Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 72
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 40TÍMAMÓT
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ðurh 5, Rv 5 1 00 t n
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
Hinrik
Valsson
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BARÐI FRIÐRIKSSON
hæstaréttarlögmaður,
Úthlíð 12,
lést á Sóltúni þriðjudaginn 22. apríl.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 29. apríl kl. 15.00.
Þuríður Þorsteinsdóttir
Laufey Barðadóttir Ævar Guðmundsson
Margrét Barðadóttir
Þorsteinn Barðason Guðrún Þ. Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞRÁINN ÁRNASON
myndskeri,
Digranesheiði 21, Kópavogi,
lést mánudaginn 14. apríl. Hann verður
jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðjudaginn
29. apríl kl. 15. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Krabbameinsfélagið.
Rebekka B. Þráinsdóttir
Sigurður Á. Þráinsson Solveig K. Jónsdóttir
Þór Þráinsson Valborg Guðmundsdóttir
Þráinn V. Þráinsson Hulda M. Kristófersdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför systur minnar, mágkonu og frænku,
ÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR
hússtjórnarkennara,
Reynimel 36.
Jóhannes Guðmundsson Guðrún María Tómasdóttir
Jóhanna Guðbjörnsdóttir
Þuríður Guðbjörnsdóttir
Tómas Jóhannesson, Helgi Jóhannesson,
Sigríður Jóhannesdóttir, Guðmundur Þorri Jóhannesson
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
GÍSLI J. KJARTANSSON
vélfræðingur,
Breiðuvík 18,
lést á líknardeild LSH að morgni páskadags.
Útför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 30. apríl kl. 15. Þeim sem vildu minnast hans er
bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Júlíana S. Aradóttir
Helgi Gíslason Þórunn Arnardóttir
Sæunn Gísladóttir Guðmundur Ásgeir Björnsson
börn, barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær fósturbróðir minn og vinur,
ÁSMUNDUR JÓNSSON
Hofsstöðum í Mývatnssveit,
verður jarðsunginn frá Skútustaðakirkju föstudaginn
2. maí næstkomandi kl. 14.00.
Ásdís Ásgeirsdóttir.
Tuttugu og átta ár eru liðin frá Tsjernóbíl-kjarnorkuslysinu í
gömlu Sovétríkjunum. Slysið er talið það stærsta í sögu kjarn-
orkunnar og gætir afleiðinga þess enn þann dag í dag. Heil-
brigðisráðuneyti Úkraínu gaf út tölur árið 2001 sem sýndu að
einn af hverjum sextán íbúum landsins ætti við einhvers konar
heilsubrest að stríða sem rekja mætti til slyssins. Enn fremur
voru þá um sjötíu þúsund Úkraínumenn óvinnufærir eftir að
hafa tekið þátt í hreinsunaraðgerðum í kjölfar slyssins.
Ástæður slyssins eru raktar til ábyrgðarlausrar tilraunar með
kælikerfi kjarnaofns númer 4. Kælikerfinu var lokað með þeim
afleiðingum að kjarninn hitnaði um of og olli gufusprengingu
sem tætti sundur hlífarnar þannig að geislavirkt efni fór í miklu
magni út í andrúmsloftið. Geislavirknin var margfalt meiri en
eftir sprengjurnar sem varpað var á Hirósíma og Nagasakí.
Geislavirku efnin dreifðust með vindum yfir Norður- og
Austur-Evrópu.
Sovésk yfirvöld reyndu að hylma yfir óhappið en urðu að
viðurkenna að meiriháttar slys hefði orðið þegar sænsk yfirvöld
tilkynntu 28. apríl að geislavirkni mældist 40 prósentum meiri
en eðlilegt gæti talist 1.300 kílómetra norðvestur af Tsjernóbíl.
ÞETTA GERÐIST 26. APRÍL 1986
Stærsta kjarnorkuslys sögunnar
„Við erum að frumflytja tvö verk sem
hafa ekki verið flutt áður hér á landi
svo vitað sé, Missa Pastoralis eftir
Ryba og Kantötu bwv. 30 eftir Bach.
Þriðja verkið er Beatus vir RV 597
eftir Vivaldi,“ segir Friðrik Vignir
Stefánsson um 20 ára afmælistónleika
Kammerkórs Seltjarnarneskirkju í
dag sem nefnast Dýrðartónar og hefj-
ast klukkan 17.
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
starfi við Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna sem Friðrik Vignir ber lof á.
„Þetta er fínasta hljómsveit. Hún æfir
í kirkjunni og það er mikils virði að
geta leitað til hennar með að spila
undir,“ segir hann. Einnig er hann
ánægður með að njóta krafta Kára
Þormar dómorganista. „Við Kári
höfum unnið mikið saman og hann
hleypur hér undir bagga,“ segir Frið-
rik Vignir sem er starfandi organisti
Seltjarnarneskirkju en heldur um tón-
sprotann að þessu sinni. „Ég hef verið
organisti hér á Nesinu frá 2007 og hef
svolítið verið í því að finna verk sem
aðrir kórar eru ekki að flytja, eins og
þessi tvö sem ég nefndi fyrst.“
Árið 2014 er afar sérstakt á Sel-
tjarnarnesi að sögn Friðriks Vign-
is því auk þess sem kammerkórinn
á 20 ára afmæli átti kirkjan 25 ára
vígsluafmæli í febrúar og orgelið í
kirkjunni á 15 ára afmæli. Svo varð
Seltjarnarnesbær 40 ára í apríl og
Seltjarnarnessöfnuður verður fer-
tugur 9. nóvember. Þannig að þetta
er stórt afmælisár.
Friðrik Vignir segir að mikið sé
lagt í tónleikana í dag. „Við erum búin
að æfa stíft frá því í janúar, erum með
tíu einsöngvara, átta þeirra koma úr
kórnum enda samanstendur hann af
lærðu söngfólki. Það er gaman að
gefa því tækifæri til að syngja sóló
með hljómsveit. Þetta er allt toppfólk.
Maður býður ekkert upp á annað hér
á Seltjarnarnesinu.“ gun@frettabladid.is
Seltirningar halda upp á
fi mmfalt afmæli í ár
Kammerkór Seltjarnarneskirkju heldur tónleika í dag klukkan 17 undir yfi rskrift inni
Dýrðartónar. Tíu einsöngvarar koma fram, auk Sinfóníuhljómsveitar áhugamanna. Kári
Þormar leikur á orgel kirkjunnar en stjórnandi kórsins er Friðrik Vignir Stefánsson.
Á ÆFINGU Kammerkór Seltjarnarneskirkju hefur á að skipa lærðu söngfólki. Átta úr röðum hans syngja einsöng á tónleikunum í dag.
MYND/BJÖRGVIN SIGURÐSSON
Berta Dröfn Ómarsdóttir
sópran
Guðrún Lóa Jónsdóttir sópran
Sigurlaug Arnardóttir sópran
Vilborg Helgadóttir sópran
Eygló Rúnarsdóttir mezzó-
sópran
Þóra H. Passauer kontra-alt
Einar Clausen tenór
Snorri Valsson tenór
Kristján Jóhannesson bariton
Árni Gunnarsson bassi
➜ Einsöngvarar
á tónleikunum