Fréttablaðið - 17.04.2014, Page 4

Fréttablaðið - 17.04.2014, Page 4
17. apríl 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 ÁRÉTTING Ónákvæmni gætti þegar haft var eftir Magnúsi Karli Magnússyni, forseta læknadeildar Háskóla Íslands, að próf læknanema í vor sé forsenda þess að þeir fái lækningaleyfi. Prófið er for- senda þess að nemendurnir útskrifist frá læknadeild, en þeir þurfa að vinna eitt ár sem læknakandídatar áður en þeir fá lækningaleyfi. LEIÐRÉTT Ranghermt var í frétt blaðsins í gær um dómsmál Kims Laursen gegn Hjördísi Svan Aðalheiðardóttur að sálfræðingur- inn sem skrifaði skýrslu sem lögð var fram í dómi hefði starfað hjá Barna- húsi. Einnig stendur að réttarhöld yfir Hjördísi í Danmörku verði 26. og 30. mars en hið rétta er apríl. SVEITARSTJÓRNIR Rekstrar- afgangur Hafnarfjarðarkaup- staðar var umfram áætlanir í fyrra og lækkuðu skuldir um 1.335 milljónir króna. Ársreikningur Hafnarfjarðar bæjar fyrir árið 2013 var tekinn til fyrri umræðu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í gær. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri segir að þær tölur sem fram koma í ársreikningnum sýni styrka og stöðuga fjármálastjórn. Í tilkynningu frá Hafnarfirði segir að leitað hafi verið eftir end- urfjármögnun á erlendum lánum bæjarins og samþykkt hafi verið að ganga að tilboði Íslandsbanka um endurfjármögnun sem feli í sér grunn að heildstæðri lausn. - fbj Betri staða en áætlað var: Jákvæð afkoma Hafnarfjarðar Í HAFNARFIRÐI Bæjarstjóri Hafnar- fjarðar segir að þakka megi starfsfólki bæjarins árangurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STJÓRNSÝSLA Þrír menn ætla að kæra Orkuveitu Reykjavíkur og segja þeir að fyrirtækið hafi ekki farið að lögum þegar verðfyrir- spurn var gerð vegna veiðiréttar í Þorsteinsvík og Ölfusvatnsvík í Þingvallavatni í september í fyrra. „Við erum ósáttir og teljum að það hafi ekki verið farið að lögum og ekki verið gætt jafnræðis,“ segir Helgi Guðbrandsson leið- sögumaður. Tvær verðfyrirspurnir voru gerðar. Í þeirri fyrri buðu með Helga þeir Jóhann Birgisson leið- sögumaður og Belginn René Beau- mont samtals 1,8 milljónir króna í veiðiréttinn. ION Hótel, sem er með starfsemi á Nesjavöllum, bauð einnig í réttinn og var það tilboð 50 þúsund krónum hærra. Þriðji tilboðsaðilinn bauð rúmar 600 þús- und krónur. Ekki var tekið við til- boðum í lokuðum umslögum held- ur tölvupósti. Tilboði ION var tekið en skömmu síðar lásu Helgi og félagar á síð- unni Flugur.is að það hefði bor- ist seinni part dags. „Þegar við inntum OR eftir því hvenær til- boðið hefði borist viður kenndu þeir að það hefði komið tveimur tímum eftir að útboði lauk,“ segir Helgi. „Þetta er algjörlega óverð- lagt svæði. Menn eru að skjóta út í loftið og svo munar bara 50 þús- und kalli. Þess vegna óskuðum við eftir því að fá að sjá þeirra tilboð en þá var okkur þverneitað. Það getur hver sem er séð að þetta er ósann- gjarnt. Við vildum ekki að hótelið fengi tækifæri til að skoða okkar tilboð og gera svo sitt eigið.“ Í framhaldinu óskaði OR eftir því að Helgi og félagar myndu leysa málið með því að semja við ION um samstarf. Viðræður fóru fram en báru engan árangur. Loks ákvað OR að efna til annarrar verðfyr- irspurnar vegna „formgalla“. Þar fengu aðeins þeir sem höfðu áður tekið þátt að vera með. „Við sögð- um að við gætum tekið þátt en ekki ef ION yrði líka með því þeir tóku ekki þátt í fyrri verðfyrirspurn- inni,“ segir Helgi og vísar þar í að tilboð þeirra hafi komið of seint. Sú varð ekki raunin og á endanum bauð ION mun hærra en annar til- boðsaðili og hreppti hnossið. Hann bætir við að upphaflega hafi OR ætlað að láta ION Hótel fá veiðiréttinn án þess að efna til nokkurs útboðs eða verðfyrir- spurnar. ION hefði þegar haft sam- band við leiðsögumenn um að veita veiðimönnum leiðsögn á svæðinu. „Okkar upplifun er mjög skýr. ION átti að fá þetta sama hvað. Maður trúir varla þessum vinnu brögðum. Þetta er opinbert fyrirtæki sem gefur sig út fyrir gegnsæi en telur sig samt hafið yfir lög og velsæmi.“ freyr@frettabladid.is Leiðsögumenn kæra Orku- veituna vegna veiðiréttar Þrír menn ætla að kæra Orkuveitu Reykjavíkur. Ástæðan er vinnubrögð í tengslum við verðfyrirspurn vegna veiðiréttar í Þorsteinsvík í september í fyrra. Þeir segja að ION Hótel hafi allan tímann átt að fá réttinn. Þetta er algjörlega óverðlagt svæði. Menn eru að skjóta út í loftið og svo munar bara 50 þúsund kalli. Þess vegna óskuðum við eftir því að fá að sjá þeirra tilboð. Helgi Guðbrandsson leiðsögumaður. ORKUVEITA REYKJAVÍKUR Þremenningarnir segja að OR hafi allan tímann ætlað að láta ION Hótel fá veiðiréttinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Hálfdán Gunnarsson, forstöðumaður innkaupa- og rekstrarþjónustu OR, segir að veiðirétturinn í Þingvallavatni hafi verið auglýstur til eins árs í reynsluskyni. OR hafi rennt blint í sjóinn með verðmæti réttarins og ákveðið að gera verðfyrir- spurn án þess að fara í formlegt útboð. Í auglýsingunni setti OR þau skilyrði, fyrst veiðiréttarhafa við vatnið, að leyfa eingöngu fluguveiði sem og gera að skyldu að sleppa öllum urriða. Þetta hafi verið gert til að stuðla að verndun urriðans við Þingvallavatn og koma í veg fyrir slæma umgengni um svæðið. „Þarna var skýrt tekið fram að OR áskilji sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er ásamt því að hafna öllum. ION Hótel bað okkur fyrir fram um að fá að skila inn eftir liðinn frest og við veittum þeim heimild fyrir því,“ segir Hálfdán, sem vill ekki meina að með því hafi verið brotið á rétti Helga og félaga. „Ég hef sagt þeim að ef þeir hefðu beðið mig um það sama hefði ég líka veitt þeim það,“ segir hann og bætir við að útboðsskylda sé hjá OR í fjárhæðum sem eru yfir sjö milljónir króna. Þarna var um mun lægri fjár- hæðir að ræða. „En við ætlum þó að standa öðruvísi að þessu fyrir 2015 og opna innkomin tilboð í viðurvist þeirra sem þess óska.“ Hálfdán telur að langt hafi verið gengið í að koma til móts við sjónarmið þremenninganna í málinu, m.a. með því að bjóða þeim að ganga að hluta inn í samninginn um veiðina á komandi sumri en það hafi Helgi og félagar ekki þegið. „En það er ljóst að það eru margir svekktir yfir því að veiðiréttur- inn skyldi leigður út og takmarkanir settar á veiðina. Þarna hafa margir veitt í leyfisleysi, bæði endurgjalds- og eftirlitslaust í gegnum tíðina, og finnst þeim eflaust súrt í brotið, en nauðsynlegt var að grípa í taumana. “ Standa öðruvísi að þessu næst 1,5 milljónir lítra af geril-sneyddri súkkulaðimjólk voru drukknar á Íslandi árið 1990. Sautján árum síðar runnu 2,4 millj- ónir lítra ofan í landsmenn. Heimild: Hagstofan.is SKÓLAMÁL Félag háskólakenn- ara og ríkið skrifuðu undir nýjan kjarasamning í gær. Boðuðu verk- falli hefur verið frestað. Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, sendi frá sér yfirlýsingu eftir að skrifað hafði verið undir. „Á undan förnum árum hafa félags- menn Félags háskólakennara tekið á sig launaskerðingu, aukna kennsluskyldu og aukið álag vegna mikillar fjölgunar nem- enda. Háskóli Íslands mun koma til móts við óskir Félags háskóla- kennara eftir fremsta megni,“ segir þar. Þá segist rektor treysta á stuðning stjórnvalda samanber yfirlýsingu í stjórnarsáttmála um Aldar afmælis sjóð. „Hún felur í sér að staðið verði við samning varðandi stefnu mótun um fjármögnun Háskóla Íslands þannig að tekjur hans verði sam- bærilegar meðaltali framlaga OECD-þjóða til háskóla og síðar meir meðaltali framlaga háskóla á Norðurlöndum,“ segir enn fremur í yfirlýsingu rektors. - jme Rektor segir háskólakennara hafa tekið á sig aukið álag á síðustu árum: Háskólakennarar semja við ríkið LÉTTIR Háskólanemar geta andað léttar. Skrifað hefur verið undir samning og próf verða á áætlun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR SKÓLAMÁL Grunnskóla kennarar greiða eftir páska atkvæði um verkfallsaðgerðir í maí. Kosið verður um hvort kennarar leggi niður störf 15., 21., og 27. maí næst- komandi. Tilgangurinn er að knýja á um gerð nýs kjarasamnings við sveitarfélögin. „Samningar ganga hægt. Ef ekki hefur tekist að semja fyrir 15. maí þarf að brýna kutann og því boðum við til vinnustöðvunar þessa daga,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara. - jme Kennarar greiða atkvæði: Þriggja daga vinnustöðvun AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Vor í Róm VITA er lífiðVITA Suðurlandsbraut 2 Sími 570 4444 Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is 1.- 5. maí *Verð án Vildarpunkta 59.900 kr. Flugsæti: 49.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar* ÍS LE N SK A SI A .I S V IT 68 78 3 4/ 20 14 *Verð án Vildarpunkta 119.900 kr. Tilboðsverð á mann frá 109.900 og 12.500 Vildarpunktar* Innifalið: Beint flug með Icelandair, gisting á Hotel Ariston, fjögurra stjörnu hóteli, með morgunverði í 4 nætur og íslensk fararstjórn. Örfá sæti laus Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá ÚRKOMA SÍÐDEGIS með vaxandi vindi. Slydda og síðan rigning sunnan- og vestanlands en slydda norðaustanlands í kvöld. Norðvestan til má búast við hvassviðri í kvöld og jafnvel stormi um tíma. 1° 7 m/s 3° 9 m/s 5° 8 m/s 5° 8 m/s Hvasst allra vestast og með S- ströndinni annars heldur hægari. Strekkingur allra vestast annars hægari. Gildistími korta er um hádegi 9° 24° 10° 19° 18° 12° 15° 13° 13° 22° 19° 20° 22° 17° 17° 15° 14° 15° 6° 4 m/s 2° 4 m/s 2° 3 m/s 0° 5 m/s 3° 5 m/s 4° 6 m/s 0° 6 m/s 3° 3° 1° 1° 4° 4° 9° 2° 4° 0° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur LAUGARDAGUR Á MORGUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.