Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.06.2014, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 13.06.2014, Qupperneq 20
13. júní 2014 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 20 Erfðabreytt matvæli eru merkt vegna þess að aldrei hefur verið sýnt fram á öryggi þeirra til neyslu. Nytjaplöntum var erfða- breytt með sn. genasmíð, sem inniheldur gen úr framandi lífveru (t.d. fiski, skordýri, dýrum og jafn- vel mönnum) sem flækt er saman við bakteríu, vírus og gen sem tjáir ónæmi fyrir sýklalyfjum. Slík planta mundi aldrei verða til í náttúrunni og afleiðingar þess að neyta fæðu sem er svo gjörólík þeirri fæðu sem þróunin hefur ætlað okkur eru óþekktar. Fyrirtækin sem þróa erfða- breyttar plöntur þurfa ekki að gera öryggisprófanir á mönnum, heldur er þeim aðeins gert að sýna fram á hvort erfðabreytt matvæli séu umtalsvert jafngild venjulegum matvælum. „Umtalsvert jafngildi“ hefur enga lagalega eða vísindalega skilgreiningu. Það er einfaldaður samanburður á nokkrum grunnþátt- um (próteinum, fitu og kolvetnum) og er ekki til þess bært að greina marktækan mun á erfðabreytt- um og hefðbundnum matvælum. Til dæmis gæti hann ekki greint mun á heilbrigðri kú og kú með riðuveiki. En þeir sem neyta kjötafurða af riðusýktum nautgripum kunna að sýkjast af hinum banvæna sjúkdómi CJD. Nú er hálfur annar ára- tugur síðan sýnt var fram á að umtalsvert jafngildi er vísindalega innantómt hugtak. Það kom nánar í ljós m.a. í norskri rann- sókn á erfðabreyttu soja (2013), egypskri rannsókn á Bt- maís (2013) og í brasilískri rann- sókn (2014) sem sýndi að 32 gerðir próteina voru tjáðar með ólíkum hætti í erfðabreyttum maís saman- borið við venjulegan maís. Rangar staðhæfingar En það eru ekki aðeins gervivísindi jafngildisprófana sem vekja spurn- ingar um öryggi erfðabreyttra mat- væla heldur einnig rangar staðhæf- ingar líftæknifyrirtækja um slíkt öryggi, til dæmis að erfðabreytt matvæli gætu ekki valdið mönn- um og dýrum heilsutjóni þar sem meltingarkerfi spendýra sundri DNA í matvælum. Rannsóknir hafa afsannað þetta og þeirra áhrifa- ríkust er kanadísk rannsókn frá árinu 2011 sem sýndi að Bt-eitur úr erfðabreyttum matvælum komst í gegnum meltingarveginn og fannst í blóði þungaðra kvenna og í blóði ófæddra barna þeirra. Kanadíska rannsóknin hafði gríðarleg áhrif á neytendur og kall- aði þegar á andsvör hagsmunaafla í erfðatækni sem reyndu að grafa undan tiltrú á henni. Þegar höf- undar rannsóknarinnar vörðu þær aðferðir og staðla sem hún byggðist á brást líftækniiðnaðurinn við með því að fullyrða að engu breytti þótt Bt-eitur kæmist í gegnum melting- arveginn því það væri spendýrum skaðlaust, nokkuð sem vísindin hafa enn og aftur afsannað. Frönsk rannsókn (2012) sýndi að ein teg- und af Bt-eitri dræpi frumur úr mönnum og þriggja ára rannsókn á sauðfé sýndi að Bt-eitur olli rösk- un á starfsemi meltingarkerfisins. A.m.k. fjórar rannsóknir á til- raunadýrum sýna eitrun í smá- þörmum, lifur, nýrum, milta og briskirtli af völdum Bt-eiturs. Þá sýna aðrar rannsóknir sam- drátt í vexti og truflun á ónæm- iskerfi. Egypsk rannsókn (2013) sýndi að rottur sem fengu Bt-maís sýndu sterk merki um eitrun í lifur, nýrum og smáþörmum eftir þrjá mánuði. Augljóst er að full- yrðingar talsmanna erfðabreyt- inga um öryggi erfðabreyttra mat- væla hafa reynst rangar; DNA úr erfðabreyttum matvælum kemst í gegnum meltingarveg spendýra og getur valdið þeim verulegu heilsu- tjóni. Merkingar mikilvægar Merkingar erfðabreyttra matvæla eru mikilvægar vegna þess að þær eru aðvörun. Því miður krefst íslenska merkingareglugerðin þess eins að orðið „erfðabreytt“ sé prentað næst þeim innihaldsefnum sem eru erfðabreytt, og að jafnaði er þetta að finna í örsmáu og næst- um ólæsilegu letri. Reglugerð ESB gerir kröfu um að setningin „þessi afurð inniheldur erfðabreyttar líf- verur“ sé prentuð í innihaldslýs- inguna, sem auðveldara er fyrir neytendur að lesa. Íslenska reglugerðin til greinir heldur ekki hvers konar erfða- breytt efni mega vera í matvælum. Þar af leiðandi eru neytendur hér á landi berskjaldaðir fyrir mengun af völdum alls konar erfðabreyttra afurða – þar með talinna tilrauna- plantna og hættulegra plantna sem ræktaðar eru til lyfjagerðar og iðnaðar. Evrópugerðin kveður hins vegar á um að hvers konar mengun af völdum erfðabreyttra afurða megi einvörðungu vera frá plöntum sem ESB hefur þegar heimilað til ræktunar eða innflutn- ings. Ljóst er að tilraun Íslands til að rita sína eigin útgáfu af merk- ingarreglum fyrir erfðabreyttar afurðir hefur ekki skilað árangri. Íslandi ber sem EES-ríki að taka upp gerðir ESB á þessu sviði. Nú er tími til kominn að innleiða gerð ESB um merkingar erfðabreyttra matvæla – frá orði til orðs. Það er okkar eina leið til þess að vernda viðskipti milli okkar og Evrópu og tryggja jafnframt íslenskum neyt- endum sömu vernd og aðrir Evr- ópubúar njóta. Hvers vegna eru erfðabreytt matvæli merkt? ERFÐABREYTT MATVÆLI Sandra B. Jónsdóttir sjálfstæður ráðgjafi ➜ Nú er tími til kominn að innleiða gerð ESB um merkingar erfðabreyttra matvæla – frá orði til orðs.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.