheyrilegri. Hanna Dóra Sturludóttir söng fallega og af viðeigandi krafti, en hún átti samt ekki heima í dagskránni. Drama- tískari hlutverk henta henni betur, eins og Wagner og Mahler, svo ég nefni einhver nöfn. Vínartónlist þarfnast léttleika. Gissur Páll Gissurarson var ekki heldur maðurinn í þetta hlutverk. Gissur er vissulega magnaður lista- maður með einkar hrífandi rödd, en hún er ekki sterk. Hann náði því ekki almennilega að miðla hápunktunum í tónlistinni. Fyrir bragðið vantaði glæsileikann í túlkunina. Langáhrifamest var þegar tvö pör úr Dansskóla Sigurðar Hákonar- sonar gengu inn í salinn og svifu svo um í tilkomumiklum valsi. Þetta voru þau Þorkell Jónsson, Denise Yaghi, Höskuldur Þór Jónsson og Margrét Hörn Jóhannsdóttir. Svo ótrúlegur léttleiki, þokki og fegurð var í dans- inum að það stal senunni frá öllu öðru, bæði einsöng og hljóðfæraleik. Dansinn setti tónlistina í samhengi – maður skildi hana miklu betur en ella. Vínartónlist er eitthvað sem á að dansa við, það er ekki nóg að heyra hana. Fólk verður að sjá hana líka, hún á að vera sjónræn upplifun. Því miður voru dansatriðin bara tvö – þau hefðu mátt vera mun fleiri. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Vínartónleikar Sin- fóníunnar liðu fyrir ósamtaka hljóðfæraleik, slæman einleik og þungan söng, en tvö dansatriði voru frábær. Dansarar stálu senunniIngi Rafn Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Listahátíðar í Reykjavík til fjögurra ára, frá og með 1. febrúar næstkomandi. Ingi Rafn hefur starfað sem framkvæmdastjóri Karolina Fund frá árinu 2012 þar sem hann hefur staðið að fjármögnun fjölda skap- andi verkefna og listviðburða og er einn stofnenda sjóðsins. Hann hefur á undanförnum árum jafn- framt starfað við ráðgjöf um fjár- mögnun lista- og frumkvöðlaverk- efna og tekið þátt í ráðstefnum fyrir Íslands hönd um fjármögnun verkefna innan skapandi iðnaðar á ráðstefnuröð á vegum Evrópusam- bandsins og Norrænu ráðherra- nefndarinnar. Áður starfaði hann um ára- bil sem gæða- og fræðslustjóri í söludeild Kaupþings og um skeið fyrir plötuútgáfuna Thule Music. Hann stofnaði fyrirtækið Reykja- vík Labs ehf. sem sérhæfir sig í útflutningi og vefsölu á íslenskri hönnun. Ingi hefur lokið diplómagráðu frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann tekur við starfinu af Auði Rán Þorgeirsdóttur. Nýr framkvæmdastjóri Listahátíðar Frá og með 1. febrúar tekur Ingi Rafn Sigurðsson við stöðu framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík. NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI Ingi Rafn Sigurðsson verður framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík. GISSUR PÁLL GISSURARSON MENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.