Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 26
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR FJARÐABYGGÐ
Aðferðafræðin Hringt var í 755 manns þar til náðist í 607 samkvæmt lagskiptu úrtaki þann 23. apríl. Svarhlutfallið var 80,4 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða
lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk? Það er gert í
samræmi við aðferðafræði sem þróuð var á Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands. Alls tóku 61,9 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. - bj
Fjarðabyggð er sameinað sveitarfé-
lag nokkurra þéttbýlisstaða á Aust-
fjörðum; Neskaupstaðar, Eskifjarð-
ar, Reyðarfiarðar, Fáskrúðsfjarðar
og Stöðvarfjarðar. Í sveitarfélaginu
bjuggu 4.675 íbúar í upphafi árs og
á kjörskrá í komandi sveitarstjórn-
arkosningum verða 3.362.
Fjöldi íbúa síðustu ár fór hæst
upp í rúm 5.700 árið 2007, þegar
framkvæmdir stóðu sem hæst við
uppbyggingu álverksmiðju Alcoa
á Reyðarfirði. Síðan þá hefur íbúa-
fjöldi náð jafnvægi og sjást merki
þess að íbúum fjölgi jafnt og þétt í
Fjarðabyggð.
Þrír flokkar eiga sæti í bæjar-
stjórn Fjarðabyggðar. Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsóknarflokkur-
inn mynda sex manna meirihluta
gegn þremur fulltrúum Fjarðalist-
ans. Þessi framboð bjóða ein fram
aftur og ekki eru líkur á því að nýtt
framboð skerist í leikinn á síðustu
metrunum. Ekki er breyting á odd-
vitum framboðanna. Elvar Jónsson,
Jens Garðar Helgason og Jón Björn
Hákonarson leiða aftur sína lista.
Meirihlutinn heldur velli
Flokkarnir þrír fá allir þrjá menn
kjörna samkvæmt skoðanakönnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Í síð-
ustu kosningum fengu Sjálfstæð-
ismenn fjóra menn, Fjarðalistinn
þrjá og Framsókn tvo. Fjórði maður
Sjálfstæðisflokksins flyst því yfir á
Framsóknarflokkinn og meirihlut-
inn heldur velli samkvæmt skoð-
anakönnuninni.
Samkvæmt könnuninni eru öll
framboðin nánast jafnstór. Fimm
karlar og fjórar konur taka sæti í
nýrri bæjarstjórn verði þetta niður-
stöður kosninga.
Lækkun skulda gengið vel
Kjörtímabilið sem nú er á enda
hefur að mörgu leyti gengið vel í
Fjarðabyggð. Skuldir sveitarfélags-
ins voru miklar í upphafi kjörtíma-
bilsins og einhentu flokkarnir sér í
sameiningu við að ná niður skuld-
um. Meirihluti og minnihluti hafa
unnið saman að því markmiði og
árangurinn eftir því. Í byrjun árs
2014 hefur skuldaviðmið Fjarða-
byggðar komist niður í 167% en
árið 2011 var skuldaviðmiðið rúm-
lega 220%.
Allir flokkar hafa lagst á eitt
við lækkun skulda. Lykilþátturinn
hafi verið pólitískur stöðugleiki í
bæjarstjórn þar sem minnihlutinn
hafi ekki staðið á móti þessu verk-
efni heldur þvert á móti lagt sín lóð
á vogarskálarnar.
Vegstæði og strætó
Þótt samvinna allra flokka hafi að
mestu gengið vel eru oddvitar allra
framboða á því að um tvennt hafi
ekki ríkt eining í bæjarstjórn. Það
fyrra varðar almenningssamgöng-
ur innan sveitarfélagsins og gjald-
skrá þess efnis. Minnihlutinn lagði
ríka áherslu á að allt sveitarfélagið
væri eitt gjaldsvæði. Raunin er sú
að íbúar greiða ólíkt gjald eftir því
hvar þeir búa innan sveitarfélags-
ins. Flokkarnir tókust á hvað þetta
varðar og vildi minnihlutinn meina
að þarna væri um grófa mismunun
að ræða eftir búsetu. Þessari gagn-
rýni hafnaði meirihlutinn á sínum
tíma og benti á það mikla framfara-
skref að hafa komið á almennings-
samgöngum innan sveitarfélagsins.
Það síðara sem oddvitar eru sam-
mála um að hafi ekki verið samein-
ing um, er vegalagning við nýjan
átta deilda leikskóla í Neskaupstað.
Minnihlutinn lagði áherslu á að
færa veginn niður fyrir leikskólann
þannig að hann myndi ekki liggja
milli leikskóla og grunnskóla. Málið
væri í senn öryggismál og skólamál
þar sem meiri samlegð gæfist með
því að hafa ekki veg á milli bygg-
inganna. Meirihlutinn taldi ekki
vera fjármagn til þess að færa
veginn niður fyrir leikskólann og
einnig að pláss væri ekki til staðar.
Skuldalækkun stóra málið
Að mati Jens Garðars Helgasonar,
oddvita Sjálfstæðismanna, verður
áframhaldandi aðhald í rekstri og
lækkun skulda stóra málið í kom-
andi kosningum. „Mikill árangur
hefur náðst í lækkun skulda og það
verkefni mun halda áfram á næsta
kjörtímabili. Nú hefur kannski gef-
ist ákveðið svigrúm til gjaldlækk-
ana og framkvæmda á vegum sveit-
arfélagsins. Þegar bæjarsjóður er
ekki ofhaldinn af peningum eru
hlutir sem sitja á hakanum. Viðhald
vega er til að mynda verkefni sem
þarf að einhenda sér í.“
Um skipulag við nýjan átta deilda
leikskóla í Neskaupstað segir Jens
Garðar að forgangsmálið hafi
verið það að koma á átta deilda
leikskóla. Ekki hafi verið svigrúm
innan fjárhagsramma að færa veg-
inn.
Elvar Jónsson, oddviti minni-
hlutans í Fjarðalistanum, segist
vona að kosningabaráttan muni
snúast um félags-, fræðslu- og hús-
næðismál. „Fjarðalistinn er félags-
hyggjuafl, óháð stjórnmálaöflum
á landsvísu. Við viljum tryggja
félagslegt réttlæti. Úrræða er þörf
í félagsmálum almennt í sveitarfé-
laginu.“
Elvar segir það lykilatriði að
íbúum sveitarfélagsins sé ekki
mismunað. „Afstaða Fjarðalistans
er skýr í þeim efnum. Allir íbúar
sveitarfélagsins eiga að sitja við
sama borð þegar kemur að gjald-
töku fyrir almenningssamgöngur.
Kjósendur sem eru ósáttir hljóta
að horfa til þess að tryggja þeim
fulltrúum aukið vægi í bæjar-
stjórn sem hafa talað skýrt í þess-
um efnum.“
Jón Björn Hákonarson, oddviti
Framsóknarflokksins, telur að
árangur meirihlutans hvað varð-
ar lækkun skulda á kjörtímabilinu
verði kjósendum ofarlega í huga
þegar gengið er að kjörborðinu.
„Stóra málið verður áfram-
haldandi aðhald í rekstri sveitar-
félagsins. Bæjarsjóður stendur
orðið ágætlega en áframhaldandi
aðhalds er þörf. Öryggi vegfar-
enda á leið milli þéttbýlisstaða
innan sveitarfélagsins verður eitt
af stóru málunum, svokallaður
Suðurfjarðarvegur er stórhættu-
legur og úrbóta er þörf.“
Framboðin jafnstór í Fjarðabyggð
Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks heldur velli í Fjarðabyggð samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Mikill
árangur í lækkun skulda. Almenningssamgöngur og vegstæði við nýjan leikskóla í Neskaupstað eru helstu ágreiningsefni.
Sveinn
Arnarsson
sveinn@frettabladid.is
Framboðin þrjú sem bjóða fram í
Fjarðabyggð fengju þrjá bæjarfulltrúa
hvert yrði gengið til kosninga nú sam-
kvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Framsóknarflokkurinn bætir við sig
manni frá því sem nú er á kostnað Sjálf-
stæðisflokksins, en Fjarðalistinn myndi
halda sínum hlut samkvæmt könnuninni.
Samkvæmt könnuninni tapar Sjálfstæðis-
flokkurinn talsverðu fylgi frá kosning-
unum 2010 þegar 40,3 prósent greiddu
honum atkvæði. Flokkurinn nýtur engu
að síður mests fylgis af framboðunum
þremur, og fengi 32,5 prósent atkvæða.
Stuðningur við Framsóknarflokkinn
hefur aukist lítillega, og fengi hann 31,7
prósent atkvæða samkvæmt könnuninni.
Fjarðalistinn tapar fylgi, og fengi 28,7
prósent atkvæða yrði gengið til kosninga
nú. Aðrir flokkar hafa ekki boðað fram-
boð í Fjarðabyggð, og því vekur athygli
að 7,1 prósent þátttakenda í könnun
Fréttablaðsins segist ætla að kjósa annan
flokk.
Frjálsir með Framsókn
Sjálfstæðisflokkurinn
Fjarðalistinn
FRAMBOÐSLISTAR Í FJARÐABYGGÐ
D SjálfstæðisflokkurinnB Framsóknarflokkurinn
1. sæti Elvar Jónsson
skólameistari í Nes-
kaupstað
2. sæti Eydís Ás-
björnsdóttir hársnyrti-
meistari á Eskifirði
3. sæti Esther Ösp Gunnarsdóttir
kynningarstjóri á Reyðarfirði
4. sæti Einar Már Sigurðarson
skólastj. og fyrrv. alþ.m. í Neskaup-
stað og á Fáskrúðsfirði
1. sæti Jón Björn
Hákonarson forseti
bæjarstjórnar, Norð-
firði
2. sæti Eiður Ragnars-
son viðskiptafullrúi,
Reyðarfirði
3. sæti Pálína Margeirsdóttir
verslunarmaður, Reyðarfirði
4. sæti Hulda Sigrún Guðmunds-
dóttir skólaliði, Fáskrúðsfirði
1. sæti Jens Garðar
Helgason bæjarfulltrúi
og framkvæmdastjóri
Fiskimiða.
2. sæti Valdimar O.
Hermannsson bæjar-
fulltrúi og rekstrarstjóri HSA.
3. sæti Kristín Gestsdóttir ráðgjafi
innkaupa hjá Alcoa Fjarðaáli.
4. sæti Dýrunn Pála Skaftadóttir
stöðvarstjóri Olís.
L Fjarðarlistinn
Páll Björgvin
Guðmundsson,
sem ráðinn
var bæjarstjóri
Fjarðabyggðar
eftir sveitar-
stjórnarkosningar
2010, hefur hug
á að halda áfram
störfum fyrir
sveitarfélagið.
„Sé um það almenn sátt
innan nýrrar bæjarstjórnar
er ég jákvæður fyrir því að
sinna áfram starfi bæjarstjóra.
Samskiptin við núverandi
bæjarstjórn, bæði meiri- og
minnihluta, hafa verið góð og
árangur í rekstri og í verkefnum
á vettvangi sveitarfélags-
ins verið mikill,“ segir Páll
Björgvin.
➜ Páll vonast eftir
endurráðningu
Kosningar
árið 2010
28,4%
40,6%
31,1%
31,7%
32,5%
28,7%
vik
mö
rk 3
,9%
3,8%
3,9
%
Könnun
12. mars
2014
Fjöldi bæjarfulltrúa
➜ Ef gengið yrði til kosninga nú myndu bæjarfulltrúarnir skiptast jafnt
PÁLL BJÖRGVIN
GUÐMUNDSSON
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Stöðvarfjörður
FYLGI FLOKKANNA
Í DAG
3.362
á kjörskrá
ÁRIÐ 2010
4.641
bjuggu í Fjarðabyggð
Í DAG
4.675
búa í Fjarðabyggð
ÁRIÐ 2010
230%
Skuldaviðmið
ÁRIÐ 2014
170%
Skuldaviðmið