Fréttablaðið - 17.04.2014, Page 30

Fréttablaðið - 17.04.2014, Page 30
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og Tíska. Hafdís Huld Þrastardóttir. Hvað gera frægir um páskana? Hönnun. Samskiptamiðlarnir. 2 • LÍFIÐ 17. APRÍL 2014 5 frábærir eiginleikar Hvað er BB krem? BB krem (Blemish Balm) er fegurðarleyndarmál frá Asíu með byltingarkenndri formúlu sem sameinar í einu skrefi það besta í húðumhirðu og örfínar litaragnir sem láta húðina ljóma. Miracle Skin Perfector Kraftaverkakremið frá Garnier- 5-í-1 fyrir fullkomna húð á augnabliki. 2 bókstafir, fullkomin húð á 1 augnabliki Miracle Skin Perfector 5-í-1-KREMIÐ krem frá Garnier Jafnar húðlit Rakagefandi Hylur Gefur ljóma Sólarvörn SPF 15 HVERJIR HVAR? ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Ritstjórnarfulltrúi Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is Umsjón Marín Manda Magnúsdóttir marin@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Valgarður Gíslason Lífi ð www.visir.is/lifid „Maður á að framkvæma hugmyndir sínar og mig hafði lengi langað að opna verslun. Það hefur komið mér mikið á óvart hversu góðar viðtökurnar hafa verið því ég vissi eiginlega ekki hvað ég var að fara út í,“ segir hin 26 ára Sigrún Guðmundsdóttir, sem opnaði netversl- unina Kizu.is í síðasta mánuði. Sigrún heldur úti bloggi og rekur verslun sína frá Leipzig í Þýskalandi þar sem hún hefur búið undanfarið ár með Árna Má Erlingssyni, kærasta sínum. Þangað fluttu þau til að sækja nýjar upplif- anir og sinna myndlistar- og tónlistarhátíðinni Festisvall, sem Árni stofnaði. Kizu.is selur sérvaldar „vintage“-flíkur sem Sigrún finnur víðs vegar á mörkuðum um borgina og segir hún að það krefjist mikillar þolinmæði. Sigrún fór á námskeið í rekstri og fjármálum í Opna háskólanum síðast liðið haust og telur það hafa verið góðan undir- búning í öllu ferlinu. „Að hafa lært samninga- tækni, bókhald og verkefnastjórnum var mér góð reynsla og þótti mér mikilvægt að fylgja ákveðinni uppskrift í þessum rekstri þrátt fyrir að verslunin sé lítil eins og er.“ Sigrún stefnir á að bæta skóm og fylgihlutum í versl- unina en eins og er nýtur hún þess að selja og dytta að flíkum sem allar hafa sína eigin sögu. Kizu.is býður fría heim- sendingu sé pantað fyrir 100 evrur eða meira. HVER ER? Nafn Þráinn Kolbeinsson. Aldur? 25 ára. Starf? Þjálfari í Mjölni. Maki? Berglind Anna. Stjörnumerki? Vog. Hvað fékkstu þér í morgunmat? Spæld egg og epli með hnetu- smjöri. Uppáhaldsstaður? Akrar á Mýrum. Hreyfing? Glíma. Uppáhaldsbíómynd? Intouchables. Uppáhaldssystir? Rakel. Sigrún Guðmundsdóttir „Ég er búin að halda fjögur námskeið síðan í janúar og það hafa verið mjög góð viðbrögð. Fólk er að læra að búa til munstur, þrykkja og prenta á hvað sem er,“ segir Sara María Júlíusdóttir, sem hefur sérhæft sig í þrykktækni. Sara María hefur ætíð haft þörf fyrir að vinna með höndunum og hefur hannað munstur og flíkur undir merkinu Forynja frá árinu 2005. Nú miðlar hún reynslu sinni og heldur námskeið fyrir áhuga- sama. „Heima hjá mér eru prentuð rúmföt, handklæði, púðar og flíkur. Þetta er bara tjáningarform með litum og ég hjálpa fólki að útfæra hugmyndir sínar svo það verði ánægt. Fólk hefur að sjálfsögðu mismunandi áherslur og ég elska bara að silkiprenta á hluti, sama hvað það er.“ Námskeiðin eru opin fólki á öllum aldri og hægt er að skrá sig í gegnum Facebook-síðuna, Forynja. HÖNNUN ÞRYKKNÁMSKEIÐ FORYNJU ER FYRIR ALLA Sara María Júlíusdóttir kennir áhugasömum þrykktækni. Sara María Júlíus dóttir hefur verið að þrykkja flíkur og heimilismuni í fjöldamörg ár. TÍSKA VINTAGE-DRAUMURINN Sigrún Guðmundsdóttir rekur netverslunina kizu.is frá Leipzig í Þýskalandi. Leikverkið Dagbók jazzsöngvarans var frumsýnt í Borgarleikhúsinu um síðast- liðna helgi. Fjölmennt var á sýninguna sem er sett upp af Common Nonsense í samstarfi við Borgarleikhúsið en sagan fjallar um ástina, þakklæti, missi og vin- áttu. Meðal gesta voru meðal annars frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti Íslands, Magnús Geir Þórðarson, útvarps- stjóri og fyrrverandi leikhús- stjóri Borgar leikhússins. Einnig var bókmenntafræðingurinn Silja Aðalsteins dóttir á svæðinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.