Fréttablaðið - 14.02.2014, Síða 51
FÖSTUDAGUR 14. febrúar 2014 | LÍFIÐ | 35
Tónlist
20.00 Kyrrðarstund í Guðríðarkirkju
klukkan 20-23. Tónlistarmaðurinn
Dreamhub spilar. Guðríðarkirkja er að
Kirkjustétt 8, 113 Reykjavík. Aðgangur
ókeypis.
23.00 Bandaríski tónlistarmaðurinn
Roland Hartwell skemmtir á Ob-La-Dí-
Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Frítt inn!
Bækur
20.30 SlíjmTunglkvöld. Undir fullu
tungli föstudaginn 14. febrúar, frá kl.
20.30 munu Tunglið forlag og Slíjm
sameina krafta sína og bjóða upp á
myndlist, bækur og tónlist. Staðsetning
auglýst síðar.
Fyrirlestrar
11.00 Tinna Laufey Ásgeirsdóttir flytur
fyrirlesturinn Hvað ræður samhengi
tekna og heilsu? Niðurstöður frá 26
Evrópulöndum á málstofu hagfræði-
deildar. Fyrirlesturinn verður í fundar-
herbergi á þriðju hæð í Odda, Háskóla
Íslands.
20.00 Birgir Bjarnason heldur fyrir-
lestur sem hann nefnir Hönd, höfuð,
hjarta. Hann fjallar um samhljóm
hugar, hjarta og handar, kjarnann í
mannlegu lífi. Fyrirlesturinn fer fram
í húsi Lífspekifélags Íslands, Ingólfs-
stræti 22.
12.00 Fíkn, frá ístöðuleysi til heilasjúk-
dóms, málstofa Lyfjafræðideildar og
RLE. Í stofu 213, Haga, Háskóla Íslands.
Dans
12.00 Milljarður rís í Hörpu á vegum
UN Women. Markmiðið er að fá 3.000
manns til að dansa af gleði og krafti
fyrir mannréttindum kvenna. Hægt
verður að leggja frítt í Hörpu á meðan
viðburðurinn stendur yfir. Fólk er hvatt
til þess að mæta snemma. Einnig
verður dansað í Hofi á Akureyri, á
Ísafirði og í félagsheimilinu Herðubreið
á Seyðisfirði.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is.
Hermann Stefánsson rithöfundur
og rapparinn Kött Grá Pjé gefa út
bækur hjá forlaginu Tunglinu á
næsta fulla tungli. Haldið verður
upp á það í kvöld með SlíjmTungl-
kvöldi í samvinnu við Slíjm. Bók
Hermanns heitir Spennustöðin:
stílabók, og var upphaflega hand-
skrifuð í stílabók. „Ég átti erindi
norður á Akureyri og fékk gist-
ingu í húsi sem ég þekkti mjög vel.
Eitt herbergið hafði ég þó aldrei
komið inn í vegna þess að þar var
spennustöð í gamla daga en síðan
var innréttað þar herbergi. Þannig
að ég gisti núna í spennustöðinni.
Það var svolítið mögnuð upplifun,
þannig að ég keypti mér stílabók
og skrifaði Spennustöðina í hana.“
Bókin var ekki skrifuð með
útgáfu í huga. „Spennustöðin er
eiginlega dagbókin mín. Sumt
í henni eru bernskuminningar,
annað er meira stemning. Bókin er
mjög einlæg, nálæg og persónuleg.
Það er enginn skáldskapur í henni.
Þetta er leit að einhverju sönnu,
einhverjum kjarna. Hún fjallar
meðal annars um pabba minn sem
dó á síðasta ári, en hann ólst upp í
þessu húsi,“ segir Hermann.
Kött Grá Pjé gefur einnig út
bók þetta kvöld, en hann er betur
þekktur sem rappari. „Bókin hans
heitir Stálskip: nokkur ævintýri.
Í henni eru skemmtilegir smá-
prósar sem minna mig svolítið á
Julio Cortázar, sem er argentínskt
skáld.“
Engir stælar í Spennustöðinni
Bókaforlagið Tunglið gefur út tvær bækur á fullu tungli á föstudaginn.
GISTI Í SPENNUSTÖÐ
Hermann Stefánsson
rithöfundur.
SLÍJMTUNGLKVÖLDIÐ
Föstudagur 14. febrúar kl. 20.30.
Nánari upplýsingar um staðsetningu á
Facebook-síðu Tunglsins: facebook.com/
tunglidforlag.
Við Lolla ætlum að
syngja lög eftir hvort
annað saman og vera með
uppistand inni á milli.
Þetta verður bæði á
fyndnu nótunum og á
rómantísku nótunum í
tilefni af Valentínusardegi.
Hennar lög eru meira
rómantísk.“
Þorsteinn Guðmundsson