Fréttablaðið - 17.04.2014, Síða 43
mbl.isMIÐASALA Á
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA
Ég held að besta fólkið til að læra af, í hverju sem er, hvort sem það tengist
viðskiptalífinu, siðfræði, sölutækni eða samböndum, sé fólk sem gert hefur mistök.
Ef ég vildi læra á viðskiptalífið, myndi ég trúlega vilja læra af einhverjum sem gert
hefur nóg af mistökum á því sviði, dregið lærdóm af þeim og fer rétt að í dag. Maður
getur jafnt dregið lærdóm af því sem fór vel og því sem fór miður.
Sú staðreynd að mér tókst að vinna mig upp úr þessu og öðlast farsælt líf getur reynst
öðrum andlega hvetjandi. Sú hugmynd að taka einhvern sér til fyrirmyndar snýst ekki
aðeins um að taka það góða úr lífi þeirrar manneskju og tileinka sér það eftir heldur
jafnframt að skoða mistök viðkomandi og læra af þeim.
Ég held að fólk eigi eftir að tengja auðveldlega við það sem ég hef fram að færa. Ég veit
að Íslendingar hafa þurft að glíma við meiriháttar vandamál. Það er örugglega mikil
reiði út í bankaumhverfið og það er réttlát reiði. Ég tel að á Íslandi sé fólk sem geti
verið reitt út í mig, sem fulltrúa þessa kerfis. Ég vona að það sama fólk, sem er
hleypidómalaust, komi og sjái mig af því að ég held að þegar það heyrir hvað ég hef
fram að færa skilji það tilgang ferða minna. Vonandi get ég veitt því innblástur og sýnt
því að sama hvað hefur gengið á þá er alltaf hægt að vinna sig út úr því.
„
“