Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 26.04.2014, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 26. apríl 2014 | FRÉTTIR | 11 MENNTUN Þráðlaust net verður komið í alla leikskólana nítján í Kópavogi í sumarlok. Þetta segir Sigríður B. Tómasdóttir, almanna- tengill Kópavogsbæjar. Fjóla Þor- valdsdóttir, varaformaður Félags leikskólakennara og sérkennslu- stjóri í leikskóla í Kópavogi, hefur lýst því yfir að ekki sé hægt að nota efni Námsgagnastofnunar með íslensku efni fyrir spjaldtölvur vegna skorts á þráðlausu neti í leik- skólunum þar. Sigríður segir að fyrsta áfanga í uppsetningu þráðlauss nets verði lokið í sumar. „Það verð- ur komið þráð- laust net í alla leikskólana í lok sumars en ein- hver svæði inni á leikskólunum eða deildir verða án þráðlauss nets. Á næsta ári verður svo lokið við að setja upp þráðlaust net alls staðar í leikskólana.“ Allar deildir í leikskólunum nítján fá einnig í sumar ný tæki að eigin vali, spjaldtölvu, fartölvu eða borð- tölvu. „Leikskólunum hefur þegar verið sent bréf um að þessi tæki standi til boða. Þetta eru um 100 tæki sem Kópavogsbær kaupir handa leikskólunum. Þess má geta að mjög margir hafa ákveðið að velja spjaldtölvur inn á deildirnar hjá sér og bærinn hefur staðið fyrir námskeiðum í notkun spjaldtölvu í kennslu í leikskólum og mun halda fleiri námskeið í haust.“ - ibs Fyrsta áfanga þráðlauss nets í leikskólum Kópavogs lýkur í sumar: Þráðlaust net og 100 ný tæki SIGRÍÐUR B. TÓMASDÓTTIR DANMÖRK Hjálparstarf kirkj- unnar í Danmörku tekur við fjárframlögum í rafræna gjald- miðlinum bitcoin. Þetta þykir mörgum sérfræð- ingum skjóta skökku við þar sem gjaldmið- illinn hefur verið settur í samhengi við viðskipti með fíkniefni og vopn, að því er segir á vef Kristilega dagblaðs- ins. Haft er eftir hagfræðiprófess- ornum Christen Sørensen að vitað sé að gjaldmiðillinn bitcoin hafi verið notaður til að þvætta peninga víða um heim og að eng- inn viti hver standi á bak við hann. - ibs Danska kirkjan tæknivæðist: Vill bitcoin í hjálparstarfið VIÐSKIPTI Fyrirtækið Apple hefur lagt fram einkaleyfi á sjálfvirku kerfi, sem lokar fyrir ýmsa notk- unarmöguleika snjallsíma þegar eigendur þeirra eru að keyra. Kerfinu er ætlað að skynja hvenær eigandi þess er að keyra, með skynjurum eða með því að tengjast bílnum. Þegar öku- maður skrifar skilaboð í akstri minnkar viðbragðstími hans um 35 prósent og er hann því mun líklegri til að valda árekstri. Þá hefur þriðjungur ökumanna í Bretlandi viðurkennt að hafa skrifað eða lesið SMS við akstur. - skó Apple vill fækka árekstrum: Lokað á SMS við keyrslu IPHONE-SNJALLSÍMINN Apple vill meina ökumönnum að skrifa og senda smáskilaboð meðan á keyrslu stendur. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP VIÐSKIPTI MS undir 5% í Nokia Eignarhlutur Microsoft í finnska tæknifyrirtækinu Nokia hefur farið niður fyrir fimm prósent, að því er fram kemur í tilkynningu til Nasdaq OMX-kauphallarinnar í Finnlandi. Breytingin er í tengslum við innlausn á breytanlegum skuldabréfum við lok sölu á öllum tækja- og þjónustuhluta Nokia til Microsoft. Skuldabréfin hljóðuðu upp á 1,5 milljarða evra og voru gefin út í þrennu lagi. LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður- nesjum var um miðja vikuna kölluð til aðstoðar í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar, vegna konu á þrítugsaldri sem hafði verið til vandræða um borð í flugvél WOW air. Konan, sem var drukkin, hafði meðal annars reykt inni á salerni vélarinnar með þeim afleiðingum að viðvörunarkerfi fór í gang. Engan árangur bar að ræða við hana svo hún yrði til friðs í vélinni. Við komu til Keflavíkur tók lögregla við henni. - skó VIÐ LEIFSSTÖÐ Drukkinn ferðamaður sá eftir slæmri hegðan í flugvél þegar lögregla ræddi við hann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Drukkin kona tók ekki tiltali í ferð með Wow: Reykti á salerninu LÆKKUN HÚSNÆÐISLÁNA OG VIÐBÓTARLÍFEYRISSPARNAÐUR Fræðslufundur í Arion banka, Borgartúni 19, mánudaginn 28. apríl kl. 12. Á fundinum verður farið yfir fyrirhugaðar aðgerðir ríkis- stjórnarinnar til höfuðstólslækkunar húsnæðislána. Auk þess verða kostir viðbótarlífeyrissparnaðar kynntir. Aðgerðirnar skiptast í þrennt: · Niðurfærslu á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána eða með sérstökum persónuafslætti. · Skattfrjálsa greiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. · Skattfrjálsa greiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar upp í útborgun á íbúð. Fyrirlesari er Snædís Ögn Flosadóttir, sérfræðingur á eignastýringarsviði Arion banka. Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund. Kaffiveitingar í boði. Allir velkomnir – skráning á arionbanki.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.