Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 64
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 26. APRÍL 20144
Hin fræga stórverslun John Lewis, sem er til húsa við Oxford-stræti í Lundúnum,
fagnar 150 ára afmæli sínu þessa dagana. Gestir verslunarinnar fá að upplifa
hvernig búðin leit út 2. maí 1864 á sýningu sem sett hefur verið upp. Á sýning-
unni er einnig sagt frá því hvernig seinni heimsstyrjöldin breytti verslunar háttum
og hefði getað breytt framtíðaráformum fyrirtækisins en verslunin skemmdist í
sprengjuárás.
Þá má sjá gömul vörumerki eins og Silver Cross-barnavagna, Dualit-, Hoover- og
Kenwood-heimilistæki ásamt fleira skemmtilegu. Einnig verður opnaður garður á
þaki byggingarinnar sem þekktir hönnuðir hafa hannað.
Fyrirtækið, sem þénaði 4 milljarða punda á síðasta ári, er að láta gera nýjar sjón-
varpsauglýsingar sem tengjast afmælinu. John Lewis byrjaði við Oxford-stræti en
rekur nú 41 verslun á Bretlandseyjum. Um 91 þúsund manns starfa hjá fyrirtækinu.
Afmælið verður notað til að kynna sögu fyrirtækisins og hvernig það hefur þróast.
John Lewis 150 ára
Margt skemmtilegt verður gert í tilefni afmælisins. MYND/AFP
HEILSUSAMLEGA KÖBEN
Kaupmannahöfn lendir oft og
iðulega á topplista yfir heilsu-
samlegustu höfuðborgir veraldar.
Þar hefur loftmengun dvínað til
muna á síðasta áratug og mark-
mið stjórnvalda að Kaupmanna-
höfn verði fyrsta höfuðborg
heimsins sem verður algjörlega
laus við koltvísýring í andrúms-
lofti árið 2025.
Í dag fer helmingur borgarbúa
til vinnu og skóla á reiðhjólum
og liggja yfir 400 kílómetrar af
skemmtilegum hjólabrautum
um alla borg. Reiðhjól eru því
kjörinn og dásamlegur ferðamáti
þegar farið er um höfuðborg
Danaveldis. Fjölfarnasta hjólaleið
heims liggur um Dronning
Louises-brúna, með yfir 36 þús-
und hjólreiðamenn á dag. Önnur
fjölfarin hjólaleið er yfir Löngubrú,
sem liggur yfir innri höfnina
og tengir eyjuna Amager við
miðbæ Kaupmannahafnar. Þar er
jafnan krökkt af hjólreiðafólki og
hvarvetna lifandi og skemmtilegt
mannlíf. Þá hefur ný og spenn-
andi hjóla- og göngubrú verið
byggð yfir höfnina sem tengir
hafnarsvæðið við íbúðahverfið
Fisketorvet.
ÍSLENSKIR STRAUMAR Í
STÓRA EPLINU
Veitingastaðinn SKÁL á Canal
Street í New York er vert að
heimsækja, þó ekki sé nema til að
upplifa norræna og heimilislega
strauma í stóra Eplinu.
Staðurinn er íslenskur en
eigandinn, Óli Björn, býður upp
á ljúffengan mat, eldaðan á
norræna vísu.
Innréttingarnar á staðnum eru
hannaðar af þeim Róshildi Jóns-
dóttur og Snæbirni Stefánssyni
vöruhönnuðum, sem saman
vinna undir merkinu Hugdetta.
Nánar á www.skalnyc.com
Ef heimþráin er alveg að fara með
ferðalanginn væri næsta stopp
BÚÐIN í Greenpoint Brooklyn. Þar
er hægt að drekka íslenskan bjór
og kaupa íslenska hönnun. Rut
Hermannsdóttir, einn eigenda
Búðarinnar, býður einnig upp á
dýrasta kaffibollann í NYC.
Nánar á www.budin.is
SKÁL, íslenskur staður á Canal Street.
EX
PO
•
w
w
w
.e
xp
o.
is
VIÐ
SKUTLUM
ÞÉR!
*Miðast við að keyptur sé miði fram og til baka á: 3.500 kr.
1.750 kr.*
FYRIR AÐEINS
Frí þráðlaus internet -
tenging í öllum bílum
Ferðatími u.þ.b.
45 mínútur
Alltaf laus sæti Alltaf ferðir
Hagkvæmur kostur Umhverfisvænt
BSÍ - Umferðarmiðstöðin
101 Reykjavík
580 5400
main@re.is • www.re.is
Skannaðu strikamerkið
með snjallsímanum og
kynntu þér áætlunina.
Kauptu miða núna á
www.flugrutan.is
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í tengslum við allar
komur og brottfarir flugvéla um Keflavíkurflugvöll.