Fréttablaðið - 14.06.2014, Side 96
14. júní 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 60
Hann fann eitthvað
til eftir æfinguna í gær
en við verðum að bíða.
Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
HANDBOLTI Íslenska landsliðið í
handbolta leikur einn sinn mikil-
vægasta leik frá því í júní 2008
þegar liðið mætir Bosníumönnum
á sunnudaginn í Laugardalshöll. Í
húfi er farseðillinn á HM í Katar
á næsta ári en það væri hrein-
lega óásættanlegt fyrir Ísland að
tryggja sér ekki sæti í lokakeppn-
inni.
Ísland tapaði með eins marks
mun í fyrri leiknum í Bosníu þar
sem strákarnir okkar köstuðu frá
sér sigrinum á lokakafla leiksins.
Í stöðunni 27-23 gerðu íslensku
strákarnir sig seka um mýgrút
mistaka þar sem liðið tapaði bolt-
anum trekk í trekk. Bosníumenn
refsuðu grimmt og unnu lokakafl-
ann, 10-5. Sömu mistök verða ekki
leyfð í Höllinni. Hvað gerðist á
þessum „slæma kafla“? Jú, Bosnía
breytti um varnarleik og spilaði
með framliggjandi „ indíána“
eða það sem flestir þekkja sem
5+1-varnarleik. Við það datt
allur botn úr sóknarleik Íslands
og Bosníu menn keyrðu í bakið á
okkar mönnum og refsuðu sem
fyrr segir. Liðið verður að undir-
búa sig betur fyrir seinni leikinn
og geta svarað þeim óvæntu stöð-
um sem koma upp.
Í heildina var leikur Íslands í
fyrri leiknum ágætur. Sóknar-
leikurinn var lengst af góður en
varnar leikurinn kaflaskiptur.
Vörnin hélt lengi vel en ekki var
laust við að þreyta hefði sagt til
sín síðasta korterið.
Stóra vandamálið var þó mark-
varslan sem var undir meðallagi.
Í leikjum í undankeppnum og á
stórmótum er allt undir 35 pró-
sent markvarsla hjá liði sem telur
sig vera í heimsklassa óboðleg.
Beiti Bosníumenn sömu leik-
aðferð í Höllinni er ljóst að Ísland
þarf að spila agaðan leik með inn-
leysingum. Lykilatriðið er að bolt-
anum verði ekki troðið inn á línu
í vonlausri stöðu þar sem hann
tapast og við fáum mörk á okkur
í bakið. Sú var raunin í Sarajevo.
Miklar vonir eru bundnar við
að Aron Pálmarsson geti tekið ein-
hvern þátt í seinni leiknum. Það
yrði svo sannarlega kostur. Hafa
ber þó í huga að Aron Pálmarsson
er hluti af liðinu. Hann styrkir
liðið og það styrkir hann. Hand-
bolti er leikur liðsheildar – ekki
einstaklinga.
Eini einstaklingurinn sem
getur hjálpað strákunum okkar
á sunnudaginn ert þú, áhorfandi
góður. Ísland þarf að vinna með
tveimur mörkum til að komast á
HM 2015 og þú getur leikið lykil-
hlutverk í því ævintýri. Er það
eitthvað sem þú ætlar virkilega
að missa af?
Aron vinnur leikinn ekki einn
UTAN VALLAR
Guðjón
Guðmundsson
segir sína skoðun
SPORT
HANDBOLTI Ísland mætir Bosníu í
Laugardalshöll á morgun í hreinum
úrslitaleik upp á sæti á heimsmeist-
aramótinu sem fer fram í Katar á
næsta ári. Ísland tapaði fyrri leikn-
um 33-32 úti í Bosníu sem gerir það
að verkum að íslenska liðið þarf
sigur.
„Við stefnum auðvitað bara á
sigur á morgun, við erum búnir
að undirbúa okkur vel. Við fórum
yfir fyrri leikinn og það er margt
sem má laga úr honum. Þeir refs-
uðu okkur of oft í fyrri leiknum,“
sagði Aron Kristjánsson, landsliðs-
þjálfari Íslands, þegar Fréttablaðið
heyrði í honum.
„Við spiluðum vel lengst af en
þeir refsuðu okkur fyrir öll mis-
tök, sérstaklega í seinni hálfleik.
Við þurfum að verjast betur gegn
hraðaupphlaupunum. Við spiluðum
vel en á lokakaflanum gerum við
of mikið af mistökum,“ segir Aron.
Hann var ánægður með sóknar-
leikinn í leiknum en óánægður með
spilamennskuna á hinum enda vall-
arins. „Við getum bætt okkur bæði
varnarlega og í markvörslu og það
er markmiðið á sunnudaginn. Við
verðum að vera einbeittir og koma
inn í þetta af krafti. Bosníumenn
eru svo fljótir að refsa þegar maður
gerir einföld mistök og við verðum
að verjast því betur í leiknum,“
segir Aron sem hélt sig við Björg-
vin Pál Gústavsson í leiknum þrátt
fyrir að Björgvin hefði ekki fundið
sig í leiknum úti í Bosníu.
„Hann fékk á sig mörg mörk en
varði alltaf af og til bolta. Við héld-
um okkur við Björgvin þar sem
við vildum ekki setja kaldan og
óreyndan markmann inn. Bjöggi
á það til að stíga upp á mikilvæg-
ustu stundunum og koma með lykil-
markvörslu rétt eins og hann gerði
á lokamínútum leiksins. Þá varði
hann þrjú skot á stuttum tíma sem
var okkur gríðarlega mikilvægt,“
segir Aron. Vonast er til þess að
Aron Pálmarsson geti tekið þátt í
leiknum en ákvörðun verður tekin
eftir æfingu í dag.
„Hann fann eitthvað til eftir
æfinguna í gær en við verðum að
bíða. Hann er góður leikmaður,
bæði í vörn og sókn og er okkar liði
gríðarlega mikilvægur,“ sagði Aron
en ákvörðun um þátttöku Arons
Pálmarssonar verður tekin í dag.
kristinnpall@365.is
Þarf betri markvörslu
Aron Kristjánsson vonar að Aron Pálmarsson verði klár í slaginn fyrir leik Íslands
gegn Bosníu á morgun. Ákvörðun verður tekin eft ir hádegisæfi ngu dagsins.
EINBEITTUR Aron vill að strákarnir verði einbeittari í leiknum og reyni að gefa ekki kost á hraðaupphlaupum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Kvennalandsliðið
í handbolta mætir Slóvakíu í
lokaleik sínum í 2. riðli undan-
keppni EM 2014 í Laugardalshöll
á sunnudaginn. Ekkert er undir í
leiknum þar sem þrjú stig skilja
á milli liðanna og Slóvakar eru
búnir að tryggja sig á EM með
Frakklandi. „Við tökum þennan
leik af fullri alvöru því hann
skiptir máli upp á næstu undan-
keppni,“ sagði Ágúst Jóhannsson,
þjálfari Íslands, í gær.
Melkorka Mist Gunnarsdóttir,
markvörður Fylkis, og Marthe
Sördal, hornamaður Fram, koma
inn í hópinn fyrir leikinn sem
hefst klukkan 14.45 á sunnu-
daginn í Laugardalshöll. - tom
Tökum leikinn
af fullri alvöru
EKKERT BULL Sigur er mikilvægur þótt
lítið sé undir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRJÁLSAR Landsliðið í frjáls-
íþróttum sem fer á Evrópu-
mót landsliða í Tbilisi í Georgíu
21.-22. júní næstkomandi var
samþykkt af stjórn FRÍ í gær.
Allt besta frjálsíþróttafólk
landsins fer með á mótið, þar á
meðal Aníta Hinriksdóttir, Ásdís
Hjálmsdóttir og langhlauparinn
Kári Steinn Karlsson.
Markmiðið er að koma Íslandi
upp úr 3. deild en frá því að
keppnin varð að sameiginlegri
karla- og kvennakeppni hefur
landsliði Íslands aldrei tekist að
komast upp um deild. Liðið er
nokkuð sterkt núna og vænting-
arnar miklar. - tom
Landsliðið í
frjálsum valið
Kólumbíska dómara-
tríóið sem dæmdi leik
Mexíkó og Kamerún í A-riðli
í gær eru sjálfsagt einna
fegnastir að fyrrnefnda liðið
vann leikinn, 1-0. Giovani
dos Santos skoraði nefnilega
tvö mörk sem voru ranglega
dæmd af vegna rangstöðu í
fyrri hálfleik. Oribe Peralta
skoraði sigurmark Mexíkó í
þeim síðari, eftir að hafa fylgt
eftir skoti dos Santos sem var
varið af markverði Kamerún.Allt um HM á Vísi
Dos Santos var rændur tveimur
mörkum í sigri Mexíkó á Kamerún
22.00 ENGLAND - ÍTALÍA Stór-
leikur sem flestir knattspyrnuunnendur hafa
beðið eftir síðan dregið var í riðla fyrir
HM í Brasilíu. Liðin hafa haft 27 vikur
til að undirbúa sig fyrir þennan leik
og verður forvitnilegt að sjá hvað
Roy Hodgson, þjálfari enska liðsins,
mun gera gegn ítölsku landsliði
sem er sókndjarfara nú en oft áður.
Wayne Rooney er í aðalhlutverki
hjá enska landsliðinu og hvílir mikil
ábyrgð á herðum hans.
Það er ef til vill ósanngjarnt
að taka aðeins einn út úr
hollenska landsliðinu og kalla
hann stjörnu gærdagsins eftir
þá sýningu sem Hollendingar
buðu upp á gegn ríkjandi
heims- og Evrópumeisturum
Spánar í gærkvöldi. Holland,
silfurlið HM 2010, lenti 1-0
undir í fyrri hálfleik en fór
á kostum í þeim síðari og
vann að lokum 5-1 sigur.
Arjen Robben skoraði tvö
mörk og var magnaður.
STJARNA
GÆRDAGSINS
Arjen Robben
Holland
ÚRSLIT
HM Í BRASILÍU
A-RIÐILL
MEXÍKÓ - KAMERÚN 1-0
1-0 Oribe Peralta (61.).
STAÐAN
Brasilía 1 1 0 0 3-1 3
Mexíkó 1 1 0 0 1-0 3
Kamerún 1 0 0 1 0-1 0
Króatía 1 0 0 1 1-3 0
B-RIÐILL
SPÁNN - HOLLAND 1-5
1-0 Xabi Alonso, víti (27.), 1-1 Robin van Persie
(44.), 1-2 Arjen Robben (53.), 1-3 Stefan De Vrij
(64.), 1-4 Van Persie (72.), 1-5 Arjen Robben (80.).
SÍLE - ÁSTRALÍA
Leiknum var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í
prentun.
LEIKIR LAUGARDAGS
C-RIÐILL: Kólumbía - Grikkland 16.00
D-RIÐILL: Úrúgvæ - Kosta Ríka 19.00
D-RIÐILL: England - Ítalía 22.00
C-RIÐILL: Fílabeinsstr. - Japan 01.00
LEIKIR SUNNUDAGS
E-RIÐILL: Sviss - Ekvador 16.00
E-RIÐILL: Frakkland - Hondúras 19.00
F-RIÐILL: Argentína - Bosnía 22.00
1. DEILD KARLA
KV - HAUKAR 1-4
0-1 Brynjar Benediktsson (9.), 0-2 Hilmar Rafn
Emilsson (26.), 0-3 Hilmar Rafn Emilsson (47.),
0-4 Andri Steinn Birgisson (81.), 1-4 Atli Jónasson,
víti (87.).
GRINDAVÍK - ÞRÓTTUR 1-1
1-0 Juraj Grizelj, víti (40.), 1-1 Ragnar Pétursson
(61.).
STAÐAN
Leiknir 5 4 1 0 6-0 13
Víkingur Ó. 5 4 0 1 9-6 12
Þróttur 6 3 1 2 10-6 10
ÍA 5 3 0 2 8-6 9
Haukar 6 2 2 2 10-10 8
HK 5 2 2 1 7-7 8
Selfoss 5 2 1 2 5-3 7
KV 6 2 1 3 13-12 7
KA 5 1 1 3 8-8 4
Grindavík 5 1 1 3 6-8 4
BÍ/Bolungarv. 4 1 0 3 5-10 3
Tindastóll 5 0 2 3 3-14 2
NÆSTU LEIKIR
Í dag: 14.00 BÍ/Bolungarvík - KA, Leiknir -
Selfoss, Tindastóll - ÍA, HK - Víkingur Ó.
20% AFSLÁTTUR
AF DEEP HEAT OG FREEZE
3. JÚNÍ TIL 30. JÚNÍ