Fréttablaðið - 14.06.2014, Blaðsíða 97
LAUGARDAGUR 14. júní 2014 | SPORT | 61
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason,
landsliðsmaður í knattspyrnu,
gæti verið á leið til gríska stór-
liðsins Olympiakos en sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
í Grikklandi eiga grísku meistar-
arnir í viðræðum við Heerenveen
um kaupverð á framherjanum.
Alfreð hefur farið á kostum á
síðustu tveimur árum með Hee-
renveen og er markahæsti leik-
maðurinn í deildinni í sögu
félagsins. Hann fékk gullskóinn
eftir tímabilið og er einn af eftir-
sóttari framherjum Evrópu í dag.
Hann skoraði 53 mörk í 65 leikj-
um fyrir Heerenveen í hollensku
deildinni.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að erfiðlega hafi gengið
í samningaviðræðum félaganna
en þau færist nú nær því að kom-
ast að samkomulagi um kaupverð.
Olympiakos er tilbúið að greiða
fyrir hann sex milljónir evra.
Heerenveen hafnaði tíu millj-
óna evra tilboði frá Fulham á
lokadegi félagaskipta í janú-
ar, sem Alfreð var ósáttur við.
Ástæða þess að gríska liðið þarf
ekki að jafna það tilboð er að
Alfreð á aðeins eitt ár eftir af
samningi sínum við Heerenveen
en þegar svo ber undir eru leik-
menn almennt ódýrari.
Olympiakos þarf ekki að kynna
fyrir knattspyrnuáhugamönn-
um. Það er langstærsta félagið
í Grikklandi. Það hefur unnið
grísku deildina 41 sinni og er
fastagestur í Meistaradeild Evr-
ópu. - tom
Alfreð færist nær Olympiakos
Gríska liðið á í viðræðum við Heerenveen um kaupverð á framherjanum.
MARKAHRÓKUR Fer Alfreð Finnbogason að skora í Grikklandi? FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Á Eurosport eru þrír þættir um HM í Brasilíu á hverjum degi.
Ítarleg og vönduð umfjöllun um skemmtilegustu keppni í heimi.
Tryggðu þér Sportpakka SkjásHeims á aðeins 1.490 kr. á
mánuði eða aðeins 990 kr. fyrir áskrifendur SkjásEins.
TRYGGÐU ÞÉR ÁSKRIFT | SKJARINN.IS | 595 6000
FÓTBOLTI „Æfingarnar eru búnar
að vera góðar hérna og það er
mikil spenna fyrir leiknum,“ segir
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði
íslenska kvennalandsliðsins í fót-
bolta, í samtali við Fréttablaðið um
leikinn gegn Dönum í undankeppni
HM 2015 sem fram fer klukkan
11.00 ytra á sunnudagsmorgun.
Leikurinn er gríðarlega mikil-
vægur fyrir stelpurnar í barátt-
unni um annað sætið í riðlinum
sem gæti á endanum gefið sæti í
umspili um farseðil á HM. Fyrsta
sætið er ekki lengur möguleiki
þar sem Sviss er með 19 stig, tíu
stigum meira en Ísland, og Ísrael
er óvænt í öðru sæti. Danir eru í
þriðja sæti með fimm stig.
„Danska liðið er mjög sterkt. Við
höfum spilað við þær áður og bæði
unnið og tapað. Þær eru rosalega
góðar að halda boltanum sem er
þeirra styrkleiki. Þetta er samt lið
sem við getum unnið,“ segir Sara
Björk.
Þurfa sigur
Alla jafna væri jafntefli við Dan-
mörku á útivelli ekki slæm úrslit
en þar sem Ísland þarf að safna
nóg af stigum er sigur þýðingar-
mikill á sunnudaginn.
„Við þurfum þrjú stig og með
réttri leikaðferð og réttri pressu
þannig að við lokum á þær, þá
getum við skorað á þær og unnið
leikinn,“ segir Sara Björk sem
hefur fulla trú á verkefninu.
„Við höldum áfram að trúa á að
HM-draumurinn lifi en til þess að
hann haldi áfram að lifa verðum
við að fá þrjú stig. Það er lykil-
atriði í þessu að allur hópurinn
hafi fulla trú á að við getum unnið
Dani á sunnudaginn. Það hefur
verið draumur okkar allra svo
lengi að komast á HM. Við viljum
virkilega komast þangað.“
Engin betri en Þóra
Sara Björk er fyrirliði sænska
meistaraliðsins Rosengård þar
sem hún spilar með Þóru B. Helga-
dóttur landsliðsmarkverði. Þóra
er á leið heim til Fylkis í Pepsi-
deildinni en erfitt verður að fylla
hennar skarð hjá sænska liðinu.
„Þú færð ekkert betri markvörð
en Þóru. Það hafa verið forréttindi
að æfa og spila með henni því hún
er einfaldlega besti markvörður
heims í dag,“ segir Sara um mark-
vörðinn.
„Það er virkilega sárt að missa
hana úr liðinu og eftirmaður
hennar þarf að feta í stór fótspor.
Það sem skiptir máli er að hún er
ánægð með þetta.“ tomas@365.is
Trúin á drauminn lifi r
Kvennalandsliðið í fótbolta mætir Danmörku ytra á sunnudaginn í mikilvægum
leik í undankeppni HM 2015. Sigur er nánast nauðsyn fyrir stelpurnar okkar.
FYRIRLIÐINN Sara
Björk Gunnars-
dóttir og stelpurnar
okkar þurfa sigur í
Danmörku á
sunnudaginn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP