Fréttablaðið - 14.06.2014, Qupperneq 6
14. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
„Ef við erum ekki búin að finna
neitt eftir tólf tíma fer að læðast
um mann vond tilfinning,“ segir
Þorsteinn Þorkelsson, björgunar-
sveitar maður til þrjátíu ára. „Níu-
tíu prósentum leita lýkur á innan við
sex til átta tímum en ef aðgerðar-
loturnar eru kannski orðnar þrjár
eða fjórar þá fer hugurinn að plaga
mann. Í sjálfu sér ber síðan alltaf
að taka ákvörðun, fyrr eða síðar, um
að hætta leit. Það er samt bara gert
ef við teljum okkur hafa fullklárað
allar forsendur sem liggja fyrir við
leitina.“
Tækni björgunarsveitanna hefur
fleytt fram á síðastliðnum árum og
nú heyrir það sögunni til að leitar-
svæði sé stækkað umfram það sem
eðlilegt getur talist. „Við reynum að
vera mjög fræðileg í þessu og erum
að nota rannsóknir, meðal annars
að utan, um hversu langt ákveðn-
ir hópar fólks geta farið. Það er
það sem stjórnar því hversu stórt
leitar svæðið er. Ef við værum allt-
af að stækka leitarsvæðin eins og
var gert í gamla daga þá gætum
við endað með því að leita um allt
landið,“ segir Þorsteinn. „Þegar við
hefjum leitaraðgerð búum við til
svip myndir. Ókei, hér er týnd mann-
eskja, hvað gæti hún hafa gert? Gæti
hún hafa farið í einhverja ákveðna
átt? Eru einhverjar vísbendingar?“
Eftir þrjátíu ár í starfi hefur Þor-
steinn margoft komið að leit. Hann
segir að í heildina beri kannski
tíunda hver leit ekki árangur. Sjó-
slys og tilvik þar sem fólk gengur
sjálft í sjóinn skekki þó tölurnar.
„Leit að fólki á landi, sem hefur ekki
farið í sjóinn heldur bara gufar upp,
er sjaldgæfari. Ég myndi segja að á
þriggja ára fresti kæmi upp dæmi
þar sem umfangsmikil leit á landi
skilar ekki árangri.“
Erfið leit getur tekið á andlegu
hliðina. Þorsteinn nefnir sérstak-
lega leit að rjúpnaskyttu á Skálda-
búðaheiði árið 2008 sem og leit að
tveimur drengjum í Keflavík árið
1994. „Það eru þessi tvö skipti sem
eru mér efst í huga og hafa haft
mest áhrif á mig.“
➜ Leit er
leyndardómur,
þú ert að leita
að einhverjum
sem er týndur
og vilt finna
hann svo að
þetta er vond tilfinning.
Þorsteinn Þorkelsson,
björgunarsveitarmaður.
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
Costa
del Sol
Frá kr. 62.200
Frá kr. 62.200 án fæðis
Aguamarina
Roc Costa Park
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
39.900
Flugsæti frá kr.
Netverð á mann frá kr. 62.200 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð.
Netverð á mann frá kr. 94.600 m.v. 2 fullorðna í íbúð.
26. júní í 11 nætur.
Netverð á mann frá kr. 83.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í
herbergi. Netverð á mann frá kr. 115.900 m.v. 2 fullorðna í
herbergi. 26. júní í 11 nætur.
Frá kr. 83.900 m/allt innifalið
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
63
24
5
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Eftir 12 tíma leit fer
útlitið að verða svart
Árangurslaus leit að týndu fólki í langan tíma getur reynst björgunarsveitarfólki
andlega erfið. Reyndur björgunarsveitarmaður segir leit oftast ljúka á átta tímum.
UMFANGSMIKIL LEIT Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi í leit að íslenskri konu sem týndist um síðustu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LEITA AFTUR Á SVÆÐINU
Matthias Hinz og Thomas Grundt, Þýskalandi
Hurfu á Svínafellsjökli við Skaftafell árið 2007
Tveir þýskir ferðamenn, Matthias Hinz og Thomas Grundt. Mennirnir tveir voru
taldir af þegar leit hafði staðið yfir í rúmlega viku við mjög erfiðar aðstæður.
„Þeir fóru á svæði sem enginn maður fer um. Það er búið að finna ákveðnar
upplýsingar um þá en það er svo hættulegt að komast að svæðinu að það
er ekki á menn leggjandi að fara og finna þá,“ segir Þorsteinn Þorkelsson,
þrautreyndur björgunarsveitarmaður. Tjöld mannanna fundust á jöklinum og í
þeim miklar matarbirgðir auk þess sem handskrifaður miði gaf til kynna hvenær
þeir hefðu horfið.
Nathan Foley-Mendelssohn Bandaríkjunum
Hvarf við Landmannalaugar 2013
Fannst aldrei þrátt fyrir að tæplega tvö hundruð björgunarsveitarmenn leituðu hans við Landmannalaugar í fyrra.
Nathan var búinn til þriggja daga göngu en veður á svæðinu hafði verið slæmt. Hann hafði ætlað að ganga Lauga-
veginn úr Landmannalaugum að Skógum undir Eyjafjöllum sem er vinsæl gönguleið. Aðstandendur Nathans leigðu
meðal annars þyrlu til að hjálpa við leitina sem þó bar ekki árangur. Nathan hafði ekki skrifað í gestabækur í göngu-
skálum á svæðinu og tjald hans fannst aldrei. Það er engu líkara en hann hafi horfið af yfirborði jarðar.
Matthías Þórarinsson Íslandi
Enginn veit hvar og hvenær hann hvarf
Eitt dularfyllsta mannshvarf síðustu ára er hvarf hins 21 árs gamla Matthíasar
Þórarinssonar sem lýst var eftir í janúar árið 2011. Þá hafði ekki spurst til hans
um nokkra hríð. Rússajeppi Matthíasar fannst brunninn við Esjurætur en allar
eigur höfðu verið fjarlægðar úr honum áður. Þá sást til Matthíasar á upptökum
nokkurra eftirlitsmyndavéla á Suðurlandi en síðan þá er eins og jörðin hafi
gleypt hann. Móðir Matthíasar sagði frá því í fjölmiðlum að hana dreymdi að
sonur hennar kæmi heim. Hann hefði líklega farið upp í fjöll og líkt eftir lífi
frumbyggja í Ástralíu. Hún lýsti honum sem sveimhuga og sagði meðal annars:
„Ég hugsa að hann sé bara frá annarri plánetu.“
HURFU SPORLAUST
Hátt í tvö hundruð björgunarsveitarmenn leita nú íslenskrar konu sem saknað
hefur verið frá því um síðustu helgi. Konan fór í göngu frá sumarbústað í
Fljótshlíð með spænskri vinkonu sinni sem fannst látin í Bleiksárgljúfri á
þriðjudag. Björgunarsveitir höfðu gefið það út að fullleitað væri í gljúfrinu en
nú er verið að fínkemba svæðið að nýju. Atli Árdal, varðstjóri hjá lögreglunni
á Hvolsvelli, segir engar nýjar vísbendingar hafa fundist. „Það er bara verið að
leita aftur á svæðinu. Við tökum svæðin bara enn betur.“ Búið er að athuga
hvort konan hafi farið úr landi en ekkert bendir til þess. Föt konunnar fundust
við Bleiksárgljúfur svo gengið er út frá því að hún sé fáklædd. Fótspor eftir
berfætta manneskju fundust um þremur kílómetrum austan við gljúfrið en
ekki hefur verið úr því skorið hvort sporin eru eftir konuna eða ekki.
Save the Children á Íslandi