Fréttablaðið - 14.06.2014, Page 45
| ATVINNA |
Menntunar- og hæfniskröfur
• Grunnskólakennararéttindi og reynsla
af kennslu í grunnskóla
• Reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum
í grunnskóla æskileg
• Lipurð í mannlegum samskiptum
• Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið
• Staðgengill skólastjóra
• Umsjón og skipulagning á innra starfi
skólans í samráði við skólastjóra
• Umsjón með starfsmannamálum í samráði
við skólastjóra
• Samskipti við nemendur og foreldra
Aðstoðarskólastjóri
Laus er staða aðstoðarskólastjóra við Grunnskóla Grundarfjarðar frá og með 1. ágúst 2014
Í Grunnskóla Grundarfjarðar eru nú tæplega 100 nemendur og 22 starfsmenn. Nánari upplýsingar um skólastarfið má finna
á heimasíðu skólans, www.grundo.is.
Laun eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir berist til Önnu Bergsdóttur, skólastjóra, í netfangið anna@gfb.is. Anna veitir allar nánari upplýsingar
um starfið, í símum 430 8555 og 863 1670 eða í ofangreindu netfangi. Umsóknarfrestur er til 23. júní 2014.
Staða kennara á fata- og textílkjörsviði listnámsbrautar FB,
veturinn 2014-15 er laus vegna forfalla. Um er að ræða 50%-75%
starf og verður ráðið í stöðuna til eins árs.
Verið er að leita að samviskusömum og hæfum kennara sem
býr yfir góðri samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum. Góð
fagmenntun og kennsluréttindi eru skilyrði.
Ekki þarf að sækja um á sérstöku eyðublaði en upplýsingar um
menntun, starfsferil og meðmælendur þurfa að fylgja umsókn sem
og afrit af vottorðum um nám. Umsækjendur þurfa að vera með
hreint sakarvottorð.
Ráðning er frá 1. ágúst 2014 og eru starfskjör samkvæmt
kjarasamningi KÍ.
Almennar upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni,
www.fb.is. Nánari upplýsingar gefur Magnús Ingvason aðstoðar-
skólameistari í síma 862 7610.
Umsóknir sendist skólameistara á netfangið ghg@fb.is fyrir
30. júní 2014. Öllum umsóknum verður svarað.
Skólameistari
FB, Austurbergi 5 – 111 Reykjavík,
sími 570 5600 – www.fb.is
Kennari á fata- og
textílkjörsviði FB
A Bluestar Company
LAUGARDAGUR 14. júní 2014 5