Fréttablaðið - 13.06.2014, Qupperneq 26
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447
■ LÍFLEGT
Miðbær Reykjavíkur verður litríkur í sumar. Unnið er af fullum krafti
í málun bekkja, nestisborða og hjólahliða í litum Pollapönks – burtu
með fordóma. Frá þjóðhátíðardeginum verður Laugavegur lokaður
bílaumferð neðan
við Vatnsstíg og
Skólavörðustígur
neðan Bergstaða-
strætis. Pósthús-
stræti frá Kirkju-
stræti hefur verið
breytt í sumargötu.
Reykvíkingar gátu
valið á milli þriggja
litasamsetninga
fyrir sumarbekkina.
Í boði var PollaPönk
– burtu með fordóma, sem flestir vildu, MelónuÆði – safaríkir litir og
StrandarSnilld – sandur milli tánna.
Auðvelt ætti að vera að njóta mannlífsins í litríkum miðbæ í sumar án
þess að hafa áhyggjur af bílaumferð.
MIÐBÆR Í LITUM POLLAPÖNKS
MATSVEINN – MATARTÆKNIR
HEILSA OG MATUR
Matsveina- og matartæknanám er fyrir þá sem starfa eða vilja
starfa á fiski- og flutningaskipum, mötuneytum vinnustaða,
heilbrigðis- og menntastofnana.
INNRITUN STENDUR YFIR.
WWW.MK.IS
Upplýsingar hjá
Baldri Sæmundssyni
í síma 594 4000 eða á
baldur.saemundsson@mk.is
Við erum mjög spennt fyrir helginni og búumst við fjölda manns enda
er veðurspáin góð,“ segir Einar
Björnsson, einn skipuleggjenda
Kótelettunnar BBQ Festival en
hátíðin fer nú fram í fimmta sinn
á Selfossi um helgina.
Dagskráin er fjölbreytt,
tónleikar, grillveislur, söngvara-
keppni og markaðir svo fátt eitt
sé nefnt en upplýsingar um dag-
skrá er að finna á síðunni www.
kotelettan.is.
Þá verður keppt í bestu grill-
töktunum.
„Kótelettan er kjötkarnival
og í ár efnum við í fyrsta sinn
til keppni um besta götugrillar-
ann, Grillmeistari ársins 2014. Í
dómnefnd verða meðal annarra
bakarameistarinn Jói Fel og
Sigurður Ingi Jóhannsson land-
búnaðarráðherra og til mikils er
að vinna,“ segir Einar.
Keppnin um Grillmeistara
ársins 2014 fer fram klukkan 14 í
miðbæjargarðinum á morgun og
annað kvöld verður einnig flott-
asta grillveislan verðlaunuð.
„Við leggjum áherslu á að
kynna íslenska kjötið og stefnum
á að markaðssetja Kótelettuna
erlendis, sem Kotelettan BBQ
Festival, og fá hingað erlenda
gesti til að smakka, sem vonandi
kaupa svo af okkur íslenskt kjöt.“
Margir af þekktustu tónlistar-
mönnum landsins koma fram á
hátíðinni, meðal annarra Helgi
Björns, Friðrik Dór, Björgvin Hall-
dórsson, Skítamórall, Á móti sól
og fleiri.
Þá er vegleg dagskrá fyrir
börnin en hljómsveitin Polla-
pönk kemur fram og Brúðubíll-
inn verður á ferðinni, Íþrótta-
álfurinn einnig auk þess sem
slegið verður upp tívolíi og úrval
leiktækja verður á svæðinu.
Allar upplýsingar að finna á
www.kotelettan.is og á Face-
book undir heitinu Kótelettan
– bæjar-, fjölskyldu- og tónlist-
arhátíð.
KARNIVALSTEMNING
Á KÓTELETTUNNI
HELGIN Fjölskyldu- og bæjarhátíðin Kótelettan BBQ Festival fer nú fram í
fimmta sinn um helgina. Leitað verður að Grillmeistara ársins 2014.
STEMNING Skipuleggjendur Kótelettunnar á Selfossi lofa góðu stuði um helgina.
MYND/KÓTELETTAN
STUÐ
Landbúnaðarráðherra
og Eyþór Arnalds fá sér
bita. Ráðherrann mun
dæma í Grillmeistara
ársins á morgun.
Eva Ólöf Hjaltadóttir segir að sér hafi ekki liðið vel í langan
tíma áður en hún kynntist Femarelle. „Ég er á lyfjum vegna
sykursýki og sjúkdóms í skjaldkirtli. Ég þyngdist vegna lyfjan-
na, hef auk þess þjáðst af gigt með tilheyrandi verkjum. Mér
fannst óþægilegt að vera innan um
margt fólk og var farin að finna fyrir
þunglyndi. Einnig átti ég erfitt með
að vera í hávaða og var að ein-
angrast gagnvart félagslífi. Núna
hef ég tekið Femarelle inn í fjóra
mánuði og hef endurheimt mitt
fyrra líf. Mér líður svo vel að nú
get ég farið daglega út að ganga
með hundinn minn, fer í sund á
hverjum degi, sæki félagsvist og
bingó.“
Algjört undraefni