Fréttablaðið - 14.06.2014, Síða 8
14. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
210 hestafla dísilvél, 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýri og loftpúðafjöðrun með Terrain Response drifbúnaði á öllum
hjólum gera Land Rover Discovery 4 að einum öflugasta og þægilegasta jeppa sem völ er á. Meðal nýjunga er nýr framendi með
nýjum aðalljósum, breytt afturljós, start/stopp ræsibúnaður og Meridian 380W hljómtæki.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
19
7
1
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
ÞAÐ ER KOMINN NÝR LAND ROVER DISCOVERY 4 OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
Discovery 4 S – verð frá: 11.890.000 kr.
Eldsneytisnotkun 8,8 l/100 km* í blönduðum akstri.
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
KEMUR ÞÚ AF FJÖLLUM?
landrover.is
LÖGREGLUMÁL Rannsókn Ríkis-
saksóknara á aðgerðum lögreglu í
skotárásinni í Hraunbæ í desember
síðastliðnum segir ekkert benda
til refsiverðrar háttsemi lögreglu-
mannanna. Sævar Rafn Jónasson,
íbúi í fjölbýlishúsinu við Hraunbæ
20, lét lífið vegna skotsára sem
hann hlaut í átökunum.
Lögregla var kölluð á vettvang
aðfaranótt 2. desember í fyrra
vegna tilkynningar nágranna
um hávaðasama tónlist úr íbúð
Sævars, auk þess sem hár hvellur
hafði heyrst þaðan. Í greinargerð
Ríkissaksóknara kemur fram að
nágranninn gaf lögreglu upp nafn
annars manns og var því nafni
flett upp í upplýsingakerfum lög-
reglu. Sá maður var ekki skráð-
ur fyrir skotvopni og ekkert brot
skráð á hann í málaskrá lögreglu.
Hefði nafni Sævars hins vegar
verið flett upp, hefðu upplýsingar
legið fyrir um að hann hlaut fang-
elsisdóm í Noregi árið 1986 fyrir
að reyna að skjóta lögreglumann
með skammbyssu.
Í greinargerðinni segir einnig
að varðandi upphafsaðgerðir lög-
reglu hafi Ríkissaksóknari fyrst
og fremst skoðað atriði sem sneru
að aðkomu lásasmiðs sem kallaður
var til.
Í skýrslu lásasmiðsins segir að
lögregla hafi ekki nefnt við hann að
Sævar væri hugsanlega vopn aður
byssu og að lásasmiðurinn hafi
ekki verið klæddur í skothelt vesti.
Þó er tekið fram í greinargerðinni
að lögreglan taldi að Sævar væri
látinn, en reynt hafði verið að ná
sambandi við hann í um korter áður
en lásasmiðurinn kom á staðinn.
Sævar hóf strax að skjóta á lög-
reglu þegar opnað var inn í íbúð-
ina. Því er lýst í skýrslum lögreglu-
manna að þeir hafi ítrekað kallað
til Sævars að leggja niður vopnið
og ræða við þá. Eftir að gas vopnum
var beitt án árangurs fóru sér-
sveitar menn inn í íbúðina.
Lögregla hleypti af fjórum
skotum inni í íbúðinni eftir að
Sævar hóf skothríð úr svefnher-
bergi sínu. Öll fjögur skotin komu
úr sömu byssunni og hæfðu tvö
þeirra Sævar. Þau eru talin eiga
jafnan hlut í því að draga hann til
dauða.
Samkvæmt greinargerðinni
telur Ríkissaksóknari að lögregla
hefði ekki getað beitt vægari vörn-
um við skotum Sævars og að verkið
sé því refsilaust. bjarkia@frettabladid.is
Segir aðgerð lögreglu í
Hraunbæ ekki refsiverða
Ríkissaksóknari hefur lokið rannsókn sinni á atburðunum í Hraunbæ í fyrra. Ekkert bendir til refsiverðrar háttsemi.
Í skýrslu lásasmiðs segir að lögreglan hafi ekki nefnt við hann að Sævar væri hugsanlega vopnaður byssu.
HRAUNBÆR Lögreglan að störfum í Hraunbæ í desember í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Athygli vekur að á engum tímapunkti áður en Sævar lést voru kallaðir til
sérþjálfaðir samningamenn sem teljast til sérsveitar lögreglu. Yfirmenn
sérsveitar sögðu við rannsókn á málinu að tilgangslaust hefði verið að
virkja samningamennina þar sem ekki reyndist unnt að ná sambandi við
Sævar, hvorki með símhringingum né með því að kalla til hans.
Einnig var farið yfir það í skýrslutökum af stjórnendum sérsveitar í
stjórnstöð hvort rétt hefði verið að kalla til aðra sérfræðinga í viðtals-
tækni, geðlækna eða sálfræðinga. Í greinargerðinni segir að Ríkissak-
sóknari telji „hverfandi líkur“ á því að hægt hefði verið að kalla til slíka
sérfræðinga.
Lögregla hafi fyrir það fyrsta ekki haft upplýsingar um það að Sævar
ætti við andleg veikindi að stríða. Þá hafi ekki verið raunhæfur kostur að
reyna að ná sambandi við Sævar með gjallarhorni fyrir utan húsið í ljósi
þess að hann hafi tvívegis skotið í áttina að þeim sérsveitarmönnum sem
skutu inn gasflaugum af bifreiðastæðinu fyrir framan íbúðina.
Samningamenn voru ekki kallaðir til
➜ Hefði nafni Sævars
verið flett upp, hefðu upp-
lýsingar legið fyrir um að
hann hlaut fangelsisdóm
í Noregi árið 1986 fyrir að
reyna að skjóta lögreglu-
mann með skammbyssu.
NOREGUR Búist er við hundruðum
gesta, meðal annars frá Litháen,
Hollandi, Póllandi, Þýskalandi og
Norðurlöndum, til hátíðarhalda
í tilefni af 15 ára afmæli norsks
klúbbs Vítisengla, Hells Angels, í
Hamar í Noregi nú um helgina.
Í frétt á vef norska ríkisút-
varpsins segir að Vítisenglum sé
bannað að vera í klæðum samtak-
anna á vissum stöðum. Það þýðir
meðal annars að þeir mega ekki
láta sjá sig í vestum með merki
samtakanna á bakinu í miðbæ
Hamar. - ibs
Lögregla í viðbragðsstöðu:
Bannar merki
Hells Angels
FINNLAND Sveitar-
félagið Pello
í Finnlandi
ætlar að
greiða
fyrstu 300
íbúunum
sem taka
upp sænsku
sem móður-
mál 50 evrur.
Tilgangurinn
er að tryggja samvinnu í heil-
brigðismálum við Övertorneå í
Svíþjóð.
Sveitarfélögin hafa um ára-
bil skipst á að manna lækna-
vaktir um helgar. Skipti ekki
að minnsta kosti átta prósent
íbúanna um móðurmál, þannig
að sveitarfélagið verði tvítyngt,
lýkur samvinnunni. - ibs
Sveitarfélag í Finnlandi:
50 evrur fyrir
nýtt móðurmál