Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 30
26. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 ➜ Ástarsaga Telja má mjög sennilegt að Megas hafi haft harmleikinn í Rauðhólum í huga þegar hann samdi lagið Ástarsögu sem var eitt laga plötunnar Loftmyndar sem kom út árið 1987: Við héldum af stað eftir Hringbraut það var hlýtt og glampandi sól og allir búnir sínu besta skarti i borginni sem mig ó1 liljuhvít var höndin hennar sem hélt ég svo þétt um og útúr borginni flýttum við för og framhjá Árbænum. Rétt fyrir utan Reykjavík við Rauðhóla gerðum við töf og hún renndi þar sjónum sínum hún sá þar var nýtekin gröf hún fleygði sér í fang mér ég fann hún skalf eins og strá ég óttast sagði hún: ástin mín ég óttast það sem ég sá. Hún fleygði sér felmtri slegin í fang mitt og sagði milt: ég hrœðist svo að þú hafir í hyggju að gera mér illt þú átt kollgátuna kvað ég við nú er komin þín hinsta stund í gröfinni atarna sem gróf ég í nótt verður gott að fá sér blund Vendipunktur varð í lífi Halldóru Ástvalds-dóttur árið 1972. Þá kynntist hún ungum manni, Einari. Hall-dóra og Einar opin- beruðu trúlofunina ári síðar og 1974 komu þau sér fyrir í íbúð við Njálsgötu. Vorið 1976 leigðu þau íbúðina út, héldu á vit ævin- týranna, og fluttust til Svíþjóðar. Sumarið 1977 komu Halldóra og Einar í sumarfrí hingað til lands. Faðir Halldóru varð var við að ekki væri allt með felldu í sam- búð unga fólksins. Móðir hennar sagði fyrir dómi að Halldóra hefði verið búin að fá nóg af Einari og hafi ákveðið að slíta trúlofun- inni skömmu eftir heimkomuna. Einar hélt því einn aftur til Sví- þjóðar. Þegar hann áttaði sig á því að Halldóra kæmi ekki aftur út til sín ók hann bifreið þeirra frá Svíþjóð til Bergen og tók sér far með bílferjunni Smyrli til Seyðis- fjarðar laugardaginn 13. ágúst 1977. Þegar Halldóra frétti að Einar væri væntanlegur til lands- ins sótti að henni mikill kvíði og hún gisti hjá vinkonu sinni. Þegar Einar kom til Reykjavíkur daginn eftir sótti hann stíft að Halldóru og vildi ræða um sambandsslitin. Halldóra hafði ráðið sig til vinnu í Nesti við Háaleitisbraut og mætti Einar þangað. Þar spurði hann hana hvenær vinnu lyki og svar- aði hún að það væri um klukkan 23.30 en bætti við: „Já, en þú sefur ekki hjá mér í nótt.“ Einar gisti því hjá foreldrum sínum um nóttina. Næsta dag fyrir hádegi tók hann rússneskan riffil, sem hann átti geymdan í skáp í íbúð foreldra sinna, og kom honum fyrir í bifreið sinni ásamt pakka með skotum. Í bifreiðinni hafði Einar meðferðis talsvert af fatnaði sem Halldóra átti og með þetta fór hann upp á Vatnsendahæð og fleygði því þar í lækjarfarveg. Eftir að því var lokið keyrði Einar niður í Austur- ver og sótti Halldóru í vinnuna. Halldóra settist upp í bílinn og var stefnan tekin út úr bænum og upp í Rauðhóla. Þar reyndi Einar að ræða við Halldóru um sambandið en hún vildi lítið um það tala. Einar fór út úr bílnum, tók riffil- inn upp og hleypti af fjórum skot- um á Halldóru. Eftir voðaverkið tók hann rakvélarblað sem hann hafði meðferðis og skar sig á púls. Að auki tók hann riffilinn, beindi honum að brjósti sér og hleypti af. Þegar lögregla og sjúkralið komu á vettvang var Halldóra látin og Einar særður við hlið hennar. Einar lifði af og í yfirheyrslu um kvöldið sagðist hann hafa tekið riffilinn og hlaðið hann með þeim ásetningi að svipta Halldóru lífi. Hann hafi fengið Halldóru í öku- ferðina til að ræða við hana en gert sér ljóst að það væri ekki til neins og því ætlað að drepa þau bæði. Í Sakadómi Reykjavíkur taldist Einar sakhæfur og var dæmdur í 16 ára fangelsi. Hæstiréttur mildaði dóminn um tvö ár og því hlaut hann á endanum 14 ára fangelsisdóm. Saga Halldóru verður umfjöll- unarefni fyrsta þáttar af Íslensk- um ástríðuglæpum á Stöð 2 annað kvöld klukkan 21.25. Hún var 22 ára þegar hún lést. Dauði hennar hafði mikil áhrif á fjölskyldu henn- ar og vini. Ásdís, systir Halldóru, verður viðmælandi í þættinum og hún segir mikilvægt að saga henn- ar sé sögð. Hún segir að þrátt fyrir að 37 ár séu síðan harmleikurinn átti sér stað eigi sagan vel við í dag því kúgun, ofríki og hótanir eigi að taka alvarlega. Harmleikur í Rauðhólum Sumarið 1972 tókust ástir með tveimur 17 ára íslenskum unglingum. Trúlofunin var opinberuð tæpu ári síðar. Eftir því sem á leið fór fjölskylda konunnar að verða vör við ofríki mannsins en endalok sambandsins gat enginn séð fyrir. Þessi saga verður sögð á Stöð 2 annað kvöld. Á VETTVANGI Lögreglumenn rannsaka Peugeot-bifreiðina sem Halldóra Ástvaldsdóttir var myrt í á afleggjaranum að Rauðhólum. Myndin birtist í Dagblaðinu. 1972 Halldóra og Einar kynnast. 1973 Trúlofunin opinberuð. 1976 Flytja saman til Svíþjóðar. 1977 | JÚLÍ Einar og Halldóra koma saman til Íslands í heimsókn. 1977 | 31. JÚLÍ Einar fer einn til Svíþjóðar. 1977 | 13. ÁGÚST Einar kemur til Seyðisfjarðar með Smyrli frá Bergen. 1977 | 15. ÁGÚST Einar banar Halldóru með rússneskum riffli í Rauðhólum. HALLDÓRA OG EINAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.