Fréttablaðið - 14.06.2014, Page 20
14. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
Ívar Guðmundsson dag-
skrárgerðarmaður
HM og afmælisglens
„Það er nóg um að vera um
helgina og því um að gera
að byrja hana í World Class í
Laugum til að koma sér í gír-
inn. Í kvöld fer ég svo í afmæli
til hennar Ernu Hrannar sem
er að vinna á FM957.
Margrét Lára Viðarsdóttir
knattspyrnukona
Bíður eft ir barni
„Helgin verður eflaust í
rólegri kantinum en nú er
ég bara að bíða eftir því að
eignast mitt fyrsta barn. Við
erum því bara að vonast
eftir því að helgin færi okkur
stærstu gjöf lífs okkar.“
Geir Ólafsson tónlistar-
maður
Vinnuþjarkur
„Ég verð bara að vinna alla
helgina. Ég er að syngja í
brúðkaupi og afmælisveislu.
Fyrir utan vinnuna ætla ég
að njóta þess að vera í faðmi
í fjölskyldunnar.“
Leoncie tónlistarkona
ELDAR, UNDIRBÝR OG SEMUR LÖG
„Ég er að gera ýmislegt um helgina. Ég er til
dæmis að elda mat á matreiðsluhátíð í Ikea
og svo ætla ég líka að vinna í að gera nýja
húsið mitt flott. Ég ætla líka að nýta helgina í að
semja og vinna í lögum. Ég er að undirbúa margt
skemmtilegt.“
Baldvin
Þormóðsson
Baldvin@365.is
HELGIN
14. júní 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU HLUSTAÐU LESTU HORFÐU...
BÓKINA AMMA BIÐUR
AÐ HEILSA eftir Fredrik
Backman. Skáldsagan fjallar
um ofurhetjur úr hversdagslífinu og
var aðeins þrjá daga að komast á
toppinn á metsölulista Eymundson.
Í KVENNAHLAUP ÍSÍ en úti
um allt land eru skipulögð
hlaup. Til dæmis úti í Viðey
þar sem ræst er klukkan 10.30.
Á HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í
knattspyrnu í Brasilíu sem er í
algleymingi þessa dagana. Leik-
irnir eru alla daga kl. 16, 19, 22 og 01 á
Rúv og Stöð 2 Sport.
Á NÝÚTKOMNA plötu Gus
Gus, Mexico, sem kom út
fyrir stuttu. Á plötunni er að
gæta áhrifa frá synþapoppi níunda
áratugarins, transtónlist tíunda
áratugarins ásamt því að haldið er
áfram að vinna með söng, líkt og á
plötunni Arabic Horse.
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
BOZZ
sturtuklefi
80x80cm
43.900
11.990
AGI-167 hitastýrð
blöndunar tæki fyrir sturtu
fáanleg með upp stút.
Rósetturog hjámiðjur
fylgja.
Fást einnig í 90x90cm á
kr. 45.900. Einnig eru til
rúnnaðir 90x90 klefar
á kr. 45.900
Sturtustöng og -brúsa fylgja.
GÆÐAVARA
Vatnslás og botnventill frá
McAlpine seldur sér á kr. 1.290
,,Þegar verkefnið hófst var ekk-
ert eiginlegt markmið annað en
að búa til starfvettvang fyrir
listamenn,“ segir Sunneva Ása
Weisshappel en hún setti nýlega
á fót vinnustofuna Algera Stud-
io ásamt myndlistarmanninum
Ými Grönvold. Þau útskrifuðust
bæði úr listnámi fyrir um ári
síðan, Sunneva úr Listaháskóla
Íslands og Ýmir úr Myndlistar-
skóla Reykjavíkur. ,,Í námi hefur
maður aðgang að góðri vinnuað-
stöðu sem tapast eftir útskrift,“
segir Ýmir en tví eykið ákvað því
að taka málin í sínar eigin hend-
ur og fékk til leigu rými upp á
Höfða. Miðsvæðis er skortur á
stórum rýmum, þar af leiðandi
leituðu þau út fyrir 101 Reykja-
vík. Vinnustofan hefur verið í
uppbyggingu í rúmt ár þar sem
margir listamenn hafa lagt sitt af
mörkum og gert aðstöðuna að því
sem hún er orðin í dag.
,,Það er frábært að hafa fólk
úr ólíkum áttum sem vinnur á
sama stað og deilir þekkingu
og reynslu,‘‘ segir Kristín Þor-
láksdóttir. Hópurinn sammælist
um að „það er sexí að vera dug-
legur,“ þar sem framtaksemi,
atorka og dugnaður eru í fyrir-
rúmi. Ásamt því að vera vinnu-
stofa heldur Algera t.d. opin nám-
skeið í módelteikningu og stefnir
á að bjóða upp á fleiri tíma þar
sem fólk kemur saman og deilir
þekkingu. ,,Það er mikil gróska í
listasenunni og tækifæri eru að
skapast út um allt land,“ segir
Katrína Mogensen. Listamenn
geta ferðast og sýnt verk sín
landshorna á milli heilu sumrin
vegna sköpunaröldu sem ríður
yfir landið. Í dag myndar hópur-
inn ásamt Sunnevu og Ými Anní
Ólafsdóttir, Katrína Mogensen,
Klavs Liepins, Kristín Þorláks-
dóttir, Lukka Sigurðardóttir og
Nanna María Björk Snorra dóttir.
Hægt er að skoða það
sem fram fer innan veggja
Algeru Studio á heimasíðunni
algerastudio.com.
Listamenn úr ýmsum
áttum sameinast
Sprottið hefur upp listavinnustofan Algera á Höfða sem hýsir þá listamenn sem
þarfnast vinnuaðstöðu. Sunneva Ása og Ýmir Grönvold eru forsprakkar verkefnisins.
OPIÐ RÝMI Vinnustofan ásamt sýningarrými eru 350 fermetrar að stærð.
VINNUÞJARKAR Sunneva Ása og Ýmir hafa unnið í heilt ár við að gera rýmið að
almennilegri vinnustofu.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is