Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 39
GARÐURINN
LAUGARDAGUR 26. APRÍL 2014 Kynningarblað Garðtækni hannar garða, skógar á Íslandi og sögulegir garðstólar.
Garðurinn er stór hluti af lífi fjöl-skyldu Sigurðar J. Leifssonar. Fjöl-skyldan er búsett í efri byggðum
Kópavogs í nágrenni Elliðavatns, á mörkum
byggðar og sveitar í friðsælu og fallegu út-
hverfi. Garðurinn er 1.600 fermetrar að
stærð og inniheldur meðal annars niður-
grafinn heitan pott, gufubað og sturtu sem
er föst við fallega ösp. Auk þess er þar að
finna mongólskt tjald sem Sigurður hlaut
að gjöf eftir að tökum lauk á stórmynd Bens
Stiller, The Secret Life of Walter Mitty, sem
var tekin upp að hluta hérlendis síðasta
sumar.
„Við eyðum miklum tíma í garðinum allt
árið. Yfir veturinn eru potturinn og gufu-
baðið mikið notuð. Þegar sumarið kemur
dveljum við síðan löngum stundum þar
enda mikið skjól hér. Þegar sólin skín er al-
gjör paradís að vera hérna. Við höfum pass-
að okkur að skipuleggja garðinn sjálfan
ekki of mikið. Hann er því hæfilega villtur
og passar vel inn í umhverfið hér.“
Heiti potturinn er grafinn niður í jörð-
ina sem er ekki algengt hér á landi að sögn
Sigurðar. „Einnig höfum við gufubað í garð-
inum sem er vel falið á milli trjánna. Þetta
er sannkallað háklassagufubað þótt íburð-
urinn sé ekki mikill. Við notum það sérstak-
lega yfir veturinn og það er virkilega ljúft að
dvelja þar á köldum vetrarkvöldum.“
Mongólska tjaldið er í garðinum allt árið
en mest notað yfir sumarið. „Við notum
tjaldið undir matarboð en ég er búinn að
smíða stóran pall undir það. Það hefur svo
sannarlega slegið í gegn hjá fjölskyldu og
vinum og ófá matarboðin eru haldin þar yfir
sumartímann.“
Tíu til tólf manns komast fyrir í heita pott-
inum en samt sem áður ætlar Sigurður að
stækka við sig. „Maður er auðvitað léttrugl-
aður. Við ætlum að setja niður nýjan pott
strax og veðrið skánar og þá komast fleiri
fyrir. Það gefur bara fleirum kost á því að
liggja í kvöldkyrrðinni og skoða stjör nurnar
og norðurljósin. Frísið í hestunum í næsta
húsi gerir aðstæður síðan enn náttúrulegri.“
Léttruglaður garðeigandi
Í efri byggðum Kópavogs hefur fjölskylda Sigurðar J. Leifssonar komið sér vel fyrir og útbúið glæsilegan garð. Þar má finna heitan
pott, gufubað, sturtu og mongólskt tjald. Fjölskyldan eyðir löngum stundum í garðinum allt árið með vinum og vandamönnum.
Búið er festa sturtu við fallega ösp í garðinum. Gufubaðið er falið á milli trjánna og laust við íburð.
Sigurður J. Leifsson í fallegum garði fjölskyldunnar í efri byggðum Kópavogs. Gufubaðið er til vinstri og sturtan á öspinni í baksýn. MYNDIR/DANÍEL