Fréttablaðið - 13.06.2014, Blaðsíða 58
13. júní 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 42
HANDBOLTI Handboltafélagið
Akureyri fékk gríðarlegan liðs-
styrk á dögunum þegar Sverre
Andreas Jakobsson samdi við
félagið. Fljótlega fylgdu Ingimund-
ur Ingimundarson og Hreiðar
Levý Guðmundsson inn um dyrn-
ar fyrir norðan.
Sverre hefur leikið með Gross-
wallstadt undanfarin ár en hann
er uppalinn á Akureyri. Sverre
lék með KA upp alla yngri flokk-
ana og er hann því að snúa aftur á
heimaslóðir.
„Það er margt í gangi þessa stund-
ina en ég einbeiti mér bara að
leiknum gegn Bosníu á sunnudag-
inn,“ sagði Sverre þegar Frétta-
blaðið heyrði í honum. Sverrir er
í leikmannahóp íslenska liðsins
fyrir seinni leikinn gegn Bosníu í
undankeppni HM í Katar.
Spenntur að spila með Didda
Akureyri missti nokkra leik-
menn en félagið fékk til sín öfluga
leikmenn. Nú síðast kom reynslu-
boltinn Elías Már Halldórsson frá
Haukum.
„Ég hlakka til að koma norð-
ur og takast á við nýtt verkefni.
Þegar ég samþykkti tilboð þeirra
voru engar kröfur um leikmenn
eða neitt slíkt. Það hafa komið
stórir bitar í liðið sem gerir þetta
að mjög skemmtilegu verkefni.
Peking-vörnin er komin aftur og
ég er gríðarlega spenntur fyrir að
spila með Didda aftur í vörninni,“
sagði Sverre.
Ekki er von á fleiri leikmönn-
um inn um dyrnar. Þess í stað á
að leyfa ungum leikmönnum að
blómstra við hlið reynsluboltanna.
„Við misstum marga leikmenn
og við þurftum að fylla upp í þau
göt. Vonandi getum við reynslu-
boltarnir miðlað einhverri reynslu
til ungu strákanna því þeir þurfa
að taka við einn daginn. Við erum
ekki komnir til að henda neinum
í burtu heldur að hjálpa þeim að
taka næsta skref og gera þá að
betri leikmönnum.“
Verðum að æfa aukalega
Auk nýrra leikmanna er von á
leikmönnum úr meiðslum fyrir
norðan.
„Við eigum meidda menn inni
og við þurfum einfaldlega að gefa
þeim þann tíma sem þeir þurfa.
Þetta eru mikilvægir leikmenn
sem eru að glíma við alvarleg
meiðsli og við getum ekki pressað
á þá. Við verðum að leyfa þeim að
ná sér að fullu áður en þeir fara af
stað og horfa til lengri tíma.“
Einhver verður harkan þegar
sótt er að marki Akureyrar næsta
vetur en Sverre og Ingimundur
eru engin lömb að leika sér við.
„Við erum ekkert óvinnandi vígi.
Við verðum að gæta okkar og láta
ekki rigna upp í nefið á okkur og
halda að við séum bestir. Þetta er
annar handbolti en ég þekki. Það
eru ungir og kvikir leikmenn í
deildinni, sem gerir okkur gömlu
jálkunum erfitt fyrir. Það getur
verið erfiðara heldur en að glíma
við eldri þyngri leikmenn. Við
verðum eflaust að æfa aukalega
til að halda uppi hraðanum, annað
væru mistök. Ef maður ætlar að
reyna að labba í gegn um þetta
grípur maður á endanum í tómt,“
sagði Sverre.
Lætur sérfræðingana um vítin
Þrátt fyrir að vera hluti af
þjálfaraliðinu gerir Sverre ekki
ráð fyrir að hlutverk sitt inn á
vellinum breytist. Hann gerði
ekki ráð fyrir að taka vítaköst-
in þegar spurningin var borin
undir hann. „Ég er jarðbund-
inn hvað varðar það. Sá draumur
myndi eflaust snúast upp í ein-
hverja martröð. Það snýst allt
eftir aðstæðum en í dag er það
ekki upp á borðinu. Ég ætla að
einbeita mér að því hlutverki
sem ég hef gert hingað til. Ætli
ég láti ekki sérfræðingana áfram
um vítin,“ sagði Sverre glottandi.
kristinnpall@365.is
Læt vítin vera í bili
Sverre Andreas Jakobsson samdi við Akureyri á dögunum um að leika með
liðinu næsta vetur ásamt því að þjálfa liðið með Heimi Erni Árnasyni. Sverre
gerir ekki ráð fyrir að blanda sér í sóknarleik liðsins á næsta tímabili.
HARÐJAXL Sverre gefur aldrei neitt eftir á vellinum og þykir afar harður í horn að taka í varnarleiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Það verður ekki einn
íslenskur bakvörður í liði Long
Island-háskólans í efstu deild
bandaríska háskólakörfuboltans á
næsta ári heldur tveir bakverðir.
Martin Hermannsson, besti leik-
maður Dominos-deildar karla á
síðasta tímabili, er búinn að gera
munnlegt samkomulag við skólann
og mun spila þar ásamt Njarðvík-
ingnum Elvari Má Friðrikssyni
næsta vetur.
„Þetta kom fljótt upp því þeir
áttu aukaskólastyrk. Við Elvar
fáum íbúð saman, sem er ekki
algengt fyrir leikmenn á fyrsta
ári. Þetta er alveg mjög spenn-
andi,“ segir Martin sem fór gjör-
samlega á kostum með KR á síð-
ustu leiktíð rétt eins og Elvar hjá
Njarðvík.
Long Island-skólinn spilar í
sterkri deild og helmingur heima-
leikja þeirra fer fram í Brooklyn
Center, heimavelli NBA-liðsins
Brooklyn nets. Liðið hefur komist
í NCAA-mótið á þremur af síðustu
fjórum árum þannig að íslensku
strákarnir eru að fara í alvöruna.
„Körfuboltinn þarna hentar
okkur vel. Það er evrópskur stíll
yfir þessu; mikið um „pick and
roll“ og svona. Þeir ætla okkur líka
stórt hlutverk á næsta ári,“ segir
Martin sem er hugsaður sem skot-
bakvörður en Elvar Már á að spila
sem leikstjórnandi.
„Mér líður betur sem skotbak-
vörður en það skemmir ekkert
fyrir að geta spilað ásinn líka. Það
er mjög sjaldgæft að vera með
tvo svona menn í þessum stöðum.
Þetta gefur mér líka færi á fleiri
mínútum,“ segir Martin.
KR-ingurinn ungi var ákveðinn
að fara út eftir leiktíðina en hvort
skóli yrði fyrir valinu var ekki
ákveðið.
„Ég er búinn að tala við marga
góða menn og þeir sögðu mér allir
að prófa skólann. Maður tapar ekk-
ert á því að fá 15 milljóna króna
nám borgað fyrir sig og geta spil-
að körfubolta með því. Þetta opnar
margar dyr, bæði í boltanum og
lífinu eftir körfuboltann,“ segir
Martin Hermannsson.
Martin fer út 1. september og
býst við að vera klár í landsliðs-
verkefnin í ágúst. - tom
Íslenskir bakverðir búa saman í Brooklyn
Martin Hermannsson fylgir Elvari Má Friðrikssyni til Long Island-háskólans næsta vetur.
BESTUR Martin var kjörinn besti leik-
maður síðasta árs. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ísland mætir Bosníu í umspili um sæti á HM í Katar á sunnudaginn.
Undirbúningurinn gengur vel en Ísland þarf að vinna upp eins marks
forskot Bosníumanna. „Við erum að búa okkur vel undir það, það er hægt
að læra margt af fyrri leiknum. Við erum að fá á okkur alltof mörg mörk
og kerfin þeirra gengu of vel upp. Skytturnar þeirra fengu of auðveld skot
sem skilaði sér í mörkum. Ég er bjartsýnn á leikinn sem fram undan er,
enda erum við með betra lið að mínu mati.“
Sverre er þess fullviss að spili íslenska liðið á eigin getu vinnist leikurinn
á sunnudaginn.
„Fyrst skildi ég ekki hvernig við töpuðum þessu en svo þegar litið er til
baka sér maður margar glufur í varnarleiknum. Það verður að laga þetta
og við erum að vinna í því þessa dagana og undirbúa okkur. Ég er nokkuð
bjartsýnn, við ætlum okkur sigur,“ sagði Sverre sigurviss.
Erum með betra lið en Bosnía