Fréttablaðið - 13.01.2014, Síða 62
13. janúar 2014 MÁNUDAGUR| MENNING | 30
rauðlauk og chili, kórónaður með kókós-
eftir hátíðarmatinn.
gottimatinn.is. Uppskriftavefurinn er jafn
aðgengilegur í tölvunni, spjaldtölvunni og
snjallsímanum.
Hollustan hefst á gottimatinn.is
ferskur
fiskréttur
„Mánudagslagið er auðvitað Free
Willy Song með Michael Jackson.
Það er gott að dansa við það um
stofuna í Grafarvogi eins og kátur
Keikó.“
Helga Braga Jónsdóttir leikkona.
MÁNUDAGSLAGIÐ
„Þetta gekk frábærlega. Við fylltum
hvert einasta sæti og þurftum
að fjölga stólum svo allir kæm-
ust fyrir,“ segir Halldór Halldórs-
son, betur þekktur sem Dóri DNA,
um frumsýningu grínhópsins Mið-
Íslands á nýrri uppistandsröð í Þjóð-
leikhúskjallaranum á föstudags-
kvöld. Sýningin er titluð Áfram
Mið-Ísland! en uppistandsröð þeirra
félaga í fyrra naut mikilla vinsælda
og var sótt af meira en 10 þúsund
gestum. Meðal gesta á frumsýning-
unni á föstudagskvöld voru Gísli
Marteinn Baldursson sjóvarps-
maður, Örn Úlfar Sævarsson, fyrr-
um dómari í Gettu betur, Margrét
Erla Maack fjölmiðlakona og Stein-
þór Helgi Arnsteinsson tónlistar-
iðnaðarmaður. Grínhópurinn hefur
nú ákveðið að fjölga sýningum ræki-
lega, enda eftirspurn eftir miðum
gífurleg. „Við höfum bætt við auka-
sýningum öll föstudagskvöldin sem
við sýnum. Á morgun munum við
svo tilkynna um enn fleiri sýning-
ar. Viðtökurnar eru alveg stórkost-
legar,“ bætir Dóri við. - kak
Þurft u að sækja fl eiri stóla á frumsýninguna
Grínhópurinn Mið-Ísland hefur bætt við aukasýningum á nýrri uppistandsröð sinni, vegna mikilla vinsælda.
FRÁBÆR
VIÐBRÖGÐ
Uppselt var á
báðar sýningar
Mið-Íslands um
helgina. Hér má
sjá þá félaga
eftir frum-
sýninguna á
föstudagskvöld,
sátta með
dagsverkið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta eru fimmtu tónleikarnir sem við
læknar höldum og það hefur alltaf verið góð
stemning á þessum kvöldum,“ segir Helgi
Júlíus Óskarsson hjartalæknir, en hann –
ásamt öðrum tónelskum læknum – treður
upp á sérstöku læknakvöldi á Café Rosenberg
seinna í mánuðinum.
Læknar hafa komið saman og haldið tón-
leika með þessu sniði síðan í september 2012
en Helgi segir að upphafið megi rekja til
umræðu sem spratt upp í kjölfarið á plötuút-
gáfu margra lækna. „Ég gaf út þrjár plötur
með stuttu millibili og síðan kom út plata með
öðrum hjartalækni. Menn fóru þá að reifa
það hvort læknar væru músíkalskari en
aðrar stéttir. Uppgangur Hauks Heiðar
Haukssonar, söngvara Diktu, bættist
svo í umræðuna og menn benda einn-
ig gjarnan á föður hans og nafna,
Hauk Heiðar Ingólfsson, heimilis-
lækni í Hafnarfirði. Þó vil ég benda
á að engar tölfræðilegar upplýsing-
ar liggja að baki þessum fullyrð-
ingum, ég veit í raun ekki hvort
læknar séu tónelskari en aðrir,“
útskýrir Helgi.
Ákveðin nýbreytni verður á
þessum tónleikum því nú reyna
læknarnir meðvitað að auka sam-
starf í tónlist. „Við höfum haft þá
reglu að í það minnsta einn flytjandi
í hverju atriði sé læknir. En nú ætlum
við að reyna að fá lækna til að starfa
saman í tónlist og munum við Haukur
Heiðar hinn yngri ríða á vaðið. Hann
mun syngja fjögur lög eftir mig og ég hef
trú á því að það verði afar flott atriði,“
segir Helgi. Hann segir annars marga
færa tónlistarmenn hafa lagt læknum
lið á þessum fjórum kvöldum sem haldin
hafa verið hingað til. „Stemningin hefur
verið afar góð hjá okkur. Við höfum fyllt
staðinn í öll skiptin og miklu fleiri en
læknar koma á þessi kvöld, enda gæðin
mikil í tónlistatriðunum. Okkur finnst
líka gaman að margir læknar sem spila
tónlist hafa komið upp á yfirborðið
eftir að við fórum að halda þessi kvöld,“
segir Helgi.
kjartanatli@365.is
gunnarleo@frettabladid.is
Tónelskir læknar halda tónleika
Upphaf tónleikanna má rekja til þeirrar umræðu í samfélaginu að læknar séu músíkalskari en aðrar stéttir samfélagsins. Þeir troða upp
á Café Rosenberg seinna í mánuðinum. Haukur Heiðar, söngvari Diktu, mun syngja lög eft ir Helga Júlíus Óskarsson hjartalækni.
HJARTALÆKNIR OG LAGASMIÐUR Helgi Júlíus Óskarsson er fjölhæfur.
Þó vil ég benda á að engar
tölfræðilegar upplýsingar liggja að
baki þessum fullyrðingum, ég veit í
raun ekki hvort læknar séu tón-
elskari en aðrir.
En nú ætlum við að reyna að fá
lækna til að starfa saman í tónlist og
munum við Haukur Heiðar hinn yngri
ríða á vaðið. Hann mun syngja fjögur
lög eftir mig og ég hef trú á því að það
verði afar flott atriði.
HAUKUR HEIÐAR
HAUKSSON