Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 38
FÓLK|HELGIN Andrésar andarleikarnar voru settir á miðvikudaginn á Akureyri og lýkur í dag, laugardag. Um 750 keppendur á aldrinum 6-15 ára taka þátt en leikarnir voru fyrst haldnir árið 1976. Meðal fjölmargra gesta á leikunum þetta árið er hinn 82 ára gamli Bjarni Einars- son en þetta eru 36. leikarnir sem hann sækir. Bjarni missti af fyrstu Andrésar andarleikunum og eitt árið féllu þeir niður vegna snjóleysis. Bjarni segir margt hafa breyst á þess- um tæplega 40 árum sem hann hefur sótt leikana. „Raunar hefur nánast allt breyst á þessum tíma. Skíðabúnaðurinn er allt annar í dag, framkvæmd móta og tímataka á þeim með allt öðrum hætti og svo mætti lengi telja. Gleði og ánægja þátttakenda er þó alltaf sú sama.“ Bjarni og eiginkona hans, Sesselja Jóna Guð- mundsdóttir, eiga níu barnabörn og hafa þau öll stundað skíðaíþróttina ásamt börnum þeirra hjóna. „Það er alltaf jafn gaman að koma á Andrésar andarleikana ár eftir ár og fylgjast með börnunum. Öll barnabörnin okkar hafa komist á verðlaunapall á leikunum og í ár keppir eitt þeirra sem er mjög sterkur skíðamaður. Hér áður fyrr gat stundum verið erfitt að fylgja þeim öllum eftir enda kepptu þau í ólíkum aldurshópum en við hjónin reynum okkar besta.“ Sjálfur byrjaði Bjarni að skíða árið 1946 og hefur því stundað íþróttina í tæp 70 ár. „Þetta er búinn að vera langur tími en ég sé ekki eftir honum. Ég og félagar mínir í Ármanni byggðum til dæmis skála í Bláfjöllum sem við nefnd- um Himnaríki. Þessi tími hefur verið mikið ævintýri.“ Hjónin mættu til Akureyrar á þriðju- daginn og dvelja þar allan tímann á meðan leikarnir standa yfir. „Krakkarnir kepptu á fimmtudag, föstudag og svo í dag. Leikarnir snúast þó ekki bara um keppni, til dæmis eru haldnar kvöld- vökur og verðlaun eru veitt eftir hvern keppnisdag. Það er frábær stemning í bænum þessa daga.“ SKÍÐAFJÖLSKYLDA Hjónin Bjarni Einarsson og Sesselja Guðmundsdóttir ásamt tveimur barnabörnum sínum á Akureyri. MYND/AUÐUNN GLEÐI Í BREKKUNNI Um 750 keppendur taka þátt í ár. MYND/PEDRÓMYNDIR SKÍÐIN ERU LÍFIÐ ÚTIVERA Bjarni Einarsson hefur mætt á alla Andrésar andarleikana utan þá fyrstu. Leikunum líkur í dag og Bjarni er auðvitað mættur til Akureyrar. TÓLF KÖKUR 75 g smjör 1 dl mjólk 2 egg 1 1/2 l strásykur 2 1/2 dl hveiti 1 1/2 tsk. lyftiduft 100 g möndlu- massi 3/4 tsk. kardi- mommudropar 1 1/2 dl bláber, fersk eða frosin Bræðið smjör í potti og bætið síðan mjólkinni saman við. Hrærið egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Þá er hveiti og lyftidufti bætt í og loks smjör- og mjólkurblönd- unni ásamt kardi- mommu dropum. Rífið möndlumass- ann niður með rifjárni og blandið saman við bláberin. Hrærið síðan út í deigið með sleif. Setjið deigið í tólf múffuform og bakið við 200°C í 15 mín- útur. Fallegt er að strá flórsykri yfir kökurnar en það er ekki nauðsynlegt. EINFALDAR BLÁBERJAMÚFFUR Ef gesti ber að garði um helgina er ágætt að eiga bláberjamúffur til að bjóða upp á. Kökurnar er mjög einfalt að gera og þær geymast ágætlega. Hins vegar eru þær auðvitað bestar glænýjar. Hægt er að nota fryst eða ný bláber. NÝBAKAÐAR Múffur eru sérlega góðar með kaffinu, einkum nýbakaðar. Allt sem þú þarft ... * Skv. fjölmiðlakönnun Capacent Gallup, júl–sept 2013. íbúa höfuðborgar- svæðisins á aldrinum 25–54 ára lesa Frétta- blaðið á degi hverjum.* Það eru nokkurn veginn þeir sömu og koma til með að horfa á Eurovision á RÚV í vor. 70%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.