Fréttablaðið - 14.06.2014, Page 32
14. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Upphaflega flutti ég frá Íslandi til Svíþjóðar og á meðan ég bjó þar kynntist ég fullt af fólki frá Suður-Amer-íku og fór tvisvar til
Síle og dvaldi þar um tíma. Strax þá
langaði mig til að fara til Argentínu
en miðað við Suður-Ameríku var allt
mjög dýrt þar, auk þess sem ég var
með börnin með mér þannig að það
var ekki tímabært þá. En draumur-
inn lifði og allt sem ég heyrði, sá og
las um Argentínu sagði mér að Búe-
nos Aíres væri minn staður. Þannig
að ég ákvað að flytja þangað þótt ég
hefði aldrei komið þar og lét þann
draum rætast fyrir tíu árum.“
Missti manninn 24 ára
Helen stóð uppi sem ekkja með
tvö ung börn 24 ára gömul og tók
þá ákvörðun að fara í nám í Lundi
í stað þess að láta hugfallast. „Við
bjuggum í Grindavík og ég hafði
alltaf verið að reyna að fá mann-
inn minn til þess að flytja eitthvert,
til Danmerkur til dæmis, en hann
var mjög jarðbundinn, eða sjóbund-
inn öllu heldur, og var ekki hrifinn
af þeirri hugmynd. Stuttu áður en
hann veiktist hafði hann þó skipt
um skoðun og við vorum á leið til
Sádi-Arabíu þar sem hann var búinn
að fá vinnu. Síðan fékk hann þann
úrskurð að hann væri með bráða-
hvítblæði og lést skömmu síðar,
27 ára gamall. Ári síðar tók ég þá
ákvörðun að flytja til Svíþjóðar og
fara að læra mannfræði og Mið-
Austurlandafræði í Lundi. Stelpurn-
ar voru átta ára og þriggja og hálfs
árs þegar pabbi þeirra dó og við
bara fluttum með allt okkar hafur-
task og litum ekki um öxl.“
Draumurinn um fjarlæg lönd
yfirgaf Helen þó ekki og hún segir
hlæjandi að ef plönin hefðu gengið
eftir og þau hjón flutt til Sádi-
Arabíu þá væri hún sennilega maga-
dansmær í dag en ekki tangódans-
ari. Dansinn var nefnilega alltaf
skammt undir yfirborðinu. „Ég
hafði alltaf dansað mikið og verið
í íþróttum en ekki verið hrifin af
paradönsum þar sem karlmaður-
inn stjórnar, þannig að tangóinn
var ákveðin ögrun og fyrir hvatn-
ingu vinkonu minnar fór ég á nám-
skeið úti í Svíþjóð. Þar sá ég fullt af
ákveðnum og stjórnsömum konum
sem gátu látið að stjórn í dansinum
og sagði við sjálfa mig að ég hlyti
að geta lært það líka. Það tók reynd-
ar töluverðan tíma að láta að stjórn
en síðan þá hef ég uppgötvað að það
er sennilega það besta sem ég hef
gert. Við erum svo vanar því, konur
á Vesturlöndum, að hafa kontról á
öllu og ég fann hvað það var þægi-
legt að láta einhvern annan sjá um
stjórnina annað slagið og geta notið
þess að vera í stundinni.“
Fyrsta konan sem opnaði
tangóstað
Helen hefur samt greinilega ekki
alveg látið af því að þurfa að stjórna
því að það er ekki nóg með að hún
flytti út í óvissuna til Argentínu
heldur byrjaði hún á því að stofna
þar tangóstað. Er það ekki hámark
bjartsýninnar að setja á fót tangó-
stað í heimalandi tangósins? „Það
eru 220 tangóstaðir opnaðir á viku í
Búenos Aíres þannig að jú, það var
kannski mikil bjartsýni. En þetta
var það sem ég vildi gera og í mars
2004 opnaði ég staðinn minn þótt ég
flytti ekki formlega til landsins fyrr
en í maí. Eftir á sé ég að maður þarf
að vera mjög kjarkaður en samt
aðallega dálítið ruglaður til að láta
sér detta svona í hug. Tangóheimur-
inn er mjög matsjó og ég var fyrsti
útlendingurinn og fyrsta konan sem
opnaði sinn eigin tangóstað í Búe-
nos Aíres. Staðurinn hét La Vik-
inga, eins og fólk kallar mig þarna
niður frá, og gekk bara mjög vel.
Hann var dálítið öðruvísi en hinir,
áherslan var á rafrænan tangó og
flytjendurnir og dansararnir voru
yfirleitt ungt fólk sem var að koma
sér áfram sem gerði hann mjög vin-
sælan hjá yngri kynslóðinni.“
Þrátt fyrir vinsældirnar lok-
aði Helen La Vikinga og opnaði
annan og hefðbundnari tangóstað
sem braut þó hefðina að því leyti
að þar voru samkynhneigðir vel-
komnir og staðurinn var reyklaus,
sem þótti algjörlega út í hött á þeim
tíma þegar allir tangóstaðir voru
fullir af reyk og það þótti hluti af
sjarmanum. „Mörgum þótti ég ansi
kræf þegar ég ákvað að staðurinn
yrði reyklaus en á þessum tíma
var komið reykbann á Spáni og ég
þóttist nokkuð viss um að það yrði
sett á fljótlega í Argentínu, enda
liðu ekki nema átta mánuðir þar
til búið var að banna reykingar á
öllum tangóstöðum.“
Með miklu yngri dansherra
Helen byrjaði að kenna fólki tangó-
sporin á staðnum sínum og smátt
og smátt þróaðist það þannig að
hún opnaði sinn eigin tangóskóla.
„Það byrjaði þannig í framhaldi
af tangókennslunni á staðnum að
fólk fór að biðja um einkatíma og
áður en ég vissi af var ég farin
að reka skóla líka. Ég er reyndar
hætt að reka staðinn, það fór ekki
saman við það að vera á stöðugum
sýninga- og kennsluferðalögum
og 2009 lokaði ég síðasta tangó-
staðnum mínum.“
Eins og fram hefur komið er
tangóheimurinn mjög matsjó í eðli
sínu, er ekkert erfitt fyrir konu að
hasla sér völl sem kennari? „Það
er orðið algengara en það var að
konur kenni einar. Það er líka orðið
algengt að konur séu, eins og ég,
með miklu yngri dansherra. Áður
voru karlarnir oftast með mun
yngri konur í dansinum en nú hefur
þetta dálítið snúist við.“
Spurð hvort dansherrann, Adrián
Coria, sé meira en dansfélagi harð-
neitar Helen því og segist ekki hafa
fest ráð sitt síðan hún varð ekkja.
„Ég hef verið í bæði styttri og lengri
samböndum en ekki haft nokkurn
áhuga á því að gifta mig eða fara að
búa með einhverjum.“
Fjóra til fimm mánuði á ári er
Helen á flakki milli landa til að
kenna tangó og segist yfirleitt
hefja ferðina þegar fari að kólna í
Búenos Aíres. „Ég er að kenna og
sýna úti um allt í Bandaríkjunum
og Evrópu og hef alltaf jafn gaman
af því. Ég hafði víst einhvern tíma
sagt að ég ætlaði að hætta þessum
ferðalögum þegar ég yrði fimmtug
en svo varð ég fimmtug í fyrra-
haust og ég sé ekki fyrir mér að
hætta neitt á næstunni.“
Þótti dálítið ögrandi
Dætur Helenar búa báðar í Sví-
þjóð og þar býr líka ömmustrák-
urinn sem orðinn er tíu ára, togar
það ekkert í hana að flytja þangað
aftur? „Jú, það gerir það auðvitað en
ég er þar mikið og lít á Svíþjóð sem
mitt annað heimaland. Það eru 25
ár síðan ég flutti frá Íslandi en það
togar alltaf í mig líka þannig að nú
er ég eiginlega teygð milli þriggja
landa en eins og er er ég ekki á leið-
inni að flytja eitt eða neitt.“
Það getur ekki hafa verið auð-
velt fyrir einstæða konu að hasla
sér völl í karlmennskuheimi tangó-
sins í Argentínu en Helen segist
ekkert hafa hugsað út í það. „Ég
pæli aldrei í hlutunum, ég geri
þá bara. Ég þótti dálítið ögrandi
til að byrja með, þessi ljóshærða
kona sem dansaði gjarnan hlut-
verk herrans í tangónum, en ég
varð aldrei vör við neina andúð.
Mér var strax mjög vel tekið og
þótt konur á Vesturlöndum hafi
kannski meiri réttindi en þarna
suður frá þá kemur á móti að þar
er að mörgu leyti borin mun meiri
virðing fyrir konunni. Ég stend
mig til dæmis að því að standa og
bíða eftir að karlmaður opni dyr
fyrir mér hér heima og fer svo
bara að skellihlæja þegar ég fatta
að það er ekki venjan hér. Maður
er bara orðinn svo vanur því að
það sé stjanað við mann.“
Helen er bara í stuttu stoppi á
Íslandi og eftir helgina liggur leið-
in til Parísar, Kaupmannahafnar,
Gautaborgar, Parísar aftur, Stokk-
hólms og Berlínar þar sem þau
Adrián halda námskeið í tangó.
Hún viður kennir að það geti verið
þreytandi að búa í ferðatösku marga
mánuði á ári, en það sé aðallega
skemmtilegt. „Þetta er bara hluti
af því lífi sem ég hef valið mér og
ég er alveg hundrað prósent sátt við
það. Að láta drauminn um Argent-
ínu rætast er það besta sem ég hef
gert og ég mun aldrei sjá eftir því.“
La Vikinga lætur ekki að stjórn
Helen Halldórsdóttir varð ekkja með tvö ung börn 24 ára gömul. Hún tókst á við sorgina með því að fara í nám til Svíþjóðar
og þaðan lá leiðin til Argentínu þar sem hún rekur tangóskóla og hannar tangóskó, auk þess að ferðast um allan heim til að
kenna dansinn. Hún segir tangóinn hafa kennt sér að láta af stjórninni og að það sé það besta sem hún hafi lært.
TANGÓDROTTNINGIN SEM ÖGRAR VIÐTEKNUM HUGMYNDUM
Á DRAUMASTAÐNUM Helena segist alltaf hafa verið haldin ævintýraþrá og lét drauminn um Búenos Aíres rætast fyrir tíu árum þar sem hún stjórnar tangóskóla.
LA VIKINGA– HELEN HALLDÓRSDÓTTIR „Það tók reyndar töluverðan tíma að láta að stjórn en síðan þá hef ég uppgötvað að það er sennilega það besta sem ég hef gert.“
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL