Fréttablaðið - 21.06.2014, Síða 4
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
Íslendingar eru í
viðskiptum við
umboðsmenn er-
lendra tryggingafélaga.
Seðlabankinn segir við-
skiptin brjóta gegn lögum
um gjaldeyrismál.
30.000
Í bréfi Umhverfisstofnunar til umhverfis- og auðlindaráðherra er farið yfir
þau lög sem gilda um rétt almennings til að ferðast óhindrað um náttúr-
una, og um leið heimildir til gjaldtöku af þeim sem ferðast um landið.
„Löggjöfin okkar er ekki undir það búin að taka á móti svona miklum
fjölda ferðamanna,“ segir Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfis-
stofnunar. Hún segir að skýra þurfi aðgengi og aðgangstakmarkanir,
hvenær megi stunda gjaldtöku og í hvað féð eigi að fara.
Til stóð að ný lög um náttúruvernd tækju gildi í apríl síðastliðnum.
Gildistöku laganna var frestað, og til stendur að endurskoða þau. Ákvæði
um gjaldheimtu í nýju lögunum er svo til samhljóða ákvæði í eldri lög-
unum. Kristín segir mikilvægt að þessi hluti laganna verði endurskoðaður.
Umhverfisstofnun er hlynnt því að komið verði á einu heildstæðu
kerfi fyrir gjaldtöku af ferðamannastöðum, eins og nú er í vinnslu hjá
stjórnvöldum. „Við teljum að það að koma upp gjaldtöku víða um land sé
ekki til þess að bæta almannarétt. Það er einnig mjög slæmt fyrir ímynd
Íslands,“ segir Kristín.
Lögin ekki hugsuð fyrir mikinn fjölda
SKÁK Magnús Carlsen, norski
skákmeistarinn, er handhafi allra
heimsmeistara-
titlanna þriggja
í skák sem í boði
eru. Hann varð
í gær heims-
meistari í hrað-
skák, en tefldi til
sigurs tveimur
dögum fyrr í
móti um heims-
meistaratign í
atskák. Fyrir er hann heimsmeist-
ari í klassískri skák. Hann er stiga-
hæsti stórmeistari sögunnar með
2.881 Elo-stig. Carlsen er 23 ára.
Heimsmeistaramótið í at- og
hraðskák hefur staðið yfir í Dúbaí
síðan 15. júní. Þátt tóku flestir
sterkustu stórmeistarar heims.
Sigurinn færir Carlsen 80.000
Bandaríkjadali, eða tæplega níu
milljónir króna. - shá
Þrefaldur meistari í skák:
Carlsen heldur
öllum titlunum
MAGNÚS
CARLSEN
VIRKJANIR Losun á brennisteins-
vetni frá Hellisheiðarvirkjun
og Nesjavallavirkjun var 40
pró sentum minni á síðasta ári
en hingað til hefur verið talið.
Ástæða ofmatsins var reiknivilla
sem hefur verið í líkani Orku-
veitu Reykjavíkur frá árinu 2011.
Þó er magn brennisteins vetnis
í andrúmsloftinu í byggðum
nálægt virkjununum hið sama og
áður var talið. Orkuveitan stefnir
að því að draga úr styrk þess. - ih
Virkjanir á Hengilssvæðinu:
Menga minna
en talið var
MINNI MENGUN Reiknivilla hjá Orkuveitu
Reykjavíkur olli því að mengun frá Hengils-
svæðinu var ofmetin. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
krónum þarf að punga
út fyrir bílaleigu-
bíl af minnstu og ódýrustu gerð hér
á landi fyrir vikutíma um miðjan
júlí. Bílaleigur í nágranna-
löndum bjóða mun betra verð.
76.403
14.06.2013 ➜ 20.06.2014
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
fuglar af þremur teg-
undum hafa fundist
dauðir á Snæfellsnesi
á síðustu mánuðum.
130
40 meðlimir kvenna-kórsins
Hrynjandi sungu í boði
sem sendiherra Íslands
í Berlín hélt í borginni
á þjóðhátíðardaginn.
eru liðin síðan Sturla
Böðvarsson,
bæjarstjóri í
Stykkishólmi,
gegndi
embættinu
síðast, eða
árið 1991.
23 ár 700.000
krónur er upphæðin
sem stjórnarfor-
maður Bláa lónsins
fær á mánuði fyrir
stjórnarstörf sín.
alvarleg vinnuslys eru tilkynnt Vinnu-
eft irlitinu á ári. Tugir einstaklinga slasast
það illa að þeir eiga ekki aft urkvæmt á vinnustað.
12-1500
manns eru á
fl ótta í heiminum
í dag og fl ótta-
menn hafa ekki
verið fl eiri síðan á tímum
seinni heimsstyrjaldarinnar.
50.000.000
NÁTTÚRUVERND Gjaldtaka landeig-
enda við Kerið og önnur svæði sem
eru á náttúruminjaskrá stenst ekki
lög að mati Umhverfisstofnunar.
Þá telur stofnunin ekkert í lögum
heimila gjaldtöku á öðrum ferða-
mannastöðum þótt þeir séu ekki á
friðlýstum svæðum eða á náttúru-
minjaskrá.
Í bréfi sem Umhverfisstofnun
sendi umhverfis- og auðlindaráð-
herra á fimmtudag segir að stofn-
unin hafi nú til skoðunar hvort
beita eigi ákvæði í lögum sem
heimilar Umhverfisstofnun að
gera samning við landeigendur um
að innheimta slíkt gjald. Verði það
gert yrði innheimta aðgangseyris
við Kerið lögmæt, að mati stofnun-
arinnar.
„Það er ákveðin óvissa um
hvernig beita á þessu ákvæði,
hvort við eigum að gera samn-
ing við þann landeiganda sem vill
rukka, eða ætlar
sér að rukka,“
segir Kristín
L i nda Á r na -
dóttir, forstjóri
Umhverfisstofn-
unar. Fá verði
svör við því hver
eigi að ákveða
upphæð gjalds-
ins, hver eigi að
geyma peningana og í hvað eigi að
nota þá. Þá þurfi að skýra hver eigi
að meta álag og spjöll á svæðum.
Þetta verði að skoða nánar.
„Áður en við tökum einhverja
ákvörðun verður að skýrast um
hvað slíkur samningur ætti að
snúast,“ segir Kristín. „Við munum
óska eftir því að fá fund með ráðu-
neytinu um hvernig við höldum
áfram með þetta.“
Í lögum um náttúruvernd eru
ákvæði um að heimilt sé að inn-
heimta gjald fyrir þjónustu á
friðlýstum svæðum og náttúru-
verndarsvæðum. Þar segir að
Umhverfisstofnun, eða aðili sem
stofnunin felur að reka svæði, geti
ákveðið gjald fyrir veitta þjónustu
á slíkum svæðum. Þá geti stofn-
unin, eða rekstraraðili, einnig
ákveðið að innheimta gjald fyrir
aðgang að svæðinu „ef spjöll hafa
orðið af völdum ferðamanna eða
hætta er á slíkum spjöllum“.
Kerið er á náttúruverndarsvæði
og fellur því undir þessi laga-
ákvæði, segir Kristín. Landeig-
endur í Kerinu hafa innheimt gjald
af ferðamönnum frá því í júní í
fyrra. Geysir í Haukadal er einnig
á náttúruminjaskrá, en þar hefur
verið sett lögbann á gjaldtöku að
kröfu ríkisins og eru málaferli í
gangi fyrir dómstólum.
„Við erum að benda á að það eru
sérstakar reglur sem gilda um
þessi náttúruverndarsvæði og þar
eru reglurnar skýrar. Hins vegar
er ákveðinn óskýrleiki varðandi
önnur landsvæði,“ segir Kristín.
Hún segir það ski lning
Umhverfisstofnunar að það þurfi
lagaheimild til að innheimta
aðgangseyri til að skoða náttúr-
una, jafnvel á svæðum sem ekki
eru friðlýst eða á náttúruverndar-
skrá. Kristín segir slíka heimild
ekki til staðar. Á hinn bóginn sé
heimilt samkvæmt lögum að loka
svæðum til að hlífa þeim við álagi,
sem augljóslega sé mjög takmark-
andi fyrir almannarétt.
„Lagaumhverfið er einfaldlega
ekki nógu skýrt í þessum tilvikum,
og úr því er brýnt að bæta,“ segir
Kristín. brjann@frettabladid.is
KRISTÍN LINDA
ÁRNADÓTTIR
KERIÐ Deilt hefur verið um rétt landeigenda til að innheimta gjald fyrir aðgang
að náttúruperlum. Slíkt gjald hefur verið innheimt frá því í fyrrasumar við Kerið í
Grímsnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Gjaldtaka við Kerið ólögmæt
að mati Umhverfisstofnunar
Umhverfisstofnun ein má ákveða innheimtu aðgangseyris á landsvæðum sem eru á náttúruminjaskrá að mati
stofnunarinnar. Til skoðunar er að semja við landeigendur í Kerinu svo þeir fái heimild til að innheimta gjald.
Vordís Eiríksdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
HELGARVEÐRIÐ Stöku skúrir víða um land í dag, þó síst á Vestfjörðum en þar
ætti að verða bjartviðri. Minnkandi úrkoma til morguns en þó áfram skúrir A-lands.
Hægviðri um allt land og hiti 8-16 stig. Snýr sér í SV-átt og fer hlýnandi á mánudaginn.
8°
3
m/s
10°
1
m/s
12°
2
m/s
11°
3
m/s
Hæg
breytileg
átt á öllu
landinu.
Vaxandi
SV-átt,
2-11m/s.
Gildistími korta er um hádegi
23°
32°
16°
23°
19°
16°
25°
18°
19°
24°
23°
32°
29°
28°
29°
18°
18°
21°
10°
3
m/s
9°
2
m/s
10°
3
m/s
8°
4
m/s
10°
1
m/s
9°
2
m/s
5°
2
m/s
14°
13°
9°
12°
15°
11°
12°
13°
10°
16°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN